blaðið - 10.06.2006, Page 55
MENNTASKÓLINN
H RAÐBRAUT
Heilbrigði og félagslíf
Menntaskólinn
raut
Menntaskólinn Hraðbraut er um þessar mundir að Ijúka þriðja starfsári.
Önnur útskrift skólans mun fara fram í Bústaðakirkju þann 8. júlí
næstkomandi. Skólinn hóf starfsemi haustið 2003 í gamla Lækjarskólanum
í Hafnarfirði, en flutti fljótlega í Faxafen 10. Skólastofur þar eru bjartar og
rúmgóðar, skrifstofustólar eru fyrir hvern nemanda og keppst er við að hafa umhverfið aðlaðandi og þægilegt.
Stjórnendur Hraðbrautar gera sér þó grein fyrir að það er ekki nóg að hafa umhverfið aðlaðandi. Innviðir
skólastarfsins verða einnig að vera traustir. Áhersla er því lögð á að mæta þörfum hvers og eins eftir því sem
kostur er á. Enginn nemandi á að vera afskiptur og aðgangur að kennurum, námsráðgjafa og öðru starfsfólki
er greiður. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig um skólastarfið og láti skoðanir sínar í Ijós, hvort sem þeir
eru sáttir eða ósáttir. í meiri háttar málum hefur verið blásið til fundar og málamiðlana hefur verið leitað.
Stjórnendur gera sér grein fyrir því að þarfir nemenda eiga alltaf að vera í fyrsta sæti í Hraðbraut.
Hvað eru margir
IHraðbraut
öðruvísi kerfi
Skipulögð kennsla er á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, en á
þriðjudögum og fimmtudögum er „heimanám" stundað í skólanum. Þá eru
kennarar til staðar og svara fyrirspurnum nemenda. Mætingaskylda er alla
daga vikunnar og á heimanámsdögum hefur verið ráðið yfirsetufólk sem
fylgist með mætingum og sér um að vinnufriður haldist. Gott samband hefur
myndast milli yfirsetufólks og nemenda og er það hluti af þeim persónuiega
brag sem einkennir skólastarfið.
Hraðbraut býður upp á lotukerfi sem felst í þvi að kenndar eru þrjár
námsgreinar ívjórar vikur samfleytt og síðan prófað í fimmtu vikunni.
Þeir nemendur sem ná prófum fá síðan viku frí til að „hiaða batteríin" og
undirbúa sig undir næstu lotu. Þeir sem falla í einu eða fleiri fögum þurfa að
sitja í skóianum sjöttu vikuna og undirbúa upptökupróf sem ferfram á
föstudegi þá viku. Það er því hvetjandi að ná prófi og má leggja mikið á sig til
að uppskera viku frí frá náminu. Loturnar eru sjö á fyrra ári og átta hið síðara,
samtals fimmtán. í fimmtándu lotunni eru aðeins kenndar tvær námsgreinar,
tjáning og lífsleikni.
í lífsleikni spreytir útskriftarhópurinn sig m.a. á því að undirbúa ferðalag
nemenda og fór hópurinn í fyrra í Þórsmörk. Útskriftarhópurinn stóð einnig
fyrir „hinni síðustu kvöldmáltíð" en það var hátíðarkvöldverðar fyrir
útskriftarnema og starfsfólk. Hápunktur kvöldsins var síðan þegar nemendur
stóðu upp einn af öðrum og héldu skemmtilegar tölur eða þökkuðu fyrir sig
og kom þar m.a. í Ijós hvað tjáningarnámskeiðið hafði borið góðan árangur.
í dag eru um 130
nemendur í Hraðbraut
80 á fyrra ári og um 50
nemendurá síðara
námsárinu, sem skiptast
á náttúrufræði- og
málabraut. Áfyrranáms-
árinu stunda nemendur
ekki nám á sérstakri
námsbraut heldur fara allir
í sömu kjarnafögin.
Málabrautiní Hraðbraut er
óvenjuleg að því leyti að
þar taka nemendur 18
einingarí stærðfræði sem
er langt umfram þær 6
einingar í stærðfræði sem
nemendurtaka á hefð-
bundnum málabrautum.
Það þarf ekki sérfræðinga til, til að sjá
að það að ætla sér að nema fjögurra ára
nám á tveimur árum krefst heilbrigðis,
andlegs sem líkamlegs. íþróttir eru
stundaðar í Hreyfingu auk þess sem
skólinn býður upp á fjallgöngu að
hausti sem vori. Nemendur Hraðbrautar
hafa nú tvisvar ritað nafn sitt í
gestabókina sem bíður þeirra á toppi
Esjunnar.
Hraðbraut hefur átt sína fulltrúa í Gettu
betur, Morfís, Söngkeppni framhal-
dsskólanna, stærðfræði-keppni framhal-
dsskólanna og fleiri keppnum. Nemen-
dum skólans hefur yfirleitt gengið
prýðilega og hafa t.d. unnið titilinn
framhaldsskóla-meistarar í PaintBall og
síðastliðinn vetur komst nemandi í 13
manna úrslit í söngkeppni framhalds-
skólanna. Nemendafélagið ber heitið
"Autobahn" í takt við
Hraðbrautina. Það hefur staðið fyrir
fjölmörgum stuttum ferðum, jóla-
hlaðborði, árshátíð og ýmsu fleiru.
Eitt af því sem þykir koma skemmti-lega
út er félagslífið í hversdagsleikanum. Á
skóladögum sl. vetur voru ýmsir
þemadagar, bleikur dagur, íþróttada-
gurlopadaguro.fi. Einnig voru ýmsar
keppnir t.a.m. átkeppnir þar sem keppt
var í áti á kókósbollum, samlokum o.fl.
Nokkrum sinnum yfir veturinn býður
skólinn nemendum í pizzuveislu í
hádegishléi en þá er pantaður vænn
stafli af pizzum og gos til að renna þeim
niður.
Félagslífið hefureinnig blómstrað í
kringum námsgreinar eins og lífsleikni,
íslensku og tjáningu. Hraðbraut hefur á
að skipa mjög hæfum kennurum og þar
starfar m.a. Bjarki Bjarnason íslensku-
og sögukennari en hann var valinn
vinsælasti kennarinn af nemendum sl.
vetur. Skundar hann með nem-endur í
ýmsar spennandi vettvangsferðir eins
og t.d. á Njáluslóðir. Náttúrufræðiken-
narar hafa einnig stundað fróðlegar
vettvangsferðir. Þess má geta að margir
góðir gestir hafa heimsótt skólann. Það
er vitað að enginn maður er eyland og
þátttaka í féiagslífi er nauðsynleg til að
halda tengslum, enda mannleg
samskipti orðin hátt metin á vinnu-
markaði ekki síður en bóknám.
'r
&am
Útskrift
Eins og fram kom í upphafsorðum greinarinnar líður nú að annari útskrift skólans. Þann 9. júlí 2005 útskrifaðist fyrsti nemenda-
hópurinn frá Hraðbraut. Það var mikil gleðistund, þó ekki væri hún laus við trega þar sem kömið var að kveðjustund frumkvöðlanna,;
þeirra nemenda sem fyrstir riðu á vaðið og ákváðu að gera Hraðbraut að sinni braut. Nú stunda þeir nemendur m.a. nám við . |
Háskóla Reykjavíkur og Háskóla íslands og gengur þeim ágætlega að fóta sig þar í mismunandi greinum. Þeir sem hafa áhugj
kynnast þessum valkosti metnaðarfullra nemenda; Menntaskólanum Hraðbraut sem er„tveimur árum á undan" eins og frar
í einum af slagorðum hans, er bent á að skoða heimasíðuna HYPERLINK www.hradbraut.is og skoða þar einnig kynningarb
skólans. itfli
■Hm