blaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 46
IIW*í*C<
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaðið
46 I ÍP3RÖTTIfi
■ HM-leikir dagsins
England - Paragvæ
John Terry, Aaron Lennon og Rio Ferdinand í miklum ham á æfingu enska landsliðsins.
; fe
B-riðill
KI.13
Leikstaður:
Commerzbank-leikvangurinn í
Frankfurt.
Styrkleikalisti FIFA:
England: 10
Paragvæ: 33
Veðbankarnir:
SigurEnglandsáHM:6/1
Sigur Paragvæ á HM: 200/1
Staðreyndir um leikinn:
• Steven Gerrard verður að öllum
líkindum í byrjunarliði Englands
en hann hefur verið hrjáður af
minniháttar meiðslum í baki síð-
ustu daga.
• Roque Santa Cruz, leikmaður Bay-
ern Munchen, hefur jafnað sig af
hnémeiðslum og mun leiða sókn-
arleik Paragvæ. Jose Cardozo er
hins vegar frá vegna meiðsla.
• Wayne Rooney er nánast búinn
að jafna sig af meiðslum sínum
en verður ekki með í leiknum.
Talið er víst að hann muni leika
eitthvað með Englandi á HM.
• Peter Crouch og Michael Owen
munu byrja í framlínu Englands.
• England og Paragvæ hafa mæst
tvisvar áður. England sigraði
Paragvæ 3-0 í 16-liða úrslitum
HM1986 og 4-0 í æfingaleik fyrir
fjórum árum.
• Paragvæ hefur dottið út í 16-liða
úrslitum á þremur síðustu HM
sem liðið hefur tekið þátt í. Árið
1998 töpuðu þeir á gullmarki
fyrir gestgjöfum Frakka og 2002
töpuðu þeir 1-0 fyrir Þýskalandi.
• David Beckham er leikreynd-
asti leikmaður Englands með 87
landsleiki að baki.
• Theo Walcott getur orðið næst
yngsti leikmaður HM frá upphafi
ef hann spilar. Walcott er 17 ára
og 86 daga gamall og 45 dögum
eldri en Norman Whiteside var
þegar hann lék fyrir Norður-ír-
land gegn Alsír á HM 1986.
• Ef Walcott skorar verður hann
hins vegar yngsti leikmaðurinn
til að vinna það afrek á HM. Pele
á metið, en hann var 17 ára og 239
daga gamall þegar hann skoraði
sitt fyrsta mark.
• England hefur unnið alla leiki
sem Peter Crouch hefur spilað.
• England hefur spilað 10 leiki án
Wayne Rooney, frá þvi að hann
lék fyrst með liðinu 2003, og
ekki tapað neinum þeirra. Níu
leikir unnust en einn endaði með
jafntefli.
Zlatan Ibrahimovic og félagar í sænska landsliðinu á æfingu í Þýskalandi.
Svíþjóð - Trínidad og Tóbagó
B-riðill
Ki.i6
Leikstaður:
Westfalen-leikvangurinn 1' Dortmund.
Dómari:
Shamsul Maidin frá Singapore.
Styrkleikalisti FIFA:
Svíþjóð: 16
Trínidad og Tóbagó: 47
Veðbankarnir:
Sigur Svíþjóðar á HM: 40/1
SigurTrínidadsogTóbagóá HM: 1000/1
Staðreyndir um leikinn:
• Andreas Isaksson, aðalmark-
vörður sænska landsliðsins,
verður ekki með vegna meiðsla
sem hann hlaut á æfingu á
dögunum. Isaksson fékk bylm-
ingsskot liðsfélaga síns, Kim
Kallström, í höfuðið og hlaut
heilahristing í kjölfarið.
• Meðalaldur landsliðsmanna T&T
er 29 ára og sá hæsti af liðunum
á HM.
Dwight Yorke, fyrrum leikmaður
Manchester United, er langþekkt-
asti knattspyrnumaður T&T og
sá leikmaður sem helst er búist
við að geti leitt liðið til einhverra
afreka. Yorke er 34 ára gamall og
lék í vetur með Sydney í Ástralíu.
T&T er að keppa á sínu fyrsta
HM og er jafnframt fámennasta
þjóðin til að tryggja sér sæti í
lokakeppninni.
Liðin hafa mæst einu sinni áður
í vináttulandsleik. Það var árið
1983 og lauk leiknum með 5-0
sigri Svía.
Síðasti sigur sænska landsliðsins
var gegn Islendingum í lokaleik
undankeppninnar í október á
síðasta ári. Sviþjóð hefur leikið
fimm vináttulandsleiki á þessu
ári og gert fjögur jafntefli en
tapað einum.
Síðasti sigur T&T í landsleik var
einnig gegn Islendingum. Island
tapaði sem kunnugt er 2-0, en
leikurinn fór fram i Englandi í
mars. T&T hefur keppt þrjá vin-
áttulandsleiki siðan, gegn Sló-
veníu, Wales og Tékklandi, og
tapað öllum.
Argentína -
Fílabeinsströndin
Skeytin inn
Fílabeinsstrendingar eru
að taka þátt í sínu fyrsta
HM en sætið í loka-
keppninni hlutu þeir á kostnað
Kamerún, eftir að síðarnefndu
þjóðinni mistókst að sigra Eg-
yptaland í lokaleik undankeppn-
innar. Sá leikur verður lengi í
minnum hafður. I stöðunni 1-1,
þegar sex mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leiktíma,
fengu Kamerúnar vítaspyrnu
sem hefði getað tryggt þeim
farseðilinn á HM. Pierre Wome,
leikmaður Werder Bremen, tók
spyrnuna en skaut í utanverða
stöngina og gerði þar með út um
vonir Kamerún um að komast
á sitt fimmta HM i röð. Wome
hefur síðan verið álitinn mikill
skúrkur af mörgum samlöndum
sínum og er talið óvíst að hann
muni halda áfram að leika með
landsliðinu.
Jermain Defoe, sóknar-
maður Tottenham, flaug
heim til Englands frá
Þýskalandi í
gær eftir að ljóst
varð að Wayne
Rooney yrði
orðinn góður af
meiðslum sínum
í tæka tíð. Sven-
Göran Eriksson,
landsliðsþjálfari Englands, bauð
Defoe að vera áfram með liðinu
en hann ákvað að fara frekar
heim. Defoe hefur þótt standa
sig afar vel með enska liðinu
í undirbúningnum og hefur
frammistaða hans orðið til þess
að fólk efast enn frekar en áður
um val Erikssons á táningnum
Theo Walcott í hans stað. Martin
Jol, stjóri Tottenham, segir að sú
ákvörðun Erikssons hafi verið
mikil mistök. „Holland, Þýska-
land og Brasilia eru öll með fjóra
sóknarmenn. Núna er England
bara með tvo og meiddan Wayne
Rooney,“ sagði Jol. Steven Gerr-
ard og David Beckham vöktu
máls á því á blaðamannafundi i
gær að Defoe yrði sárt saknað og
sögðu hann hafa tekið því afar
fagmannlega að vera ekki valinn
í aðalhópinn. „Jermain er einn
af bestu sóknarmönnum Evr-
ópu í dag. Því miður getur þjálf-
arinn aðeins valið 23-menn, en
það hefði verið frábært að hafa
Defoe með,“ sagði Beckham.
1. umferð ÍTorfærukeppni Tómstundahúsins (fjarstýrðum bllum verður
haldið sunnudaginn ll.júní við athafnasvæði Gæðamoldar ( Gufunesi,
Grafarvogi. Keppt verður í Monster-trukka flokki og Opnum flokki.
Skráning keppenda er á staðnum frá 9:30-10:30.
Keppni hefst kl. 11:00. Upplýsingar um mótið er íTómstundahúsinu.
Nethyl 2,sími 587 0600, www.thomstundahusid.is
C-riðill
KI.19
Leikstaður:
AOL-leikvangurinn I Hamborg.
Dómarl:
Frank de Bleeckere frá Belgíu.
Styrkleikalisti FIFA:
Argentfna: 9
Fílabeinsströndin: 32
Veðbankarnir:
Sigur Argentinu á HM: 8/1
Sigur Fílabeinsstrandarinnar á HM: 50/1
Staðreyndir um leikinn:
• Fílabeinsströndin mun að öllum
líkindum tefla fram bræðrum
í leiknum, en Kolo og Yaya To-
ure eru báðir í leikmannahópi
liðsins.
• Lionel Messi, leikmaður Barcel-
ona, verður yngsti argentínski
leikmaðurinn til að leika á HM
ef hann spilar. Messi er 18 ára
og 352 daga gamall og rúmum
tveimur mánuðum yngri en nú-
verandi methafi, sem er reyndar
níræður í dag. Messi verður lík-
lega varamaður.
• Javier Saviola og Hernan Crespo
munu að öllum líkindum byrja í
framlínu Argentínu.
• Argentínumenn vonast til að
ná árangri á HM í ár eftir mikil
vonbrigði á HM 2002. Þá komst
liðið ekki upp úr riðlakeppninni
í fyrsta sinn síðan 1962.
• Henri Michel, þjálfari Fílabeins-
strandarinnar, hefur þjálfað
þrjú önnur landslið á HM. Þau
eru Frakkland (1986), Kamerún
(1994) og Marokkó (1998). Sjálfur
lék Michel tvo leiki með franska
landsliðinu á HM 1978.
Tottenham hefur gengið
frá kaupum á vinstri bak-
verðinum Benoit Assou-
Ekotto frá franska liðinu Lens.
Assou-Ekotto,
sem er 22
ára, á eftir að
gangast undir
læknisskoðun
en standist
hann hana
verður hann orðinn leikmaður
liðsins um helgina. „Benoit
er einn efnilegasti leikmaður
frönsku deildarinnar og frábær
liðsstyrkur fyrir okkur. Hann er
metnaðargjarn, hæfileikaríkur
og hefur lengi haft augastað á
að leika i ensku deildinni,“ sagði
Damien Comolli, yfirmaður
íþróttamála hjá Tottenham. Þá
hefur Lundúnaliðið selt írska
varnarmanninn Stephen Kelly
til Birmingham. Kelly, sem er
22 ára, er alinn upp hjá Spurs en
hefur ekki náð að vinna sér fast
sæti í liðinu.