blaðið - 10.06.2006, Side 6
6 I FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöið
Abu Musab al-Zarqawi
Harmar dauða
al-Zarqawis
mbl.is | Mullah Mohammad
Omar, leiðtogi talibana í Afg-
anistan, hefur sent frá sér yfir-
lýsingu þar sem hann harmar
dauða Abu Musab al-Zarqawi,
leiðtoga al-Qaeda samtakanna
í frak. „Ég og allir múslímar í
afgönsku uppreisninni erum
hryggir vegna píslarvættis Abu
Musab al-Zarqawi,“ segir m.a. í
yfirlýsingunni sem lesin var upp
í síma af Mohammad Hanif, tals-
manni talibana.
„Píslarvætti Zarqawis mun þó
ekki veikja írösku andspyrnuna
sem er þjóðarandspyrna. Hvaða
ungmenni sem er getur orðið
Zarqawi. Fram til dagsins í dag
hefur hann þjálfað þúsundir
ungmenna til þessarar baráttu.
Hann vildi mynda sterka and-
spyrnu gegn Bandaríkjunum
og það hefur hann gert. Þótt
Zarqawi sé ekki hér, hefur
hann skilið eftir sig þúsundir
ungmenna sem munu efla and-
spyrnuna." Zarqawi féll ásamt
nokkrum samstarfsmönnum
sínum í miklum sprengju-
árásum bandariskra og íraskra
hermanna á hús sem hann
dvaldi í á miðvikudag.
Sjaldgæft er að Mullah Omar
sendi frá sér yfirlýsingar en
hann hefur verið í felum frá því
stjórn talibana í Afganistan var
hrakin frá völdum árið 2001.
Bílakaup ekki
að aukast
íslendingar fluttu inn vörur
fyrir tæpa 36 milljarða í síðasta
mánuði samkvæmt bráðabirgða-
tölum fjármálaráðuneytisins
um innheimtu virðisaukaskatts.
Þetta er aukning um rúma 8
milljarða milli mánaða.
f hálf fimm fréttum KB banka
í gær segir að athygli vekji að
talsvert hafi hægt á innflutningi
bifreiða.
„Bílainnflutningur er jafnan
kröftugur í upphafi sumars en í
maí jókst innflutningur á bílum
nánast ekkert sem er heldur
óvenjulegt. Ef litið er á tölur
um nýskráningar á bílum í maí
gefa þær til kynna að bílakaup
almennings hafi ekki aukist frá
sama tíma í fyrra. Þessa þróun
má væntanlega rekja beint til
veikingar krónunnar. f mars tók
gengi krónunnar að síga nokkuð
hratt en það sem innflutningur
í þeim mánuði er afgreiddur á
tollgengi fyrri mánaðar hafa
landsmenn nýtt tækifærið áður
en tollgengið hækkaði og aukið
innflutning þann mánuðinn
en ekki aukið hann í apríl og
maí eins og vant er,“ segir í hálf
fimm fréttum KB banka.
Ekki talað um fótbolta inni á þingi
HM vertíðin hófst í gær með pompi og prakt. íslenskir fótboltaunnendur réðu vart við sig
af kæti þegar fyrsti leikurinn hófst. Blaðið tók nokkra þekkta fótboltaspekinga tali.
„Ég held með Trinidad og Tobago,'
segir Stefán Pálsson, formaður
Herstöðvarandstæðinga og
einlægur áhugamaður
um fótboltaliðið Luton.
Stefán á kornabarn og
segir hann að svo
lengi sem hann
hefurofan afbarn-
inuþámegihann
horfa á leikina.
Hann bætir
við að konan
hans geri sér
sennilega ekki
grein fyrir því
hvað þetta eru
margir leikir,
„hún heldur að
þetta séu bara
tíu leikir,“ segir
Stefán hlæjandi.
Stefán segist ekki
leggja í vana sinn að
halda með smáliðum
því hann studdi Frakka
Katrín Júlíusdóttir
dyggilega árið 1998 þegar
þeir urðu heimsmeistarar. Hann seg-
ist hins vegar ekki geta fyrirgefið
þeim frammistöðuna á síðasta móti
og því sé hann nokkuð munaðarlaus
varðandi lið.
„Ég legg það reyndar í vana minn
að halda með landsliðum sem annað
hvort innihalda leikmenn frá Luton
eða Fram,“ segir hann en einn leik-
maður Luton er frá Trinidad.
Steraréttur á Players
Egill Einarsson, eða Gilzenegger eins
og hann er oftast kallaður, segir HM
vera heilaga stund. „Maður læsir sig
inni og slekkur á símanum," segir
hann um fótboltaveisluna.
Egill segir að hann haldi alltaf með
þremur liðum ef hin skyldu missa
allt niður um sig í keppninni.
„Eftir að Rooney er kominn
aftur inn í enska landsliðið þá
heldur maður með þeim,“
hann og bætir við
bann sé líka mikið
fyrir Þjóðverjana.
Egill segir að hann
fari alltaf á Players
að horfa á leikina
og það sé einhvers
konar „ritúal“.
„Maður fær sér
einn Gilz að borða
en sá réttur er
stundum kallaður
sterarétturinn," segir
Egill en Players-menn
eru búnir að skíra einn
rétt i höfðuðið á Agli.
Á öllum stórmótum
sem þessum koma alltaf
upp miðlungsgóð lið sem ná
til fólksins og veðjar Egill á að
Ghana eigi eftir að verða næsta
,spútnik“-liðið eins og hann orðar
það.
Egill Einarsson
Stefán Páisson
„Þetta verður heljarinnar
veisla,“segir Egill og bætir við hann
voni bara að Brasilía vinni ekki.
Grillveisla hjá þingmanni
Katrín Júliusdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, er harður stuðnings-
maður Þjóðverja og segist aldrei hafa
haldið með öðru liði.
„Ég held reyndar líka með Argent-
ínu en það er bara af tilfinningasemi,“
segir hún og útskýrir að það sé vegna
bernskuminninga um Diego Mar-
adona. Katrín segist ekki vita hvort
fleiri þingkonur séu áhugamenn um
fótbolta eins og hún, „við tölum alla-
vega ekki um fótbolta á þingi,“ segir
hún.
Katrín ætlar að halda grillveislu
og býður æskuvini sínum og föður
í fiskispjót og grillað grænmeti. Að-
spurð hvort grænmeti og fiskur sé
viðeigandi HM matur segir hún:
„Kannski ég grilli eina lærisneið fýrir
þá hörðustu.“
Super Puma-þyrla
verður tekin á leigu
Nú er ljóst að ein þyrla bætist í þyrlu-
flota Landhelgisgæslunnar þann 1.
október næstkomandi.
í gær undirrituðu Björn Bjarna-
son, dóms- og kirkjumálaráðherra,
og Georg Kr. Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, samning við
forsvarsmenn fyrirtækisins Air Lift
um leigu á Super Puma þyrlu frá
fyrirtækinu. Verður hún leigð í eitt
ár með möguleika á framlengingu.
Leigan er 14 milljónir króna á mán-
uði auk 150 þúsund króna greiðslu
fyrir hvern floginn flugtíma. Gert
er ráð fýrir að þyrlan muni kosta
landsmenn um 210 milljónir króna
á næsta ári.
Super Puma þyrla
Skrlfað var undir leigusamning fyrir eina þyrlu í gær. Gert er ráð fyrir að leiga á annarri
þyrlu verði frágengin á næstu dögum.
Góð reynsla
1 tilkynningu frá samgönguráðu-
neytinu í gær kemur fram að Land-
helgisgæslan hafi um árabil verið 1
talsverðum samskiptum við Air Lift
og hafi þyrluflugmenn Gæslunnar
meðal annars starfað á Svalbarða og
á hamfarasvæðunum í Pakistan á
vegum fyrirtækisins, sem og í fríum
sínum til að öðlast meiri reynslu.
Tvær þyrlur keyptar á næsta ári
Þrátt fyrir að gengið hafi verið frá
samningnum ætla stjórnvöld ekki
að láta þar við sitja því fyrirhugað
er að ganga frá leigusamningi um
aðra þyrlu fyrir næstu mánaðamót.
Þá kynnti Björn Bjarnason dóms-og
kirkjumálaráðherra í ræðu sinni í
tilefni undirritunarinnar að það sé
stefna ríkisstjórnarinnar að kaupa
tvær sambærilegar þyrlur á næsta
ári. Auk þess er fyrirhugað að end-
urnýja flugvél Landhelgisgæslunnar
og varðskip á næstunni eins og áður
hefur verið kynnt.
Fjorir
handteknir
Fjórir menn voru handteknir
á Ráðhústorginu á Akureyri í
fyrrinótt þegar þeir veittust að
lögreglumönnum.
Lögreglan hafði afskipti af
manni sem var að skemma tré
við Ráðhústorgið, vinum manns-
ins hugnaðist ekki handtaka
hans og veittust að lögreglu í
þeim tilgangi að koma honum
undan handtöku. Þurftu lögreglu-
mennirnir að grípa til piparúða
svo þeir gætu yfirbugað þá. Gistu
mennirnir allir í fangageymslu
og mega búast við þvi að verða
kærðir fyrir brot gegn valdstjórn.
Skuldabréf
fyrir fimm
milljarða
Gefin voru út erlend skuldabréf
í íslenskum krónum fyrir 5 millj-
arða í síðasta mánuði samkvæmt
Markaðsupplýsingum Lánasýslu
ríkisins. Heildarútgáfa erlendra
skuldabréfa í íslenskum krónum
nemur nú um 223 milljörðum og
þar af koma um 50 milljarðar til
endurgreiðslu næsta haust.
Að mati Lánasýslu ríkisins
hefur jákvæður vaxtamunur
ásamt veikingu krónunnar gert
útgáfur skuldabréfa í íslenskum
krónum eftirsóknarverðar. Búist
er við því að flökt krónunnar að
undanförnu muni þó valda því
að fjárfestar haldi að sér höndum
a.m.k. þangað til gengið hefur
náð meiri stöðugleika.