blaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 24
24 I FERÐALÖG
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 blaöiö
Sérhœfðar ferðir í boði
fyrir einstœða foreldra
Heimasíðan www.singleparenttravel.net sérhæfir sig í ferðalögum fyrir einstæða for-
eldra og börn auk þess að skipuleggja alis kyns ferðir fyrir þessa sömu einstaklinga.
Hjólhýsaeign landsmanna hefur margfaldast undanfarin tvö ár og hafa landsmenn í
auknum mæli sótt í að nota slik tæki við ferðalög innanlands.
Pjóðhátið
allt sumarið
Stundum mætti halda að sam-
félagið sé einungis gert fyrir
kjarnafjölskylduna, maður, kona
og tvö börn. Þetta á sérstaklega
við á ferðalögum þar sem ódýr-
asta verðið fæst jafnan ef einstak-
lingur tilheyrir þessari venjulegu
kjarnafjölskyldu. En staðreyndin
er að kjarnafjölskyldan er langt
frá því að vera venjuleg. í íslensku
samfélagi eru einstæðir foreldrar
mjög algengir og þótt ótrúlegt sé
þá kjósa þeir líka að fara í ferða-
lag einstaka sinnum.
Heimasíðan www.singleparenttra-
vel.net sérhæfir sig í ferðalögum
fyrir einstæða foreldra og börn auk
þess að skipuleggja alls kyns ferðir
fyrir þessa sömu einstaklinga. Á
síðunni kemur fram að ekki sé ein-
ungis einblínt á einstæða foreldra
heldur allar „óvenjulegar“ fjöl-
skyldur; eiginmanninn sem ferðast
einn með börnin, einstæða afa og
ömmur, Brady fjölskylduna og alla
aðra sem hafa áhuga á. Hægt er að
gerast áskrifandi að mánaðarlegu
fréttabréfi sem hefur að geyma frá-
bær tilboð og góð ráð fyrir einstæða
foreldra.
Allar ferðir Single Parent Tours
eru sérhannaðar með „óvenjulegar“
fjölskyldur í huga. Single Parent To-
urs vilja endilega að aðrir einstæðir
foreldrar leyfi börnum sínum að
kynnast þeirri einstöku ánægju sem
fæst með heppilegri ferðareynslu,
hvort sem það er til fjarlægra landa
eða styttra í burt. Þegar síðan er
skoðuð betur virðist líka sem um
einhvers konur stefnumótavef sé
að ræða þar sem hægt er að finna
myndir og áhugamál einhleypra
foreldra. Þessir foreldrar lýsa þá
áhugamálum sínum sem og fleiri
hugðarefnum. Auk góðra tilboða
má finna ýmis ráð og annað gagn-
legt á vefnum.
svanhvit@bladid.net
Góð ráð fyrir ferðalag
óvenjulegrar" fjölskyldu
Leyfðu börnunum að taka
þátt í ákvarðanatökunni
með hvert eigi að fara og
tvenær. Segðu þeim hvað
)ú ráðleggur að gera og af
werju.
Skipuleggðu fríið vel með
hagsmuni allra í huga.
Eyddu þriðjungi frísins
að gera það sem þú hefur
áhuga á, priðjungi frísins að
gera það sem barnið/börnin
nafa áhuga á og þriðjungi
að gera það sem þið hafið
öll áhuga á að gera.
Ef þú átt fleiri en eitt barn
skaltu skipuleggja að skoða
staði sem hvert barn fyrir
sig hefur áhuga á. Eitt gæti
viljað heimsækja ákveðið
listasafn, annao skemmti-
legan leikjagarð en hið
þriðja kvikmyndahús. Ef
állir fá sitt ætti ferðin að
vera ánægjuleg frá upphafi
til enda.
Skrifaðu dagskrá um hvað
skal gera hvern dag. Með
því kemurðu í veg fyrir rifr-
ildi og önnur leiðindi.
Skrifaðu hjá þér allar leið-
beiningar á staði, hvort sem
þið farið gangandi eða ak-
andi. Fáðu eitt barnanna til
að lesa leiðbeiningarnar ef
þú ert akandi.
Skrifaðu niður hverju var
(>akkað niður. Gefðu ung-
ingnum eintak svo hann
geti fylgst með sínu dóti.
Næringarríkt snarl og vatn
er einkar gagnlegt, hvort
heldur sem er í flugvél, lest,
bíl eða rútu.
Fáðu börnin til að aðstoða
þig á allan hátt. Til dæmis
með því að bera töskur, lesa
á kort, finna góðan veiting-
arstað og margt fleira. Með
þvi verður þetta ferðalag
ykkar allra en ekki aðeins
ntt ferðalag. Mundu svo að
)akka þeim kærlega fyrir
ijálpina.
Hjólhýsaeign landsmanna hefur
aukist gríðarlega undanfarin tvö ár
og hafa landsmenn í auknum mæli
sótt í að nota slík tæki við ferðalög
innanlands. Kristín Anný Jóns-
dóttir er sölustjóri Víkurverka sem
eru stærsti söluaðili fyrir hjólhýsi og
húsbíla hérlendis.
„Við byrjuðum að selja 2006 línuna
í september og það er búið að ganga
rosalega vel og við búumst við meiri
sprengju en í fyrra. 1 fyrra seldum
við um 90 hjólhýsi sem verður að
teljast mjög gott fyrir íslenskan
markað," segir Kristín og bætir við
að fólk sé að skipta úr felTihýsunum
yfir í hjólhýsin.
Stöðugt fullkomnari tæki
Kristín segir að algengasta verðið á
hjólhýsunum sé frá 1600 þúsundum
og upp í 3-4 milljónir en þau eru þá
misjafnlega stór og vel búin. Hún
segir tækin stöðugt verða fullkomn-
ari og t.a.m. hafi Víkurverk nýlega
selt fyrsta hjólhýsið sem hannað var
sérstaklega fyrir fatlaða.
Aðspurð um kosti þess að eiga hjó-
hýsi segir Kristín að þau gefi manni
kost á að hafa eitthvað skemmtilegt
að gera allar helgar. „Það er bara
þjóðhátíð hjá manni allt sumarið.
Það er líka alltaf eitthvað að gerast
víðs vegar um landið, einhverjar há-
tíðir eða dagar sem gaman er að geta
farið með hjólhýsi á,“ segir Kristín.
Hún segir möguleika hjólhýsa-
eigenda vera nánast óendanlega.
„Þetta er auðvitað bara bústaður á
hjólum. Það er rosalega þægilegt að
ferðast svona. Alveg sama hvort það
sé rigning eða vont veður, þá bara
lokar maður hurðinni og hefur það
huggulegt. Sjálf er ég búin að eiga
hjólbýsi í nokkur ár og finnst þetta
alveg meiriháttar,“ segir Kristín að
lokum.
Reykjavík^Oslo
Kr. 8.000
Reykjavík -> Þrándheimur
' Kr. 12.500 aðra leiö
Reykjavík -> Stavanger
' á Kr. 9.500 aöra leið
Reykjavík -> Bergen
“Kr. 9.500 —
Tímitil
kominn!
www.flysas.is
|
S4S
Scandinavian Airlines
Skattar og flugvallargjöld innifalin. Flug hefst 27. mars. Sími fjarsölu: 588 3600.
A STAR ALLIANCE MEMBER V? >