blaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 28
36 I DAGSKRÁ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006 blaðiö
(21. mars-19. apríl)
Reyndu að skyggnast inn í framtíðina og ímynda
þér hvað hún ber í skauti sér. Hugsaðu stórt, vertu
skrefi á undan en helltu þér svo út í verkefnin. Fram-
tíðin er alltaf rétt handan við hornið svo að þér er
hollast aö vera tilbúinn.
Naut
(20. apríl-20. maí)
[ dag skaltu gera eitthvað sem þú ert ekki vön/van-
ur að gera og takast á við áskorun, sama hvort hún
er stór eða lítil. Þú skalt ekki hika við að ráðast f
verkefnin og láta hendur standa fram úr ermum.
Líf þitt mun breytast innan tíðar.
©Tvíburar
(21. maí-21. júní)
f augnablikinu eru of margir sem hafa áhrif á líf
þitt. Taktu stjórnina sjálf(ur) og ekki hugsa um
hvað öðrum finnst. Þetta er þitt eigið líf og þú átt
að vera stærsti áhrifaþátturinn, ekki vinnuveitand-
inn eða vinirnir.
©Krabbi
(22. júní-22. júlO
Þó að fólk segist vera reiðubúið að hjálpa er það
ekki alltaf tilbúið þegar á reynir. Þú verður sjálf(ur)
að taka ábyrgð á eigin gjörðum og það hjálpar þér
enginn ef þú sækist ekki eftir því.
®Ljón
(23. júlí-22. ágúst)
Persónuleiki þinn er alltaf að breytast og þroskast.
Það getur haft áhrif á orkuflæði þitt og þér gæti
fundist eins og þú komir ekki neinu í verk. Þetta er
einungis tímabil sem mun Ijúka von bráðar.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
.Enginn veit hvað framtíðin ber f skauti sér. I stað
þess að stökkva til og reyna að ákveða hvað muni
gerast og hvernig allt muni verða skaltu bíða og
sjá. Allt upplýsist með tímanum og framtíðin er
bjartari en þú heldur.
©vog
(23. september-23. október)
Farðu í langa göngu í dag, komdu við á listasafni
og njóttu þess að horfa á eitthvað sem gleður aug-
að. Það mun veita þér ánægju og lífsfyllingu í dag.
Suma daga þarf ekkert annað en eitthvað fallegt
til að horfa á og það áttu að veita þér.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Ekki skipuleggja alit í Iffi þínu. Það hentar þér vel
að hafa gott pláss fyrir óvissu og leyfðu þér því að
vera hvatvís. Það gerir þig hamingjusama(n). Þér
liður ekki vel í kassa og þér líður heldur ekki vel í
eyðimörk. Finndu milliveginn.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Allar hindranirnar sem þú varst búin(n) að búa
þig undir eru skyndilega ekki lengur til staðar og
þú þarft því ekki að taka tillit til þeirra. Það er þér
mikill léttir og þú sérð að lokum hversu frábært líf
þitter.
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Þú hefur nægar upplýsingar til að demba þér í verk-
efnin sem liggja fyrir. Ekki hika, mundu að hika er
sama og að tapa. Þú missiraf tækifærinu ef þú gríp-
ur það ekki. Vertu sjálfsörugg(ur)
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Hinar mörgu fórnir sem þú hefur fært í einkalífi
þfnu heyra nú sögunni til. Þú getur gert það sem
þú vilt og þarft ekki að fórna neinu. Vertu ákveðinn
og hlustaðu á sjálfan þig því þú veist hvað er þér
fyrir bestu.
OFiskar
(19. febrúar-20. mars)
[ dag skaltu leggja lokahönd á fyrirhugað frí. Bók-
aðu miðana, hótelið eða hvað það er sem þú átt eft-
ir að gera. Ef þú gerir þetta ekki í dag gæti eitthvað
komið upp á sem hindrar för þína.
BESTU LEIKMENN í HEIMI
1 § Fjölmiðlar
Atli Fannar Bjarkason
Þegar þetta er skrifað sit ég nánast
með tárin í augunum eftir leik fs-
lands og Svíþjóðar í handbolta. Ég
skrifa þetta semsagt á þjóðhátíðar-
degi fslendinga, 17. júní, og aldrei
bjóst ég við að þjóðerniskenndin
myndi berjast jafn harkalega í brjósti
mér og hún gerir á þessari stundu.
Þjóðerniskennd mín er samt ekki
nærri því jafn mikil og hjá kynnum
^ SJÓNVARPIÐ
16.10 Kóngurumstund (2:12)
16.40 Útogsuður
17.05 Leiðarljós (Gulding Light)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Fræknir ferðalangar (41:52)
18.25 Andlit jarðar (4:6)
18.30 Gló Magnaða (56:65)
19.OO Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljós
20.05 Mæðgurnar (15:22)
20.50 Taka tvö (5:10) Ný syrpa af hinni
vinsælu þáttaröð Töku tvö, þar sem Ásgrímur Sverrisson ræðir við ís-
lenska kvikmyndagerðarmenn um myndir þeirra og hugmyndirnar á
bak við þær. Að þessu sinni er rætt við Ásdísi Thoroddsen..
21.40 Móðan Leikin stuttmynd eftir Jón Karl Helgason. (e)
22.00 Tíufréttir
22.25 Lögregluforinginn (3:6))
23.15 Dýrahringurinn (8:10) (Zodiaque)
00.05 Kastljós
00.35 Dagskrárlok
■ SIRKUSTV
18.10 Byrjaðu aldrei að reykja (Um-
ræðuþáttur)
18.30 Fréttir NFS
19.00 Island í dag
19.30 Twins (3:18) (e) (Treat Her Like A
Lady).
20.00 Friends (1:17) (The One After Joey
And Rachel Ki)
20.30 Sushi TV (2:10)
21.00 Bernie Mac (11:22) (Make Room
For Caddy)
21.30 Supernatural (19:22) (Proven-
ance)
22.20 Anywhere But Here
00.10 Falcon Beach (3:27) (e) (Chemistry
Lesson)
01.00 Friends (1:17) (e)
Sjónvarpsins. Þeir fóru hamförum í
að upphefja leikmenn landsliðsins
og fullyrtu ítrekað að hér væru á ferð-
inni bestu leikmenn í heiminum í
dag - ekki meðal þeirra bestu, heldur
þeir allra bestu. Einar Hólmgeirsson
var til dæmis sagður skotfastasti leik-
maður heims og Guðjón Valur átti að
vera heimsins fljótasti. Ég veit vel að
þeir félagar eru frábærir leikmenn á
heimsmælikvarða en svona fullyrð-
ingar eru bara of mikil remba.
Annars var leikurinn misjafn. ís-
lendingar voru lakara liðið stærstan
hluta leiksins en sýndu á köflum
ótrúlega seiglu og stóðu í Svíunum
hvort sem þeir voru fimm, fjórir eða
jafnvel þrír á vellinum.
Það er síðan ýmislegt við handbolt-
ann sem ég skil ekkert í. Hvernig er
hægt að „taka mann úr umferð“?
Ólafur Stefánsson (sem er frændi
minn) er yfirleitt stöðvaður rétt við
miðju og hjá honum stendur varnar-
maður sem á einhvern hátt hindrar
að Ólafur fái að vera með í sókninni.
Af hverju hleypur Ólafur ekki bara
framhjá honum? Er það bannað?
Svar óskast.
atli@bladid.net
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
P4 STÖÐ2 © SKJÁR EINN
06.58 ísland í bítið 07.00 6 til sjö (e)
09.00 Bold and the Beautiful (Glæstar 08.00 Dr. Phil (e)
vonir) 08.45 Brúðkaupsþátturinn Já (e)
09.20 Ífínuformi 2005) 15.40 Everybody Hates Chris (e)
09.35 Martha (John O'Hurley) 16.10 TheO.C.(e)
10.20 My Sweet Fat Valentina 17.05 Dr. Phil
11.10 Alf (Geimveran Alf) 18.00 6 til sjö
n.35 Fresh Princeof BelAir 19.00 Beverly Hills
12.00 Hádegisfréttir 19.45 Melrose Place
12.25 Neighbours (Nágrannar) 20.30 Whose Wedding is it anyways?
12.50 Ífínuformi 2005) Ný raunveruleikasería þar sem
13.05 Home Improvement (Handiaginn fylgst er með fólkinu sem undirbýr
heimilisfaðir) brúðkaup ríka og fræga fólksins.
13-30 Supernanny (9:11) 21.30 BrúðkaupsþátturinnJá
14.15 Numbers (3:13) (Tölur) Nýr banda- 22.30 Close to Home (Close to Home er
rískur sakamálaþáttur um stærð- skyggnst undir yfirborðið í rólegum
fræðisnilling sem vinnur með bróð- úthverfum, þar sem hræðilegustu
ur sínum sem er yfirmaður hjá FBI, glæpirnir eru oftar en ekki framdir..
við að leysa snúin sakamál. 23.20 Jay Leno
15.00 Amazing Race (5:15) 00.05 C.S.I. (e)
15-55 Nornafélagið 00.50 Beverly Hills (e)
16.20 Shin Chan 01.35 Melrose Place (e)
16.40 HeMan 02.20 Óstöðvandi tónlist
17.00 Bold and the Beautiful
17.22 Neighbours (Nágrannar)
17.47 Simpsons (1:21) SYN
18.12 íþróttafréttir 07.15 HM 2006 (Tógó - Sviss)
18.30 Fréttir, íþróttir og veður 09.00 HM 2006 (Sádí Arabía - Úkraína)
19.00 (sland í dag 10.45 HM 2006 (Spánn-Túnis)
19.40 Strákarnir 12.30 442
20.05 Amazing Race (12:14)) 13.30 HM stúdíó.
20.50 Las Vegas (16:23) (Coyote Ugly) 13.50 HM 2006 (Ekvador - Þýskaland)
21.35 Prison Break (20:22) 16.00 HM stúdíó
22.20 CurbYourEnthusiasms 16.10 HM 2006 (Kosta Rfka - Pólland)
22:50 Twenty Four (20.24) (24) 18.00 HM stúdíó
2335 Bones (8.22) (Bein) 18.50 HM 2006 (Svíþjóð - England)
00.20 Triumph oftheSpirit 21.00 442
02.20 DNA (DNA 3) 22.00 HM 2006 (Paragvæ - Trinídad og
03.30 Sometimes They Come Back For Tóbagó)
More) 23.45 HM 2006 (Ekvador- Þýskaland)
04.55 Simpsons (1:21) 01.30 HM 2006 (Kosta Ríka - Pólland)
05.20 Fréttir og (sland í dag
06.25 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí
U/ NFS
07.00 fsland í bítið
09.00 Fréttavaktin fyrir hádegi
11.40 Brot úrdagskrá
12.00 Hádegisfréttir
12.00 Hádegisfréttir
13.00 Sportið
14.00 Fréttavaktin eftir hádegi
17.00 Sfréttir
18.00 fþróttirogveður
18.30 Kvöldfréttir/ísland í dag/íþróttir
19.00 ísland í dag
19.40 Hrafnaþing
20.20 Brot úrfréttavakt
20.30 Örlagadagurinn.
21.00 Fréttir
21.10 48 Hours (48 stundir)
22.00 Fréttir
22.30 Hrafnaþing
23.00 Kvöldfréttir/lsland í dag/íþróttir
00.00 Fréttavaktin fyrir hádegi
03.00 Fréttavaktin eftir hádegi
06.00 Hrafnaþing
STÖÐ 2 - BÍÓ
06.00 Abrafax og sjóræningjarnir
Leyfð öllum aldurshópum.
08.00 Another Pretty Face (Ungfrú
snoppufríð)
10.00 The Banger Sisters (Grúppíurnar)
12.00 Bride & Prejudice (Brúður og
hleypidómar)
14.00 Abrafaxogsjóræningjarnir
16.00 Another Pretty Face (Ungfrú
snoppufríð)
18.00 The Banger Sisters (Grúppíurnar)
20.00 Bride & Prejudice (Brúður og
hleypidómar)
22.00 Movern Callar
00.00 Punch-Drunk Love (Frávita af ást)
02.00 The Others (Hinir)
04.00 Movern Callar
RÁS1 92,4 / 93,5 • RÁS 2 90,1 / 99,9 • Kiss FM 89.5 • Xfm 91,9 • Bylgjan 98,9 • FM 95,7 • X-ið 97,7 • Útvarp saga f 03,3 • Talstööin 90,9
Moss hœttir við sjálfsœvisögu
Johnny Depp vill einfalt líf
Kate Moss er nú hætt við að skrifa
sjálfsævisögu um fíkniefnavandmál
sín og sambandið við rokkarann og
fíkilinn Pete Doherty.
Eftir að myndir voru birtar í
bresku dagblaði sem sýndu Moss
sniffa kókaín ákvað hún að opna
hjarta sitt og tala opinskátt um
vandamál sitt. Hana langaði
að skrifa bók til að saga henn-
ar yrði sögð í heild sinni og
vonaði hún að það mundi slá
á kjaftasögurnar.
Moss er nú hætt við þessi
áform því lögreglan hefur
ákveðið að ákæra hana
ekki fyrir fíkniefnaneysl-
una. „Það hefði verið mjög
viturlegt af Kate að gefa út
bók um hneykslið á sínum
tíma, þegar það kom upp, til
þess að slá á sögurnar og þess-
háttar. Hins vegar hefur hún rétt
úr kútnum núna og þá er einfald-
lega óþarfi að vera að minna fólk
á þetta leiðindaatvik og erfiða fortíð
hennar,“ segir Mark Borkowski, sér-
fræðingur í fjölmiðlamálum stjarn-
anna.
Hinn 43 ára gamli Johnny Depp
vill helst vera í Frakklandi þar sem
hann getur notið þess að fara huldu
höfði og fær minni athygli en í
Bandaríkjunum. „Ég hef alltaf elsk-
að Frakkland. Síminn hringir ekki
eins mikið. Enginn talar við mig um
kvikmyndir. Ég fer með krökkunum
út á tramp-
ólínið og í
rólurnar og
svo kem ég
við í garðin-
um okkar og
athuga hvort
tómatarnir
spretta ekki
vel. Æ, þú
veist, ég geri
bara einfalda
hluti, svona
allt og ekki
neitt, og það
er frábært,“
segir Depp
sem kann betur við það að búa í
Frakklandi en að vera í Bandaríkj-
unum þar sem fólk bendir á hann
og hvíslar þegar hann kemur inn á
veitingastaði. „Ég mun aldrei venj-
ast því að fólk bendi á mig og ég
kann ekki við allar myndavélarnar
og flössin," segir Johnny Depp.
Kidman að fara
að gifta sig
Óskarsverðlaunaleikonan Nicole
Kidman kom í gær til Ástralíu og
viðurkenndi að kjaftasögur sem
hafa verið á kreiki um væntalegt
brúðkaup hennar og unnustans,
Keith Urban, væru sannar. Líklegt
er að brúðkaupið verði um næstu
helgi en það er þó enn óstaðfest. í
síðasta mánuði kom Kidman sjálf
sögunum af stað með því að gefa í
skyn að hún ætlaði að
giftast Grammy-
verðlaunahafan-
um Keith Urban.
Fjölmiðlafull-
trúi Urbans
segir að þau séu
hamingjusam-
lega trúlofuð
og vonandi
verður hjóna-
bandið einn-
ig hamingju-
ríkt.