blaðið - 01.04.2006, Side 44
44 I UNGA FÓLKID
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 blaðið
-
Telma Yr Ríkharðsdóttir, hárgreiðslunemi úr Iðnskólanum í Hafnarfirði, vann að þessari sérstöku fantasíuhárgreiðslu sem hún kallar
eld. Telma segir að keppnin gefi henni tækifæri til að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og prófa eitthvað sem hún geti ekki gert á
hverjum degi í skólastofunni.
Islandsmót iðnnema
Þeir sem lögðu leið sína í Kringl-
una á föstudag hafa ef til vill
haldið að þar væri allt í kalda koli
enda iðnaðarmenn að störfum
í öllum hornum. Sú var þó ekki
raunin heldur fór þar fram árlegt
íslandsmót iðnnema þar sem þeir
reyndu með sér í ólíkum greinum,
allt frá múrverki til málmsuðu
og hársnyrtingar. Alls voru 72
keppendur frá 11 skólum skráðir
til leiks, helmingi fleiri en í fyrra
og hafa aldrei fleiri tekið þátt í
mótinu frá því að það var fyrst
haldið fyrir fáeinum árum. Að
auki kynntu nokkrir iðn- og starfs-
menntaskólar námsframboð sitt.
Inga Hlín Pálsdóttir, verkefnis-
stjóri Menntar, sem stóð að deginum
ásamt fleirum, var ánægð með
hvernig til tókst og sagði keppendur
vera það einnig. „Við völdum þennan
stað með það að markmiði að vekja
athygli almennings á iðnnámi. Þetta
er einnig liður í því að bæta ímynd
iðnnáms og leyfa fólki að sjá hvað
er að gerast í þessum bransa,“ segir
Hlín og bætir við að þetta komi ekki
síst grunnskólanemum til góða. „Hér
geta þeir séð hvað iðnnemar eru að
fást við, talað við kennara og nálgast
fræðsluefni um mismunandi nám,“
segir hún.
Keppni milli skóla og einstaklinga
Iðnnemarnir ungu kepptu bæði sín á
milli auk þess sem skólarnir kepptu
innbyrðis um hver næði besta árangr-
inum. „Það er hörð keppni, ekki síst
milli skóla. Vinir og vandamenn
koma einnig og hvetja sína menn til
dáða,“ segir Inga Hlín og bætir við að
skólarnir sýni meiri metnað við und-
irbúning keppninnar með hverju ári.
Kynjahlutföll í iðngreinum hafa ekki
mikið breyst í gegnum tíðina. Alltaf er
þó eitthvað um það að stúlkur sæki í
hefðbundnar „karlagreinar" og er Þor-
gerður Stefánsdóttir, nemi f trésmíði við
Verkmenntaskólann á Akureyri, ein þeirra.
Þrjár stúlkur eru i trésmiði í skólanum og
segir Þorgerður að pabbi hennar sé smið-
ur og það hafi haft áhrif á val hennar.
Rocky Horror
í Tjarnarbíói
Leikfélag Nemendafélags Mennta-
skólans í Kópavogi ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur í
ár heldur setur upp hinn geysivin-
sæla söngleik Rocky Horror.
Sigrún Yrja Klörudóttir, leikfé-
lagsstjóri, segir að mikill hugur hafi
verið í félögum leikfélagsins í ár.
,0kkur langað til að setja upp eitt-
hvað stórt, flott og skemmtilegt verk
í ár. Við vildum gera þetta með stæl
því að í fyrra settum við upp frekar
lítið verk,“ segir Sigrún sem telur að
þetta sé með stærstu og viðamestu
sýningum sem leikfélagið hefur sett
upp.
Sigrún segir að heilmikil vinna
liggi að baki uppfærslu sem þess-
ari og margir leggi hönd á plóginn.
„Þetta tekur alveg voðalegan tíma og
er nánast full vinna,“ segir Sigrún
og bætir við að hún hafi ekki haft
mikinn tíma til að mæta í skólann
eða sinna heimavinnu undanfarnar
vikur.
Guðmundur Rúnar Kristjánsson
leikstýrir verkinu, um tónlistar-
stjórn sér Hrafnkell Pálmason og
Dýrley Sigurðardóttir semur dans-
ana. Að öðru leyti bera nemendur
hitann og þungann af sýningunni.
Fjöldi leikara, dansara og tónlistar-
manna tekur þátt í uppfærslunni
að ógleymdum þeim sem koma
að henni með öðrum hætti svo
sem leikmyndahönnuðum og
ljósameisturum.
Leikritið er sýnt í Tjarnarbíói
og verða sýningar átta talsins. Sig-
rún segir að þeim verði hugsanlega
fjölgað ef vel gengur. Hægt er að
nálgast miða á sýninguna með því
að hringja í Sigrúnu Yrju í síma 698
7085.
Katrín Ella Jónsdóttir og Torfi Guðbrandsson í hlutverkum saklausa parsins Janet og
Brad.
IMVR TVOF/YLDUR SAFNDISKUR
44 ISLENSK ALÞYÐU DANS- OG DÆGURLÖG
Hér eru samankomin lög
af hinum vel þekktu geisladiskum
Austfirskir staksteinar, Viö tónanna kliö
og Austfirskir staksteinar 2
sem allir eru ófáanlegir.
mmm