blaðið - 10.06.2006, Síða 23
blaðið LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006
VIDTALI 23
og allt liðið. Þá var verið að glíma
við risana, RÚV og Moggann. Frétta-
blaðið var á sínum tíma mest krefj-
andi verkefni sem hægt var að fara í.
Nú er Fréttablaðið orðið að risa. Það
hentar mér ekki að vinna þar af því
að það er ekki lengur gaman.“
DV leit ekki undan
Þú ritstýrðir DV um tíma, eins ogallir
vita. Þar er efnilegur drengur að fara
með ferilinn sinn, sögðu sumir.
„Stærðin á þessu landi er þannig
að stundum er eins og maður sé enn
í grunnskóla. Maður getur verið í
félagsskap sem aðrir telja vera vafa-
saman en ég lít alls ekki svo á. Ég
vann með góðu og skemmtilegu
fólki. Þar var nákvæmlega sama
andrúmsloft og var á Fréttablaðinu
þegar ég byrjaði þar. Menn voru
fullir eldmóðs og það er mjög gef-
andi að vinna á blaði sem verið er að
byggjaupp.
DV var engin gullnáma fyrir eig-
endur sína en salan var góð. Við
söfnuðum 3000 nýjum áskrifendum
rétt fyrir jólin. Það voru allir sáttir
við þann árangur sem blaðið var að
ná. Það var fullt af góðum hlutum í
DV og blaðið var skemmtilegt. Þarna
á við það sama og um Pressuna,
Helgarpóstinn og Eintak. Ef maður
flettir þessum blöðum þá er margt
rosalega fyndið, skemmtilegt og snið-
ugt í þeim en það var alltaf einblínt
á hversu langt þau gengu og þau
keyrðu sig svo áfram að þau lentu í
þrot - alveg eins og DV gerði.
Einhverjir höfnuðu blaðinu vegna
ritstjórnarstefnu þess. Þeir sem
flettu blaðinu sáu að þetta var blað
sem þorði meðan aðrir þögðu. Menn
voru of uppteknir af svokölluðum
skítamálum sem við vorum með
og síðasti mánuðurinn fór eins og
hann fór en þetta var öflugt blað.
Við vorum eina blaðið sem sagði frá
því þegar Davíð Oddsson hringdi
í umboðsmann Alþingis og hótaði
honum. Allir forsætisráðherrar í
Skandinavíu hefðu sagt af sér eftir
þessa frétt. Fréttin varð til þess að
setja þurfti sérstakar samskipta-
reglur milli umboðsmanns og æðstu
ráðamanna þjóðarinnar. Hvaða
annað blað á íslandi hefði birt þessa
frétt?
Áður en DV fór að fjalla um hand-
rukkara voru allir logandi hræddir
við þá. Þeir voru ekki kærðir og lög-
reglan var duglaus í aðgerðum gegn
þeim. Við birtum frétt af lögreglu-
manni í Keflavík sem þorði ekki að
kæra einn vítisengil sem hafði kýlt
hann. Hvers lags skilaboð eru það
til almennings? Eftir að við sögðum
frá málinu fékk lögreglumaðurinn
ávítur frá yfirmönnum sínum fyrir
að hafa ekki kært.
Ég fékk morðhótanir frá hand-
rukkurum. Ég fór úr húsinu mínu í
lögreglufylgd og svaf annars staðar í
bænum. Eg tók þetta samt ekki mjög
inn á mig og hugsa ekki lengur um
þessar morðhótanir. Fólk hefur lent
í verri hlutum. í minni fjölskyldu
erum við dæmigerðir fslendingar að
því leyti að við beygjum okkur ekki
fyrir einhverjum ruglukollum. Þetta
var bara frekja i ofbeldisfólki. Fólki
sem hafði vaðið uppi og barið aðra,
ráðist inn til einstaklinga og tekið þá
í gíslingu. Við sögðum frá þessum at-
burðum. Þetta var ekki skáldskapur
okkar.
DV fjallaði um lögreglumál og fólk
sem átti í verulegum vandræðum
hringdi til okkar og við hugsuðum
með okkur: „Af hverju eigum við að
líta undan? Við eigum að fjalla um
það sem gerist í þessu landi“. Og við
gerðum það. Okkur fannst það vera
skylda okkar.“
Hef gengið í gegnum naflaskoðun
Finnst þér ekki að DV hafifarið yfir
strikið, í Isafjarðarmálinu svonefnda
ogfleiri málum?
„Ég ætla ekki að dvelja mikið við
fortíðina en ég hef gengið i gegnum
naflaskoðun. Það er einhver ástæða
fyrir því að hlutir fóru úrskeiðis
á DV og við lentum upp á kant við
samfélagið. Það fór eins og það
fór. Ég hefði ekki sagt upp störfum
99.....................................................
Kannski vorum við barnslega einlægir og fórum fram afofforsi í trú
okkar. Tilgangur okkar var góður en stundum eru menn dæmdir
af mistökum sínum. Þannig erþað bara. En við vorum í einlægni
að gera það sem við töldum gott fyrir íslenskt samfélag."
nema vegna þess að ég taldi mig
hafa gert mistök. Það er bara svo ein-
falt. Hvaða sögusagnir sem kunna
að vera í gangi þá kom frumkvæðið
að uppsögn frá mér. Mér fannst ég
verða að axla ábyrgð.“
Fylgdu þessu sjálfsásakanir?
„Já, já. Ég er alltaf nagaður af sjálfs-
ásökunum en ég reyni að nota þær til
að gera betur næst.“
Hvað segirðu um ásakanir sem
heyrðust um að DV vœri fullt af
mannfyrirlitningu?
„Það er hægt að líta svo á að nei-
kvæðar fréttir einkennist af mann-
vonsku. Yfirleitt er það nú samt
þannig að í fréttum er sagt frá því
sem hefur farið úrskeiðis. Okkar ein-
læga trú var sú að við værum að gera
gagn. Við trúðum því í handrukkara-
málinu og vildum opna umræðuna
varðandi barnaníðinga - og okkur
tókst það svo sannarlega. Þetta voru
ljótir hlutir og blettur á samfélaginu.
Kannski vorum við barnslega ein-
lægir og fórum fram af offorsi í trú
okkar. Tilgangur okkar var góður en
stundum eru menn dæmdir af mis-
tökum sínum. Þannig er það bara.
En við vorum í einlægni að gera það
sem við töldum gott fyrir íslenskt
samfélag.“
Þú áttir ágœtanferil sem skáldsagna-
höfundur en hefur ekki gefið út bók í
nokkurn tíma. Ertu hœttur að skrifa
skáldsögur?
„Ég hef bara skrifað þegar mér
hefur fundist ástæða til og þótt það
gaman. Mér finnst starfið sem ég
er í núna mikils virði og afskaplega
skemmtilegt. Á Islandi eru rithöf-
undar plagaðir af Laxness hugmynd-
inni um manninn sem fórnaði öllu
til að verða stórskáld. Ég hef aldrei
haft metnað í það hlutverk. Ég hef
engan áhuga á að vinna mig upp í
að fá Islensku bókmenntaverðlaunin
eða Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs. Ég hef alltaf verið aðdá-
andi höfunda sem hafa verið þátt-
takendur í samfélaginu. Mér finnst
þeir skemmtilegri höfundar en þeir
sem einangra sig. Fjöldi rithöfunda
hefur starfað við blaðamennsku eða
kennslu. Auðvitað koma timabil
þegar lítið er að gerast í fjölmiðla-
bransanum og þá sest maður bara
niður og skrifar bók. Ég er ennþá
rithöfundur.“
Staðfastur Qölskyldumaður
Margir gera sér örugglega ekki rétta
mynd afþér. Þeir sem þekkja vita að
þú ert mjög borgaralegurþótt margir
haldi eflaust aðþú sértþað alls ekki.
„Menn gerast varla borgaralegri
en ég er. Eg fór í útilegu um síðustu
helgi með fjölskylduna og hundinn
og er að fara að flytja inn í raðhús í
Grafarvoginum. Ég er staðfastur fjöl-
skyldumaður. Ég eignaðist börn tví-
tugur og er að fara að eignast þriðja
barnið mitt.
Ég er 32 áta gamall maður sem
lítur á fjölskylduna sem háheilaga.
Ég er skilnaðarbarn. Skilnaður for-
eldra minna hafði mikil áhrif á lífs-
sýn mína. Ég var fimm ára þegar
foreldrar mínir skildu og faðir minn
skildi síðan við stjúpmóður mína
þegar ég var fimmtán ára. Mér þykir
mjög vænt um hugmyndina um sam-
heldna fjölskyldu. Mér finnst hún
skipta mestu máli í lífinu.“
kolbrun@bladid.net
wmmmmgmmgmmmmmmmmmmmmmmmmmmmgmmmmmmmmmmmgggmmmmmmmmgmmmmmgmmmmmmm^mmmmmgmmm
Full búð af nýjum vörum,
ítalskir barstólar
verð kr 12.900.-,*?**^
Mikið úrval af síökum dýnum
I /
husgagnaverslun
_ TOSCANA
SMIÐJUVEGI 2, KÓP S:587 6090
HÚSGOGNIN FAST EINNIGIHÚSOAQNAVAL, HÖFN 8:4T8 25S5