blaðið - 10.06.2006, Síða 20
20 I FERÐALÖG
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaóiö
Tjaldvagnabyltingin
Ómar Níelsson, framkvæmdarstjóri Combi Camp fsland, hefur í nógu að snúast þessa dagana.
Þegar ekið er inn götu í úthverfi
höfuðborgarsvæðisins er ekki
óalgengt að sjá hvíta kassa í inn-
keyrslum eins og borgarheyrúllur.
Tjaldvagnar hafa vaxið gríðarlega
í vinsældum og liggur við að fólk
eigi erfitt með að ákveða hvort
það eigi að fjárfesta í tjaldi eða
tjaldvagni. Eðli málsins sam-
kvæmt er tjaldvagn mun meira
fyrirtæki en nýr slíkur kostar um
6oo þúsund. Sumarið er komið
og landsmenn flykkjast um alla
mögulega og ómögulega vegi með
litla íbúð í eftirdragi.
Vinsæl fyrstu kaup
Combi Camp tjaldvagnar hafa verið
einna mest seldu tjaldvagnarnir á
fslandi um þó nokkurt skeið. Tölu-
verð reynsla er komin á vagnana og
þeir hafa verið fluttir inn til lands-
ins frá árinu 1967. ómar Níelsson,
framkvæmdarstjóri Combi Camp
ísland, segir að tjaldvagnar hafi
sótt á undanfarin ár og séu vinsælir
sem fyrstu kaup þeirra sem sætta
sig ekki við að dvelja í niðurhæluðu
tjaldi. „Við sérhæfum okkur í inn-
flutningi og sölu á Combi Camp
tjaldvögnum og síðan erum við með
tjaldvagnaleigu. Við leigjum til að
mynda stóru verkalýðsfelögunum,
VR og Eflingu, vagna og þau leigja
síðan sínum félagsmönnum. Einnig
erum við með viðgerðarþjónustu á
þessum vögnum og við höfum ný-
lega bætt við okkur vetrargeymslu
þar sem við bjóðum upp á viðhald
og viðgerð meðan tjaldvagninn er í
geymslu. Þannig er allt tilbúið fyrir
næsta sumar".
Ómar segir að það sé mjög algengt
að fólk byrji á að fá sér tjaldvagn
vegna þess að þeir eru einfaldir í með-
förum og vegna verðlags. Ómar segir
þó ennfremur að það sé líka algengt
að fólk kaupi tjaldvagna þegar það er
búið að koma sér myndarlega fyrir
í lífinu. Tjaldvagnar eru ódýrari en
fellihýsi út af því að það eru einfald-
ari innréttingar í tjaldvögnum og
þeir því ódýrari í framleiðslu.
Hannaðir fyrir íslenskar aðstæður
Eins og áður hefur komið fram hafa
Combi Camp tjaldvagnarnir verið
seldir á Islandi síðan árið 1967 og
grunnhugmyndin hefur alltaf verið
sú sama, að þeir séu þægilegir í með-
förum og uppsetningu. Það kemur
þá fram hjá Ómari að ísland sitji
í öðru sæti yfir þau lönd sem selja
flesta vagna. „Við höfum því töluverð
áhrif á það hvernig þeir eru smíðaðir
og vagnarnir okkar eru hannaðir
fyrir íslenskar aðstæður. Svo getum
við líka breytt þeim ef þess er óskað.
íslenskar aðstæður krefjast þess að
undirvagninn sé styrktur og það að-
allega út af vegum á hálendinu. Við
þær aðstæður skiptir miklu máli að
hafa fjöðrunina í lagi.“ Samkvæmt
Ómari er prýðileg ending á tjald-
vögnum og er fólk að koma með upp
undir 30 ára gamla vagna í yfirferð
og þeir geta gengið frá foreldrum til
barna.
Tjaldvagnaleiga
Að leigja sér tjaldvagn er vinsælt og
Ómar segir að margir byrji á því
og kaupi sér síðar sinn eigin vagn.
Combi Camp ísland er með um 70
vagna sem leigðir eru út fyrir verka-
lýðsfélög og almenning. Vagnarnir
eru leigðir út í viku í senn. Rannveig
Rögnvaldsdóttir hjá verkalýðsfélag-
inu VR segir að leiga á tjaldvögnum
hafi verið vinsæl í gegnum árin en
þó dalað að undanförnu. „Ég held
bara að allir séu að kaupa sér tjald-
vagna og þess háttar, við höfum
orðið vör við það“. Það kostar 16.500
krónur að leigja tjaldvagn í sex daga
hjá VR en félagar geta notað vara-
sjóð sinn til að greiða niður vagninn.
Fast verð til félagsmanna í Eflingu
er 12.000 krónur.
I reglugerðum kemur skýrt fram
hver heiídarþungi eftirvagns má
vera. Inn á heimasíðu Umferðar-
stofu stendur að eftirvagn má aldrei
vera þyngri en skráð er í skráning-
arskírteini dráttarbílsins, annars
vegar fyrir vagn án hemla og hins
vegar fyrir vagn með hemlum. í
mörgum eldri bílum eru þessar
þyngdir ekki skráðar í skráningar-
skírteini og gildir þá reglan að eftir-
vagn án hemla má ekki vera þyngri
en helmingur af eigin þyngd bílsins
sem dregur. Arna Björk Jónsdóttir,
starfsmaður Umferðarstofu, greinir
frá því að lögreglulið á suðvestur-
horninu hafi verið með sérstakt
eftirlit um hvitasunnuhelgina með
eftirvögnum. Það eftirlit leiddi í
ljós að flestir fylgdu þessum reglum
samviskusamlega.
jon@bladid.net
Sumarhúsið
°9 gnrdurinn
^nnunil,|,gppni^|nN
Hringdu núna! - Áskriftarsími 586 8
5
Allf fyrir öaró- oí sumarhúsaeiaendur
ert i>ú
HIPPAUUSÍ (,Hoi)\ Hlivs
HAKMTJÓKsnÓTm v
*f4.IKIIS1.\KO\\ t IMKlldLy
J ''i'iniMimmnH
Jgjg^l tiARDAÍ'Vn (K ,UCRIJ
MKVUUU in n, , ___ .
«•/< VVKl ll (>(, Kl ItlUIUH
'VÍ'l HVEK HS LISI
gróandinn
iLjuliUfHA
Árgangur 2006 af
• tímaritinu Gróandinn
á a&eins kr. 2.130.-
: Þrjú blöð á ári, sé greitt með VISA/MASTERCARD.
: Áskriftin gildir í eitt ár og endurnýjast þá sjálfkrafa
sé henni ekki sagt upp fyrir þann tíma.
Önnur bókin í bókaflokknum
Við ræktum er komin út. Hún
fjallar um 53 tegundir lauftrjáa
sem geta náð 5 m hæð hér á
landi, ræktun þeirra og þrif.
Bókin býðst í áskrift á kr 2.450.- miðað við að greitt sé með
VISA/MASTERCARD. Verð í verslunum kr. 2.900
Alhliða fróbleikur fyrir áhugafólk um ræktun.
Tímaritiö Sumarhúsib og garburinn
Tímaritib Gróandinn
Lauftré á íslandi og Garburinn allt árib
'ú frábær áskriftartilboð
www.rit.is
Bókaflokkurinn „Vib ræktum"
bók nr. 2, Lauftré á íslandi
Tilbob abeins kr. 2.450.-
Sé greitt með VISA/MASTERCARD.
Áskriftin gildir fyrir hverja bók og endurnýjast
sjálfkrafa sé henni ekki sagt upp.
Nýir áskrifendur tímaritanna
fá a& gjöf bókina Gar&urinn
allt ári&, a& andvir&i kr. 2.450
og geisladisk með efni eftir
Stanislas Bohic gar&hönnu&.
Argangur 2006 af tímaritinu
Sumarhúsib og garburinn
á abeins kr. 3.550.-
Fimm blöb á ári, sé greitt meb VISA/MASTERCARD.
Áskriftin gildir í eitt ár og endurnýjast þá sjálfkrafa
sé henni ekki sagt upp fyrir þann tíma.
Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum okkar www.rit.is eða með því að hringja í síma 586 8005.
Sumarhúsi&
og garðurinn
Sumarhúsib og gar&urinn ehf.
Síbumúla 15, 108 Reykjavík
Sími 586 8005 • www.rit.is