blaðið - 10.06.2006, Page 1
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
■ ERLENT
Sigursæll útlagi
Alan Garcia, forseti Perú, er nú
haldinn í tölu pólitískra krafta-
verkamanna.
..smjatt, smjatt éfkjammsl
16“ pizza
með 2 áleggstegundum *
og brauðstangir að auki á I >fa%/U
■ VIÐTAL
Hundruð íslend-
inga fá árlega
heilablóðfall
Sjúkdómurinn
erekki bund-
inn við þá sem
eldri eru, ungt
fólkfær líka
heilablóðfall.
| SÍÐA28
■ ÍÞRÓTTIR
Margvíslegur
fróðleikur um
HM-leiki dagsins
■ FRETTASKYRING
Stríð og myndir
Ljósmyndirog hreyfimyndir
hafa frá upphafi reynst áhrifa-
mikið tæki í stríði. Yfirvöld hafa
notað og nota Ijósmyndir í
áróðursskyni en jafnframt hafa
myndir af vettvangi hroðalegra
grimmdarverka oft haft gríð-
arleg áhrif á almenningsálitið
og grafið undan stuðningi við
stríðsrekstur. Nægir í því efni að
minna á Víetnam-stríðið.
Fjallað er um stríð og myndir í
Blaðinu í dag.
| SÍÐA12
■ SAGA
Aflvaki hins illa
Bandarísku leyniþjónustunni,
CIA, var kunnugt um felustað
þýska nasistans og stríðs-
glæpamannsins Adolfs Eich-
manns í tvö ár áður en hann
var handtekinn. Eichmann
var í hópi valdamestu manna
Þriðja ríkisins, helsti hugmynda-
smiður helfararinn-
gegn gyðingum og
bar ábyrgð á fjölda-
morðum í seinni
heimsstyrjöld
inni. Saga
Eichmanns.
er rifjuð upp
í Blaðinu í
dag.
| SÍÐA32
■ VÍSINDI
Margvísleg
áhrif Mozarts
Tónlist Wolfgangs Amadeus
Mozart hefur löngum haft mikil
tilfinningaleg áhrif á fólk. Því
hefur verið haldið fram með vís-
indalegum rökum að afrakstur
anda hans bæti stærðfræðigáfu
manna. Nú
segja vísinda-
menn í Brasilíu
að hún geri
miklu meira
en það. Hún
virðist bæta
sjónina!
| SÍÐA 16
Nagaður af sjálísásökunum
.
Mikael Torfason ræðir um nýtt starf, tímann
á DV og ritstörfin í viðtali við Kolbrúnu Berg-
þórsdóttur. | síður 22-23
BlalWFMi
Verða af 3.000 ferðamönnum
vegna lélegra samgangna
Ferðamannaþjónusta í Vestmannaeyjum verður fyrir gríðarlegum tekjumissi vegna ófull-
nægjandi samgangna á milli lands og Eyja. Ástandið heftir einnig uppbyggingu.
Slæmar samgöngur til Vestmanna-
eyja hafa alvarleg áhrif á þá ferða-
mannaþjónustu sem þar er í boði
og hamlar uppbygginu á því sviði.
Kristín Jóhannsdóttir, ferðamálafull-
trúi Vestmannaeyja, segir ástandið
alvarlegt; hápunktur ferðamanna-
tímans frá júní til ágúst nýtist Vest-
mannaeyingum engan veginn vegna
þess hvernig samgöngum sé háttað.
Flugfélagið Landsflug flýgur á
milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja
þrisvar á dag á Dornier-flugvélum
sem taka aðeins 19 farþega. Fyrir
fjórum árum var flogið á Fokker-flug-
vélum en þær taka 50 farþega.
Gríðarlegttap
„Við erum að missa tæplega þúsund
ferðamenn yfir einn mánuð,“ segir
Kristín en yfir sumartímann verða
Vestmannaeyingar af tæplega þrjú
þúsund ferðamönnum samkvæmt
grófum útreikningum hennar.
Hún segir að ferðamannaþjón-
ustan verði fyrir gríðarlegum tekju-
missi af þessum sökum. Að auki
hefti slakar samgöngur alla uppbygg-
ingu á sviði ferðamannaþjónustu í
Vestmannaeyjum.
Komstekkitil Vestmannaeyja
„Ferðamál eru atvinnumál,“ segir
Kristín og gagnrýnir harðlega að
ekki sé fjölgað flugferðum yfir sum-
artímann þegar ferðamannastraum-
urinn er hvað mestur. Hún segir að
ekki nægi að hafa eingöngu ferjuna
Herjólf sem þó þjóni sínu hlutverki
með sóma því ferðamannaþjónusta
nútímans kalli á hraðari og greiðari
samgöngur.
Hún segir ástandið næstum grát-
broslegt og getur þess að sjálf hafi
hún ekki komist til Vestmannaeyja í
gær þar sem sæti var ekki fáanlegt í
Dornier-flugvélinni.
Flöskuháls
Elliði Vignisson, nýkjörinn bæjar-
stjóri Vestmannaeyja, tekur í sama
streng og Kristín og segir flösku-
háls hafa myndast í samgöngum frá
Reykjavík til Vestmannaeyja. Hann
segir Landsflug vera rekið á markaðs-
forsendum og því sé erfitt fyrir hið op-
inbera að koma nálægt ákvörðunum
um flugið.
„Við höfum kannað beinan þátt bæj-
arins fjárhagslega að fluginu," segir
Elliði en lítið hefur þokast í þeim
málum.
Elliði segir að Vestmannaeyjar hafi
möguleika á því að verða einn fjöl-
sóttasti ferðamannastaður Islands en
lítið gerist batni samgöngur ekki.
Sorgleg staða
Á síðasta ári komu hundruð þúsunda
ferðamanna til íslands en aðeins
brotabrot af þeim hélt til Vestmanna-
eyja, að sögn Elliða. Hann kveður
mikinn uppgang einkenna lífið í
Vestmannaeyjum og þykir sorglegt
að það eina sem standi í vegi fyrir að
ferðamannaþjónusta nái að blómstra
séu slæmar samgöngur.
Ekki náðist í framkvæmdastjóra
Landsflugs þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir.
VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu-
dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu.
+ Staögreiðsluverð
+ Lægri vextir
+ Lægri kostnaður
+ Til ailt að 36 mánaða
+ Framlengdur ábyrgðartími
+ Flutningstrygging
+ Vildarpunktar
Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða f slma S25 2000
Spurðu
11 ■■1111
V/SA
\mm M m m
HAGSTÆÐAR AFBORGANIR
128. tölublað 2. árgangur
laugardagur
10. júni 2006