blaðið

Ulloq

blaðið - 10.06.2006, Qupperneq 22

blaðið - 10.06.2006, Qupperneq 22
22 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaðió BMii/Frikki ,Ég var spurður að því á RÚV um daginn hvort það yrðu einhverjir DV taktar í útgáfunni sem er að vissu leyti fáránleg spurning vegna þess að allir sem hafa unnið í fjölmiðlum, nema þeir sem hafa verið æviráðnir á Mogganum eða RÚV, hafa starfað á fleiri en einum miðh þar sem þeir hafa þurft að sveigja sig að mismun- andi formi og ritstjórnarstefnu. Þegar maður vinnur á Fréttablaðinu vinnur maður eins og Fréttablaðið kallar á, þegar maður vinnur á DV starfar maður samkvæmt ritstjórnarstefnu þess blaðs og þegar maður vinnur á Fróða aðlagar maður sig að stefnu útgáfunnar," segir Mikael Torfason sem nýlega var ráðinn aðalritstjóri tímaritaútgáfu Fróða, auk þess sem hann er ritstjóri Séð og heyrt. „I augnablikinu er tilhneigingin í fjölmiðlum sú að ná til allra og gera sem minnst fyrir sem flesta. Menn spyrja sig: „Hversu mörg ein- tök erum við að gefa út. Eru þetta too.ooo eintök? Bravó!“ Og svo er klappað. Menn verða að hugsa um gæði og það eru gefnar út gæða- vörur hjá Fróða: Gestgjafinn, Mann- líf, Nýtt líf, Hús og híbýli, Vikan og Séð og heyrt. Ég sé bara möguleika hjá Fróða. Starfsfólkið er pottþétt lið sem hefur haldið tryggð við tíma- ritin gegnum hremmingar. Nú er tækifæri til að spyrna sér upp. Þótt Fróði hafi átt í erfiðleikum undan- farið þá er það nokkuð sem er auð- velt að laga. I hverri viku eru þessi tímarit vinsælustu blöð landsins. Fólk kaupir þau. Það kemur fólki á 365 á óvart hversu vel tímaritin hjá Fróða seljast meðan þau seljast ekki hjá þeim.“ Ævintýrin með Gunnari Smára Þú varst í útrásarverkefni í Dan- mörku ásamt Gunnari Smára Egils- syni og vannst við uppbyggingu á dönsku fríblaði. Afhverju hœttirðu íþeirri vinnu? „Undanfarið hálft ár hef ég búið I ferðatösku, flogið út til Dan- merkur á mánudagsmorgnum og heim á föstudagskvöldum. Þetta var Iýjandi fyrir fjölskyldulífið og við hjónin eigum von á barni í ág- úst. Vitanlega var gaman að ráða danska blaðamenn og taka þátt í að hanna nýtt blað í Danmörku. Þetta er frábært verkefni og verður án efa glimrandi vel heppnað. En ég hef bara engan sérstakan áhuga á því hvað Danir eru að gera. Eg hef miklu meiri áhuga á því hvað gerist á íslandi. Þetta minnir mig dálítið á það þegar ég var að gefa út bækur erlendis. Ég var kannski í upplestrarferð í Þýskalandi og las upp úr bókinni og bugsaði svo með sjálfum mér: „Mér er alveg sama hvort þessu fólki líkar við bæk- urnar mínar eða ekki.“ Það skiptir mig meira máli að fólk I Breiðholti, Grafarvoginum eða Vesturbænum kaupi bækur mínar og lesi þær. Það er mitt fólk.“ Þú hefur búið í Danmörku, þetta útrásarstarf hefði átt að henta þér ágætlega. 99.................... Nú er Fréttablaðið orðið að risa. Það hentar mér ekki að vinna þar afþví að það er ekki lengur gaman." „Ég bjó í Danmörku í þrjú ár. Ég vildi prófa að búa erlendis og vera rithöfundur í útlöndum, taka mér frí frá íslensku samfélagi og gera eitthvað annað. En ég vil ekki flytja þangað aftur með fjölskylduna. Eg vissi að ég væri þarna tímabundið og mér fannst gaman að upplifa danskt samfélag þar sem fólk lifir í sinu þægilega öryggi þar sem engu máli skiptir hvort það missir vinnuna því það fær atvinnuleysisbætur sem eru jafnvel hærri en launin. Við Islend- ingar lifum harðara lífi, vöknum eld- snemma og fórum í vinnu og höm- umst þar. Við erum hörkuþjóð. Ég myndi alltaf velja hörkuna fremur en að hafa það kósi í Danmörku. Svo er sumt við Dani óþolandi. Þeir eru með þjóðernisrembing og allt sem þeir segja um íslenska viðskipta- menn er tóm vitleysa." Hefur slitnað upp úr vináttu þinni við Gunnar Smára? „Nei, ég efast um að það muni nokk- urn tímann slitna upp úr vináttu okkar. Það var sársaukafull ákvörðun fyrir mig persónulega að hætta að vinna með honum. Gunnar Smári er brilljant maður sem ég vann með í tíu ár. Ég tók þátt í ævintýrum hans, lærði margt mikilvægt af honum og öðlaðist mikla reynslu. Hann er fyrst og fremst heiðarlegur maður, nánast trúarlega heiðarlegur, og það kann ég vel að meta. Hann er sniðugur og er óhræddur við að prófa nýjar hug- myndir. Það er ekki hægt að vinna með skemmtilegri manni en honum. Gunnar Smári er forstjóri stórfyr- irtækis og meiri business maður en fjölmiðlamaður. Mér er alveg sama um big business í útlöndum. Eg óska honum bara til hamingju ef hann kaupir sér prentsmiðju í útlöndum. Mig langar ekkert í prentsmiðju í útlöndum. Útrásin er fín fyrir þá sem standa í henni og hafa áhuga á henni en méi finnst Helgi í Góu vera merkilegasti businessmaður lands- ins. Og sömuleiðis frændur mínir í Grundarfirði sem reka þar sjávarút- vegsfyrirtæki. Þeir eru hörkukallar sem hækkuðu laun starfsmanna um tíu prósent á sínum tima þegar öll önnur fyrirtæki lækkuðu launin. Ég ber meiri virðingu fyrir þessum businessmönnum en þeim sem eru í útrásinni." Giíman við risann Þú sœkir ekkert sérstaklega í öryggi, afhverju ekki? „Það er til hópur af fjölmiðlafólki sem hefur listamannselement í sér. Þetta fólk forðast jötuna. Það er bara þannig gert að það vill vera í skap- andi vinnu á stað þar sem nýjum hug- myndum er tekið fagnandi. Þegar ég byrjaði að vinna í fjölmiðlum skiptist fjölmiðlalandslagið þannig að annað hvort vannstu hjá Mogg- anum og RÚV eða hjá „hinurn". Mér hefur fundist fjölmiðlarnir betri hjá „hinum“. Ég myndi aldrei nenna að ritstýra minningargreinum hjá Morgunblaðinu. Ég vil vera í uppbyggingarstarfi. Það er miklu skemmtilegra að vera á fjölmiðlum þar sem eru endalausir möguleikar fremur en að vera á fjöl- miðlum sem eru búnir að fullnýta alla möguleika sína. Fréttablaðið verður ekkert stærra. Þar geta menn varla gert neitt nýtt. Ég hef ekki lengur áhuga á að vera þar. Það var gaman á Fréttablaðinu þegar við unnum þar, ég, þú, Reynir Trausta- son, Jakob Bjarnar, Gunnar Smári

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.