blaðið - 24.06.2006, Qupperneq 35
blaöiö LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006
AFPREYING I 35
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson kannar aðstöðu sportbara í Reykjavík
HM veitingahúsarýni
Gaukurástöng ++++
Gaukur á stöng hefur
aðalatriðin á hreinu og kemur vel
undirbúinn til leiks. Tvö tjöld eru
á neðri hæðinni og tvö tjöld á efri.
Gæði myndvarpanna mættu vera
meiri, einkum þess stærsta, sem er í
stóra salnum á neðri hæðinni (það er
einhvers konar baklýsing á tjaldið). Á
efri hæðinni var annar myndvarpinn
vanstilltur, en hinn var fínn. Besta
tilboðið: Hamborgari, franskar og
bjór á 1.000 kr. Aðsókn er ekki mikil
á Gaukinn (miðað við stærð) sem er
gott fyrir þá sem vilja sæti á besta
stað. Gauks-menn fá mínus fyrir að
loftræstingin var í botni um daginn
og kældi mann niður fyrir frostmark
(það sogar þó viðbjóðslegan reykinn)
og mínus fyrir að hafa ekki opið uppi
alla daga.
Victor ★ ★★★
Ekki nógu gott. Tjaldið er lítið og
skakkt, myndvarpinn er að syngja
sitt síðasta og birtan að utan er allt of
mikil. Þau hafa ekki einu sinni rænu
á að slökkva á halogen-ljósunum á
veggjunum þegar útsendingar eru.
Sætin eru þó ágæt. Tilboðið er gott,
1.100 kr. borgari og bjór. Ekki fara
þangað nema til að borða þvi matur-
inn er fínn.
Nú er HM í fullum gangi og næsta
víst að einhverjir verða fyrir
hnjaski í þeim átökum. Ef þú
tókst sömu ákvörðun og ég, að
greiða ekki okurverð fyrir að fá
að fylgjast með leikjunum, er hér
fjallað um nokkra bari i miðbæ
Reykjavíkur sem bjóða gestum
upp HM á tjaldi. Það er ekkert
verra að verja fénu í borgara, bjór
og stemningu niðri í bæ.
Hressó
Hressó er með eitt tjald innst á
staðnum. Myndvarpinn er öflugur
og tjaldið stórt og slétt. Birta að utan
truflar ekki. Fáir nýta sér aðstöðuna
sem er gott, yfirleitt nóg af sætum
á besta stað. Stór galli er að þeir
sem þar eru reykja eins og þeir fái
greiddan sérstakan bónus frá Philip
Morris fyrir hvern reyktan vindling.
Fer sjaldan þangað vegna reyksins.
HM-tilboðið þeirra er ekki hagstætt;
1.390 krónur fyrir borgara og bjór.
Stóran, stóran, stóran mínus fá Hress-
ómenn fyrir að taka niður tjaldið á 17.
júní vegna blöðru- og fánafólksins.
Hvílíkt karakterleysi! Hressó auglýsti
HM-tjald úti í garði, en það hefur nán-
ast rignt síðan HM byrjaði, svo mér
hefur ekki tekist að taka það út. Það
hljómar reyndar súrrealískt að vera
með mynd á tjaldi um hásumar á Is-
landi en gengur vonandi upp. Það er
gott fyrir reyklausa.
Laugar ★★★
Fyrirtaks staður! Er uppi á lofti yfir
anddyri stöðvarinnar. Myndvarp-
inn mætti vera sterkari en aðstaðan
er til fyrirmyndar. Fáir virðast vita
af þessum stað sem er stór plús. Fjar-
lægðin frá miðbænum er mínus. Til-
boðið var gott, 1.100 kr. borgari og
bjór, minnir mig. Stærsti kosturinn
við Laugar er að þar er ekki reykt.
Glaumbar ★
Glaumbar sá gamli og rótgróni staður
er með boltann eins og venjulega.
Glaumbar er ekki sérlega heppilegur
sportbar þar sem hann er meira og
minna undir súð. Þó er ágætis tjald
inni í enda, en gallinn er sá að það
geta bara um það bil 10-manns horft
á það svo vel sé. Mörg sjónvörp bæta
úr plássleysinu. Ég leit þar við um
daginn og fékk ekki sæti með góðu út-
sýni þó staðurinn væri nánast tómur.
Mínus fyrir það. Hef ekki hugmynd
um hvort þeir bjóði mat, en veit að
þeir selja kaffi og gos.
GILDIR EINNIG UM SÓLARVÖRUR í MERKJASNYRTIVÖRUM
LANCÖME, HELENA RUBINSTEIN, CLINIQUE, BIOTHERM, GUERLAIN, ESTÉE LAUDER
Gildir í Lyf & heilsu út júnímánuð 2006
VLyf&heilsa
Við hlustum!
Pravda
Pravda er líka með HM, en tjöldin
eru 1 minni kantinum. Hef ekki
horft á leik þar, en hef hann samt
með hér svo lesendur viti af honum.
Reykjarsvæla
Hvenær munu veitingahúsaeigendur
átta sig á því að stór hópur fólks sem
ekki reykir sniðgengur staði þeirra?
Ég vil ekki lykta eins og öskubakki
og forðast því reykmettaða bari. Ég
styð þó reyksoppa í viðleitni sinni
við að drepa sig, það er þeirra val.
En ég vil gjarnan hafa val líka, val
um reyklausan stað í miðborginni
með HM-tjaldi. Þangað vil ég beina
viðskiptum mínum.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Oft getur hitnað í kolunun á ögurstundu og þessir ungu herramenn réðu sér vart fyrir kæti