blaðið - 20.06.2006, Page 12
12 I WEYTEWDUR
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006 blaöid
Verði ykkur að góðu?
Á undanförnum árum hefur fram-
leiðsla á erfðabreyttum matvælum
margfaldast og hún eykst í sífellu.
Margir hafa þá litið svo á að erfða-
breytt matvæli muni gera hug-
sjóninni kleift að rætast, að fæða
sveltandi fólk um allan heim. Eins
og með alla tækni þá eru uppi sið-
ferðileg álitamál sem taka verður
tillit til varðandi erfðabreytt
matvæli og horfa verður raunsætt
á kosti og galla þeirrar framleiðslu.
Of oft hefur ný tækni átt að leysa
allan vanda heimsins og augunum
verið lokað fyrir „óheppilegum“ af-
leiðingum ýmissar framþróunar.
I gær birtist á heimasíðu Neytenda-
samtakanna grein eftir Jóhannes
Gunnarsson, formann þeirra, sem
fjallar um erfðabreytt matvæli. Jó-
hannes vandar ekki líftæknifyrir-
tækjum kveðjurnar og sakar mörg
þeirra um óheiðarleg vinnubrögð.
Blaðið hafði samband við Jóhannes
og Ingimar Sigurðsson, skrifstofu-
stjóra umhverfisráðuneytisins.
Vantar rannsóknir
I greininni vísar Jóhannes meðal ann-
ars í rannsókn sem gerð var við há-
skólann í Newcastle: „Rannsókn sem
gerð var í Newcastle-háskóla (2002)
sýndi hve erfðabreytt matvæli eru
gjörólík hefðbundnum matvælum.
Hún staðfesti að próteinkeðjur
(DNA) í erfðabreyttum matvælum
komast í gegnum matvælavinnslu,
matseld, meltingarsýrur í maga og
inn í þarmabakteríur mannsins,
ólíkt því sem haldið hefur verið fram.
Þessi möguleiki í erfðabreyttum mat-
vælum, á flakki innskotinna gena inn
í meltingarbakteríur, kann að vera
skýringin á vaxandi tíðni ofnæmis
meðal þjóða sem neyta erfðabreyttra
afurða.“, segir Jóhannes. Þetta er
vissulega umhugsunarvert og kallar
á frekari rannsóknir að mati Jóhann-
esar. „Það sem við höfum verið að
kalla eftir í langan tíma eru ítarlegri
rannsóknir á þessu sviði, en auðvitað
vakna ákveðnar spurningar þegar
ofnæmi eykst samhliða því sem
framboð á erfðabreyttum matvælum
eykst. Það er ekki búið að sýna fram
á samhengi en hins vegar liggur fyrir
að ofnæmið hefur aukist í samræmi
við aukið magn erfðabreyttra mat-
væla og þá hljóta neytendasamtök
að krefjast rannsókna: Er samhengi
þarna á milli?“
Vafasamar prófanir
Ennfremur segir Jóhannes að fyrir-
tæki á sviði erfðabættrar matvæla-
vinnslu styðjist við vafasamar próf-
anir þar sem forsendur eru
oft á tíðum brenglaðar,
neikvæðar niðurstöður
hunsaðar og mörg fyrir-
tæki hafi neitað að veita
eftirlitsaðilum aðgang að
frumgögnum. „Það er
því miður staðreynd að
líftæknifyrirtækin sjálf
hafa meira eða minna
stjórnað rannsóknum
Það hafa þó verið
gerðar nokkrar sjálf-
stæðar rannsóknir
og útkoman úr þeim
hefur ekki alltaf
verið jákvæð. Það er þá dá-
lítið skrýtið að allt sem kemur út úr
rannsóknum líftæknifyrirtækjanna
er sem hér segir: Þetta er allt í fínu
lagi, útkoman er góð, það er ekkert
að óttast. Þegar sjálfstæðir aðilar eru
að rannsaka og komast að hinu gagn-
stæða þá segjum við: Þetta kallar á
miklu fleiri hlutlausar rannsóknir
þar sem líftæknifyrirtækin sem hafa
hagsmuna að gæta eru ekki með putt-
ana í þessu.
Neytendavernd á hakanum
Að lokum spyr Jóhannes í greininni af
hverju íslensk stjórnvöld kanni málin
ekki ofan í kjölinn eins og mörg lönd
eru að gera um þessar mundir. „Is-
lensk stjórnvöld virðast ekki láta sig
neinu varða vísbendingar óháðra
rannsókna um skaðleg heilsuáhrif
erfðabreyttra matvæla. Þau leyfa
sölu á ómerktum erfðabreyttum
matvælum og dýrafóðri og heimila
útiræktun á erfðabreyttu lyfjabyggi
án þess að krefjast óháðra tilrauna
á áhrifum þess á dýr og menn. Hvað
veldur því að Island tekur ekki upp
reglur ESB um
verndun neytenda
í þessum efnum,
meðan Evrópu-
ríki lýsa sig eitt af
öðru .svæði án erfða-
breyttra lífvera' og
framkvæmdastjórn
ESB mælist til mun
strangari heilsurann-
sókna?“,segirjóhannes
í grein sinni.
Á heimasíðu Neyt-
endasamtakanna má
finna grein frá 12. maí
þar sem komið er inn á
þ e s s i atriði og einnig má þar
finna töflu yfir erfðabreytt matvæli
Glæsilegar danskar innréttingar i öll herbergi heimilisins
Eldhúsinnréttingar • Baðinnréttingar • Þvottahússinnréttingar • Fataskápar með venjulegum- og rennihurðum
______ ú—r-.../
Eldavélar
Ofnar
Helluborð
Viftur&háfar
mm
Uppþvottavélar Kæli- og frystiskápar
Fyrsta flokks hönnunar- og teiknivinna
Stuttur afgreiðslufrestur
5 ára ábyrgð
Hagstætt verð Askalind 3 • 201 Kópavogur ■ Sími: 562 1500
Velkomin í I
Friform
Jóhannes Gunnarsson
sem framleidd eru í Bandaríkjunum.
Islendingar kaupa mikið magn mat-
væla frá Bandaríkjunum. „Það er
aðallega um að ræða matvæli sem
flutt eru inn frá Bandaríkjunum
vegna þess að þar er ekki skylda að
merkja efðabreytt matvæli. Island
er eina landið á Evrópska efnahags-
svæðinu þar sem ekki er skylda að
merkja hvort vara sé erfðabreytt
eða hvort erfðabreytt hráefni hafi
verið notað í samsetta vöru. Þetta
gerist þrátt fyrir að komið hafi fram
í könnun sem Gallup gerði að 90%
landsmanna vilja að erfðabreytt mat-
væli séu merkt. Við höfum reynt að
knýja fram að erfðabreytt matvæli
verði merkt þannig að neytendur geti
valið á milli. Þannig að það sé neyt-
andans að velja. Við teljum að stjórn-
völd hafi sýnt neytendum örgustu
ókurteisi með því að setja ekki reglur
eins og til að mynda Norðmenn hafa
gert. Þess í stað eru íslensk stjórnvöld
alltaf að bíða eftir því að þetta verði
tekið inn í EES-samninginn. Okkur
finnst það undarlegt að þegar kemur
að neytendavernd þá þurfi alltaf að
bíða eftir því að settar verði reglur
til þess að eitthvað gerist. Norðmenn
hafa um árabil verið með reglur og í
raun strangari reglur en Evrópusam-
bandið hvað erfðabreytt matvæli
varðar. Drög að svona reglum hafa
lengi legið fyrir niður í umhverf-
isráðuneyti. Hverjir eru það sem
stoppa þetta? Eru það matvælafram-
leiðendur frá Bandaríkjunum?“, spyr
Jóhannes.
Ingimar Sigurðsson segir að
umhverfisráðuneytið hafi tekið-
ákvörðun á sínum tíma að fylgja
evrópureglum hvað viðkemur erfða-
breyttum matvælum. „Þegar sú
ákvörðun var tekin lá þó fyrir að
þeim reglum yrði breytt þannig að
við sáum ekki ástæðu til að taka upp
þær reglur heldur vildum bíða eftir
þeim nýju. Þetta var fyrir svona 5
árum. Það er bara þannig að þessi
reglugerð frá Evrópusambandinu
er ekki komin inn í EES-samning-
inn ennþá. Við erum að bíða eftir
því að málið verði afgreitt innan
samningsins.“
Á móti má spyrja hvort ekki sé
ástæða til að fara sömu leið og Norð-
menn sem settu sínar eigin reglur.
„Það hefur náttúrlega verið rætt en
það hefur dregist að taka þetta upp,
því miður. Þetta getur tekið tíma
en Norðmenn tóku þá ákvörðun að
fara sjálfir með þetta inn í sín lög.
Við tókum þennan pól í hæðina og
sú ákvörðun stendur. Því er þó ekki
að neita að það hefur dregist að taka
málið inn í samninginn um Evr-
ópska efnahagssvæðið og ég vænti
þess að það muni gerast á næstu mán-
uðum“, segir Ingimar
jon@bladid.net
eru ódýrastir?
Samanburður á verði 95 oktana benstns
AQ Sprengisandur 124,8 kr. Kópavogsbraut 124,8 Íctv: Óseyrarbraut 124,8 kr..
( eco Vatnagarðar 124,8 kr.. Fellsmúli 124,8 kr, Salavegur 124,8 kr..
<0 Ægissíða 126,1 kr. Borgartún 126,1 kr. Stóragerði 125,9 kr.
olis Álfheimar 126,1 kr. Ánanaust 126,1 kr. Gullinbrú 125,9 kr.
Eiðistorg 124,7 kr. Klettagöröum 124,7 kr. Skemmuvegur 124,7 kr.
ORKAN
03 ódýKbwnki Arnarsmári 124,8 kr. Starengi 124,8 kr. Snorrabraut 124,8 kr.
© Gylfaflöt 125,9kr. Bústaðarvegur 125,9 kr.
Iðnaðarryksugur
Fjöldi aukahluta jk NT602
SKEIFAN 3E-F - 108 REVKJAVIK
SIMI 581 2333 / 581 2415
RAFVER RAFVER.IS - WWW.RAFVER.IS