blaðið - 20.06.2006, Side 18

blaðið - 20.06.2006, Side 18
26 I HEILSA ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006 blaöid Leyndardómur einkenna Hómópatar líta svo á að einkenni séu tjáningarform líkamans. Það er mikill munur á því hvernig læknavísindi og hómópatía horfa á einkenni. Læknavísindin líta svo á að mann með einkenni þurfi að sjúkdómsgreina sem fyrst og athuga hvort viðkomandi gangi með með sjúkdóm. Einkennin eru ekki hluti af okkur heldur eru þau utanaðkomandi, óvinur. Veikindi leggja okkur í einelti og bíða eftir að koma höggi á okkur. Við erum varnarlaus fórnarlömb. Þetta þýðir að einkenni tilheyra sjúkdómum. Hómópatía lítur aftur á móti svo á að einkenni, hvort sem þau eru líkamleg eða andleg, séu viðbragð og ástæðurnar geti verið margþættar. Frá þessu sjónarmiði tilheyra einkennin fólki en ekki sjúkdómnum. Þó svo að fólk sýni svipuð viðbrögð, þýðir það ekki að veikindin séu utanaðkomandi óvinur sem setjist að í fólki. Tilgangur hómópatíu er að örva og hjálpa hinni eðlilegu svörun líkamans. Líkaminn er stórkostlegur, hann er sífellt að endurnýja sig. Það er aðeins þegar hann stoppar og veit ekki hvað hann á að gera að hann fer að sýna einkenni. Einkennin eru að sýna okkur að eitthvað hafi farið úrskeiðis og sé í ójafnvægi. Þegar þið breytið sjónarhorni ykkar frá því að einkenni séu nei- kvæð yfir í að einkennin séu tjáningarform líkamans þá fyrst verður stórfengleg hugarfarsbreyting. I stað þess að reyna að fjarlægja eða bæla einkennin, horfið á þau sem mikilvæg skilaboð til að leiðbeina okkur til að öðlast betri heilsu. Hvað var það sem orsakaði þessi einkenni? Hvað var ég að gera í gær? Já alveg rétt, ég fór í vorverkin í garðinum! Þá borgar sig að skoða það nánar. Það er svo margt sem getur hafa átt sér stað. Var það áreynslan við að BYLGJA SVARAR SPURNINGUM UM ÓHEFÐBUNDNAR LÆKNINGAR h moka og vinna öll garðverkin eða var það íslenska veðráttan, til dæmis rigningin og rokið, sem kallar fram öllþessi einkenni? Það geta verið svo ótal margar ástæður, við vitum það oft best sjálf hvað það var sem kom þessu öllu af stað. Vírusar, bakteríur, slys eða næringarskortur geta ekki búið til einkenni. Manneskjan getur bara framkallað sín einkenni með sínu eigin tungumáli. Einkenni geta þróast ef líkaminn ræður ekki við þau. Þau byrja smátt en ef ekki er hlustað þá versna einkennin til þess að segja manneskjunni að eitthvað sé í ólagi. Hvað þarft þú sterk einkenni til að taka eftir og bregðast við þeim? Hómópatía sækist eftir að fræða líkamann um það í hvernig ástandi hann er með því að gefa réttu úrræðin miðað við þau einkenni sem viðkomandi finnur. Með úrræðum fær líkaminn upplýsingar um hvernig honum líður og tækifæri til að leiðrétta sig. Líkaminn tjáir sig í gegnum einkenni. Hvað ætli hann sé að segja? Hugleiddu það næst þegar þú finnur fyrir einhverjum einkennum. Hvar finnur þú hómópata? Auðveldasta leiðin er að fara á www.homopatar.is Ef þú ert með spurningar varðandi hvað hómópatía getur gert fyrir þig, hafðu þá samband homopati@hive.is VÖGGUR HJÁ OKKUR FÁIÐ ÞIÐ MIKIÐ ÚRVAL AF VÖGGUM Skyndibitakeðja kœrð fyrir óhollan mat Bandarískur neytendahópur hefur kœrt Kentucky Fried Chicken og hyggst kœra Starbucks fyrir að bjóða upp á óhollustu. Báðar keðjurnar segjast vera að leita að öðrum valkostum til að minnkafitu ífœðunni. Kentucky Fried Chicken í Banda- ríkjunum hefur verið kærð fyrir að steikja matinn upp úr hertri jurtafitu sem er talin auka tíðni kólesteróls í blóðinu og auka líkurnar á hjartasjúkdómum. í kjölfar kærunnar hafa talsmenn fyrirtækisins látið hafa eftir sér að verið sé að leita að annars konar olíum fyrir steikingu. f Bandaríkjunum hefur skyndibitakeðjan Kentucky Fried Chicken verið kærð fyrir að steikja matinn upp úr hertri jurtafitu sem er talin auka tíðni kólesteróls í blóð- inu og auka líkurnar á hjartasjúkdómum. máli hans kom fram að KFC hefur skoðað aðrar olíur en það sé margt sem þurfi að taka tillit til, til dæmis þurfi að viðhalda einstöku bragði KFC. Michael Jacobson, forstjóri neytendahópsins, segir að KFC viti að hægt sé að nota hollari fitu við eldamennskuna en „af kæruleysi auka þeir hætt- una á að viðskipta- vinir keðjunnar fáiKentuckyFried kransæðastíflu.“ 720 hitaeiningar í kaffibolla Neytendahópur- inn virðist ekki ætla að láta staðar numið við KFC því sagt er að hann hyggist kæra Starbucks næst. Að þessu sinni krefst hópurinn þess að Starbucks setji næringargildi mat- vælanna á matseðlana en nú er einungis hægt að nálgast næringar- gildi réttanna á Netinu eða í bæk- lingum staðarins. Hópurinn tekur sem dæmi að stór bananamokka Frappuccino með þeyttum rjóma innihaldi 720 hitaeiningar og 11 grömm af mettaðri fitu. Talsmaður Starbucks sagði í yfirlýsingu sinni að fyrirtækið væri að leita eftir öðrum valkostum en fitumiklum vörum. Lagasetning? Fregnirnar um að KFC hefði fengið á sig kæru vegna notkunar hertrar jurtaolíu hefur vakið upp þá um- ræðu hvort bandarísk yfirvöld ættu að reyna með lagasetningu að takmarka hvað landsmenn borða. Margir Bandaríkjamenn telja að lög myndu ekki fræða landsmenn og með því að birta fituinnihald skyndibitamatar væru menn litlu nær um hvað væri hollt og hvað óhollt. „Ég tel ekki að það sé hægt að færa þetta í lög því þetta snýst um eigið val,“ segir Madelyn Fernstrom, forstjóri þyngdarstjórnunardeildar í háskólanum í Pittsburgh. „Inni- hald vörunnar þarf að koma fram svo fólk geti takmarkað magnið ef þess þarf. Það er ekki eins mikil- vægt að stimpla mat sem slæman og það er að gæta að magni.“ Dr. Keith- Thomas Ayoob, prófessor í barna- lækningum við Læknaskóla Alberts Einsteins, segist hafa meiri áhyggjur af fjölda kaloría í djúpsteiktum mat heldur en hertri jurtaolíu. Kaloríur skipti meira máli, enda séu tveir þriðju Bandaríkjamanna of feitir. „Ef önnur olía kemur í stað hertu jurtafitunnar verður jafn mikið af kaloríum í matnum." svanhvit@bladid.net Það er bandarískur neytendahópur sem kærði KFC en hópurinn er fjár- magnaður með áskriftargjöldum fréttabréfs og alls kyns styrkjum. Neytendahópurinn ásamt Dr. Art- hur Hoyte vill að KFC verði skipað að nota annars konar olíur við steikingu eða að neytendur fái upp- lýsingar um notkun hertu jurtafit- unnar og afleiðingar hennar áður en verslað er. Dr. Hoyte segist hafa kært KFC vegna sonar síns og annarra barna svo þau eigi hamingjusama og herta-fitulausa framtíð. „Ef ég hefði vitað að KFC notaði ónáttúru- lega olíu við steik- ingu og hve mikið af hertri jurtaolíu er í matnum þá hefði ég endur- skoðað val mitt.“ Kentucky Fried kransæðastífla Talsmaður KFC segir að kæran sé hégómleg og að fyr- irtækið muni berj- ast fyrir málstað sínum í réttarsal. Auk þess segir hann að fyrirtækið hafi lengi gefið upplýsingar um nær- ingargildi og fituinnihald matarins á Netinu og á veitingastöðunum. í 99.................. Fregnirnar um að KFC hefði fengið á sigkæru vegna notkunar hertrar jurtaolíu hafa vakið upp þá umræðu hvort bandarísk yfirvöld ættu að reyna að takmarka með lagasetningu hvað landsmenn borða. Meirihluti Dana vill sig verulega Um 76% Dana vilja léttast um að meðaltali 9,6 kíló samkvæmt nýlegri könnun. Þetta eru áhugaverðar niðurstöður í Ijósi þess að einungis helmingur Dana er of þungur. grenna Flestir Danir telja sig vera of feita þrátt fyrir að einungis helmingur þeirra sé of þungur. Hins vegar er ekki þar með sagt að þeir sem séu of þungir vilji grenna sig. I könnun sem stofnunin Zapera.com stóð fyrir kom í ljós að 76% Dana yfir fimmtán ára aldri vilja grenna sig. Þeir Danir sem vilja grennast segjast að meðal- tali vilja missa 9,6 kíló. Óholl sjálfsmynd Þessar niðurstöður eru jákvæðar fyrir þann tæplega helming dönsku þjóðarinnar sem er of þungur. En þar sem 76% þjóðarinnar vilja grenna sig, gefur það augaleið að fjöldi fólks sem er í kjörþyngd og þar undir vill léttast um einhver kíló. Samkvæmt Arne Astrup, prófessor hjá Næring- arstofnuninni í Danmörku, eru þessar niðurstöður ekki merki um heilbrigði. „Þegar þeir sem eru í kjör- þyngd vilja léttast er það vegna þess að þeir eru með brenglaða ímynd af líkama sínum og vilja komast undir kjörþyngd. Þetta eru sjúklegar at- hafnir sem þjóna ekki þeim tiTgangi sem þeim er ætlað auk þess að vera óheilbrigðar,“ segir Arne. Of feitir vilja ekki grennast Það kemur ekki fram í könnuninni sem var gerð fyrir Vigtarráðgjafana hve þungir þeir Danir voru sem vildu grenna sig. Sams konar kann- anir voru gerðar árið 1987 og 1994 og sýndu að það voru engin bein tengsl á milli þess að vera of þungur og að vilja léttast. í þeim könnunum voru margir, að sögn Arne, í kjörþyngd og undir kjörþyngd sem vildu léttast og að sama skapi voru einhverjir sem voru of feitir en höfðu engan áhuga á að grennast. 1 fyrri könnunum var það einungis um helmingur sem vildi grenna sig en í nýjustu könnun- inni var það meirihluti þjóðarinnar sem vildi léttast. „Það er freistandi að trúa því að sá helmingur þjóðar- innar sem er of þungur vilji léttast en því miður er það ekki þannig," segir Arne. Það eru álíka margar konur og menn sem eru of þungir en konurnar leggja meiri áherslu á að grenna sig. I könnuninni sögðust 83% kvennanna vilja grenna sig en einungis 69% karlanna.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.