blaðið - 10.06.2006, Side 36
36 I TÍSKA
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöi6
TÍSKA
Skjöldur Eyfjörð
Um lögmál tímans og tískunnar
Það er svo merkilegt með þessa
tísku hvernig hún getur aldrei
verið kyrr á sínum stað! Hún
er í sjálfu sér eins og tíminn;
augnablikið er svo stutt að það
er varla hægt að fylgjast með
því sem gerist í núinu.
Og af hverju er þessu eins farið
með tískuna? Er það vegna þess
að við leitumst við að þróa okkur
áfram eða er það vegna þess að
manneskjunni virðist lifsins
ómögulegt að vera ánægt með það
sem hún hefur nú þegar?
Ég hef oft verið í þeirri stöðu að
mig langar í einhverja flík og get
varla verið rólegur fyrr en ég hef
fengið hana, (veit ekki hvort aðrir
kannist við þetta sama einkenni),
en svo þegar ég er búinn að fá
flíkina í hendurnar og hef gengið
í henni að einhverju ráði þá er
stundum eins og hún missi bara
máttinn og alla þá töfra sem hún
hafði á herðatrénu í búðinni.
Ekki lengur inn?
Því spyr ég sjálfan mig, er það
vegna þess að ég fékk það sem mig
langaði í og er strax farinn að leita
að næstu flík sem hefur þennan
sama.töframátt og flíkin á undan?
Er það vegna þess að hún er ekki
lengur „inn“ og í tísku?
Eða er það vegna þess að tím-
inn leið í gegnum flíkina og tók
tiskuna með sér úr henni þegar
hann smaug í gegn? Tískan gerir
jú ekki annað en að halda áfram
að flæða líkt og tíminn og hún
staldrar aldrei við í langan tima í
senn. Þetta er einfaldlega lögmál,
líkt og t.d. þyngdarlögmálið.
Árstíðirnar Qórar
Það eru fjórar tískulínur á hverju
ári; vor, sumar, haust og vetur og
allar þessar árstíðir eru svo gjör-
ólíkar hverri annarri að það er
ekki hægt að líkja þeim saman (...
eða...þetta á kannski frekar við í út-
löndum þar sem er meiri munur á
árstíðum heldur en hér).
Það sama á við um tískuna en
likt og árstíðirnar hefur tískan
sína töfra eftir því hvaða árstíð er
í gangi. Það eru endalausar breyt-
ingar á tískunni og tískustraumum,
hún heldur áfram að tifa og tikka
og á aldrei eftir að stoppa.
Þessi óþrjótandi þorsti okkar og
löngun til að halda áfram að þróa
okkur, breytast og forðast stöðnun
gerir það að verkum að tiskuhönn-
uðir, hárgreiðslufólk, förðunar-
fræðingar og fleiri munu alltaf
hafa nóg að gera við að slökkva
þorstann, en bara stutta stund í
einu, eða fram að næsta „season“
(árstíð).
Kveðja
Skjöldur
Dánar dúkkur í fiskakirkjugarði
Förðunarfræðingur,
í gærkvöldi opnaði ljósmyndasýn-
ing á Gallerí Gel við Hverfisgötu.
Listamaðurinn bak við sýning-
una heitir Steinunn Þórðardóttir
en fram til þessa hefur „strigi“
hennar aðallega verið bundinn
við andlit.
Blaðamaður spurði Steinunni um
inntak sýningarinnar. „Ég sem
„makeup artisti“ mæti venjulega á
staðinn og geri það sem mér er sagt
að gera. Eins krefjandi og skemmti-
legt og það er þá langaði mig að prófa
að snúa dæminu við. Þótt grunnhug-
myndin hefði verið mín þá fæðast
yfirleitt bestu hugmyndirnar þegar
fleiri koma saman. Þannig myndi
ég segja að lokaútkoman væri jafn
mikið komin frá ljósmyndaranum
Esther Ir og stílistanum Sunnu Dögg.
ljósmyndari og fyrirsæta í samstarfi.
Það var ofboðslega gaman að fá að hengdur upp í staðinn fyrir að vera
vinna svona verkefni frá grunni og
mjög lærdómsríkt.“
Út á hvað gengur sýningin?
„Hvað verður um leikföngin okkar
þegar við hættum að leika okkur með
þau, dúkkurnar okkar
sem við kysstum og
knúsuðum en þrosk-
uðumst svo í burtu
frá þeim? Þetta var
grunnhugmyndin að
verkinu. Við ákváðum
að taka myndirnar
þar sem verið er að
þurrka fisk og áhrifin
þegar maður kemur
þangað eru eins og frá
eins konar fiskakirkju-
garði þar sem þú ert
grafinn. Þarna var upplagt fyrir
,dúkkurnar“ okkar að hanga. Svo
ákváðum við að vinna myndirnar
þannig að þær stæðu sem listaverk
ein og sér þótt formið sé ljósmynd
og módel.“
Mynd/Esther Ir
Krúttleg og sœt hönnun
Tous opnar verslun í Smáralindinni
Jordy Querald, framkvæmdastjóri erlends markaðar Tous, Stefán Kjærnested, eigandi
verslunarinnar, og ElenaTeindes, markaðsstjóri, við opnunina á föstudag.
Um helgina opnaði ný
verslun í Smáralind-
inni en undirbúningur
opnunarinnar hefur
staðið yfir i töluverðan
tíma. Um er að ræða
alþjóðlega verslunar-
keðju sem á ættir sínar
að rekja til Spánar en
hefur á undanförnum
áratugum dreift úr sér
um heiminn.
Verslunin heitir Tous
og sérhæfir sig í fram-
leiðslu skartgripa
og ýmissa annarra
fylgihluta.
Til dæmis gera þau ElfsabetMagnúsdóttirogSigríðurÞorgeirsdóttir
töskur, penna og sólgler-
augu og eru um þessar mundir að
byrja að framleiða flíkur. Það eru
reyndar ekki aðeins fylgihlutir sem
hægt er að fá frá Tous heldur er
einnig hægt að fá þar bollastell, ilm-
vötn og margs konar snyrtivörur.
Fyrsta Tous verslunin opnaði í
Barcelona árið 1920 og þá var aðeins
um skartgripaverslun að ræða, en
nú, áttatíu og sex árum síðar eru
verslanirnar orðnar 200 í alls þrjá-
tíu löndum og fer þeim ört fjölgandi.
Sem dæmi um það er hægt að benda
á að aðeins á þessu ári er stefnt á að
opna um 45 Tous verslanir víða um
heim.
gripina. í töskunum er
hágæða leður og í raun
má segja að allt efnisval
sé fyrsta flokks. Verðið
er ekki það lægsta sem
býðst en heldur ekki það
hæsta. Verðið á silfur skartinu
eru oft hagstæð og skart-
gripirnir eru margir
hverjir mjög
skemmtilegir.
Til dæmis
er gaman að
bangsanum
sem er tákn-
rænn fyrir
hönnun Tous
- krúttleg og
sæt eða sweet
and tender
eins og það
hljómar upp á
enskuna.
Tous framleiða bollastell og
margt meira fallegt
Tous hefur verið í eigu sömu
fjölskyldunnar frá stofnun fyrir-
tækisins. Faðir núverandi eiganda
stofnaði fyrirtækið og eiginkona nú-
verandi eiganda, Rosa Tous, er aðal-
hönnuður þess í dag.
Fyrsta flokks efni
Skartgripirnir frá Tous eru ckki af
verri endanum. Hönnuðurnir nota
aðeins 18 karata gull og eðalsteina í
Agerður Ósk Jakobsdóttir, Nína Björk Gunnarsdótir og Marta Dröfn
Björnsdóttir voru ánægðar við opnun Tous
Blaíii/Steinar Hugi