blaðið - 21.04.2006, Page 38

blaðið - 21.04.2006, Page 38
38 IFÓLK FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 blaðið SAMSTAÐA UM RANGHUGMYNDIR (slendingar eru sérstök þjóð. Hér ríkir djúpstæð samstaða um að trúa ranghugmyndum um þjóðareðlið. Þessi árátta hefur átt sér margar birtingamyndir gegnum tíðina og virðist endurfæðast reglulega sem holdgervingur þess sem þjóðin er upptekin af hverju sinni. Nýjasta dæmið um þetta er hin svokallaða „íslenska útrás" sem hefur falist í stórfelldum fjárfestingum (slendinga erlendis hvort sem er gegnum beinar fjárfestingar eða skuldsettar yfirtökur. (slenskir fjölmiðlar, stjórnmálamenn og álitsgjafar voru snöggir að útskýra ofvirkni útrásarvíkinganna. Ástæðan fyrir hinum miklu fjárfestingum erlendis var hið einstaka þjóðareðli sem einkennist af dugnaði, skarpri hugsun og áhættusækni og gerir það að verkum að lélegri og svifaseinni þjóðir standast (slendingum ekki að sporði á alþjóðlegum mörkuðum. Þjóðin fagnaði yfirtöku á breskri títuprjónaverksmiðju eins og hjólhestaspyrnunni hans Búbba á móti Austur-Þjóðverjum um árið. Hver fjárfesting endurspeglaði hið einstaka þjóðareðli. (þessari múgsefjun felst sú sérstaka hugmynd að fjármagn sé ekki nafnlaust og aíþjóðlegt í eðli sínu, eins og flestir fræðimenn halda fram - til er eitthvað sem heitir þjóðlegt fjármagn: Hið íslenska fjármagn. Engum datt i hug að ástæðan fyrir útrásinni var að íslenskir fjárfestar voru mjög kræfir í því að notfæra sér lága vexti á fjármagnsmörkuðum. Slíkt hefur ekkert með þjóðareðli að gera. Og þegar að erlendar greiningadeildir bentu á þá augljósu staðreynd að hækkandi vextir á alþjóðafjármálamörkuðum gætu hamlað útrásinni var hið islenska viðmót: illkvittni, öfund og skilningsleysi. Mátti skiljast á íslenskum fjölmiðlum að efasemdir um hið íslenska hagkerfi væri fyrst og fremst sprottiðaf því að dönskum blaðamönnum var tekið að leiðast að pönkast í múslimum og sneru sér því alfarið að „íslensku útrásarvíkingunum". Ömurlegt var að heyra stjórnmálamenn enduróma þessa þvælu. Vonandi er þjóðin búin að jafna sig á ranghugmyndinni um séríslenskt eðli þeirra sem eru í raun ekkert annað en alþjóðlegir fjárfestar, sem hafa lítið með land og þjóð að gera. Vonandi verður hægt að afhjúpa tengda ranghugmynd um íslenska listamenn sem allra fyrst. Eriko Fujikawa, starfsmaður Panasonic, sýnir heimsis stærsta plasmasjónvarp á FineTech sýningunni í Japan í gær. Sjónvarpið er hvorki meira né minna en 103 tommur. Michael Jackson snýr aftur Michael Jackson hefur skrifað undir umboðssamning við enska tónlistar- mógúlinn Guy Holmes. Jackson hef- ur einnig skrifað undir plötusamn- ing við eigið útgáfufyrirtæki, Two Seas Records, sem hann stofnaði ásamt góðvini sínum Sheik Abdulla Hamad Al-Khalifa, sem er prinsinn í Mið-Austurríkinu Bahrain og hef- ur skotið skjólhúsi yfir poppkóng- inn síðustu mánuði. Jackson vinnur nú að nýrri breið- skífu sem hann stefnir á að gefa út seint á næsta ári. „Ég er mjög spennt- ur fyrir þessu nýja ævintýri. Eg nýt þess að vera kominn aftur í hljóðver að semja tónlist." Guy Holmes mun vinna að breið- skífunni með Jackson og sjá um við- skiptalegu hliðina á útgáfunni. eftir Jim Unger Hefurðu nokkuð séð ísinn minn? HEYRST HEFUR... Pað kom ýmsum á óvart að Gísli S. Einarsson, fyrrver- andi þingmaður Alþýðuflokksins og síðar Samfylk- ingarinnar.skyldi taka sæti á lista sjálfstæðismanna á Akranesi, sem óháður þó. Burtséð frá áhrifum þessa á lókalpólitík á Skaganum velta stjórnmálaspekúlantar því fyrir sér hvort taka megi þessi tíðindi til marks um að þolin- mæði krata í Samfylkingunni sé að bresta. Sem kunnugt er hafa ýmsir þeirra haft á orði að Samfylkingin hafi færst of langt til vinstri í tíð Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur, núverandi formanns, og þykir jafnaðar- menn helst til áhrifalausir í Sam- fylkingunni - Jafnaðarmanna- flokki Islands... Pessa dagana er þjarmað að Kristjáni Þór Júlíussyni, bæjarstjóra sjálfstæðismanna á Akureyri, um að hann gefi metnað sinn upp. Þykjast margir sjá það í hendi sér að hann stefni á þing- framboð að ári þó hann leiði lista Sjálfstæðisflokksins í bæjar- stjórnarkosningunum nú. Sam- kvæmt skoðanakönnun NFS er meirihluti bæjarstjórnar fallinn og því ekkert gefið um að Stjáni blái haldi bæjarstjóraembætt- inu. Hann hefur ekkert viljað segja um framtíðina að þessu leyti en spakir menn nyrðra telja að honum verði ekki stætt á því öllu lengur; kjósendur eigi heimtingu á að vita hvort þeir séu að kjósa bæjarstjórann til eins árs eða fjögurra. Hitt er svo annað mál - eins og sagan sýnir - að slík svör reynast stundum haldlítil... Eins og sagt var frá á þessum stað um daginn lýsti Stein- unnV.Óskarsdóttir.borgarstjóri í Reykjavík, því yfir á dögunum að hún vildi ekki fara í „pissu- keppni“ við Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóra í Kópavogi, og lái henni hver sem vill. Á þriðjudag hófu hins vegar bæjarstjórarnir á höfuðborgarsvæðinu sameig- inlegt vorhreinsunarátak og tóku til hendinni allir sem einn í garðinum að Goðalandi n í Fossvogi, þar sem vísir menn hafa reiknað að landfræðileg miðja höfuðborgarsvæðisins liggi. Gunnar I. Birgisson var þó eitthvað seinn fyrir og sagðist hafa átt í erfiðleikum með að finna garðinn. Hann vann samt skjótt bug á þeim vanda: „En síðan rann ég bara á lyktina þar sem Steinunn hafði pissað...“ Dagur B. Eggertsson og fé- lagar hans á lista Samfylk- ingarinnar til borgarstjórnar Reykjavikur hófu kosningabar- áttu sína fyrir alvöru á sumar- daginn fyrsta og óku m.a. um bæ- inn á glæsilega merktum tveggja hæða strætis- vagni og buðu bæjarbúum heitt kaffi og kakó. Samsæriskenningasmiðirnir voru þó ekld lengi að sjá í gegn- um þetta, og vísuðu til þess að forysta R-listans og Samfylking- arinnar hefði lengi átt hauka í horni hjá Baugi. Sáu þeir í hendi sér að engin tilviljun væri að forkólfar Samfylkingarinnar blússuðu um bæinn á strætis- vagni frá Og Vodafone...

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.