blaðið - 12.08.2006, Síða 7

blaðið - 12.08.2006, Síða 7
blaðið LAUGADAGUR 12. ÁGÖST 2006 FRÉTTIR I 7 Hraðakstur: Sex brot á einu ári Tæplega þrítugur karl- maður hefur gerst sekur um hraðakstursbrot sex sinnum á þessu ári og þar af fjórum sinnum á aðeins hálfum mán- uði. Maðurinn var stöðvaður í sjötta skiptið síðastliðinn fimmtudag, en hann hefur samkvæmt lögreglunni í Reykjavíkþurft að greiða alls 170 þúsund krónur í sektar- greiðslur fyrir brotin sex. Ökumaðurinn hraðskreiði hefur nú fengið á sig ellefu punkta vegna hraðaksturs- brota sinna og fái hann einn punkt í viðbót verður hann sviptur ökuleyfi í þrjá mánuði. Framsókn: Birkir Jón í slaginn Birkir Jón Jónsson, alþing- ismaður, ætlar að bjóða sig fram til embættis ritara Framsóknarflokksins. Birkir etur kappi við Hauk Loga Karlsson um embættið. Haukur tilkynnti framboð sitt að loknu sumarþingi flokksins. Flokksþingið hefst eftir viku. Siv Friðleifsdóttir, Jón Sigurðsson, Lúðvík Gizurarson og Haukur Haraldsson gefa kost á sér í formannsembættið. Jónína Bjartmarz og Guðni Ág- ústsson til varaformanns. Lögreglan: Fjórtán ára undir stýri mbl.is Fjórir piltar, sautján og átján ára, voru teknir fyrir hraðakstur, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Lögreglan í Reykjavík hafði einnig afskipti af 14 ára strák, sem sat undir stýri bifreiðar. Með honum voru þrír farþegar og var öllum gert að yfirgefa bílinn. Sérfræðingar Efnahags- og framfarastofnuninnar: Ríkisstjórn dragi úr útgjöldunum Sérfræðingar Efnahags- og fram- farastofnunarinnar (OECD) segja að umsvif íslenska ríkisins hafi þanist út á þeim tíma þegar draga átti seglin saman. Skýrsla stofnunarinnar um ís- lensk efnahagsmál var kynnt á fundi í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík í gær og kom þar fram að bæði ríkis- stjórnin og Seðlabanki Islands verði að veita strangt aðhald í efnahags- málum. Nauðsynlegt er að koma á jafnvægi í efnahagsmálum og mæta þensluáhrifum skattalækkana með frekara aðhaldi, meðal annars með því að fresta stóriðjuframkvæmdum. Val Koromzay, yfirmaður land- rannsókna á efnahagsdeild OECD, segir hins vegar að í alþjóðlegum samanburði sé efnahagur Islendinga nokkuð góður. I skýrslunni segir að mælt sé með að metið verði í grund- vallaratriðum hver ávinningurinn af stórframkvæmdum sé, þar með talið umhverfisþátta og notkun framleiðsluþátta. I skýrslunni segir að skoða verði stöðu íbúðalána- sjóðs, og að sjóðurinn búi við for- skot umfram aðra lánveitendur á húsnæðismarkaði. Talsvert er fjallað um menntamál í skýrslunni og bent á að árangur íslendinga í menntamálum sé ekki í samræmi við efni þjóðarinnar, né það fé sem lagt sé til menntamála. Ár- angur Islendinga er í meðallagi þrátt fyrir að hlutfall þjóðarframleiðslu sem rennur til menntamála sé það hæsta meðal OECD-ríkja. f Þjóðmenningarhúsinu Sérfræðingar OECD segja umsvif íslenska ríkisins hafa þanist út. mJÉÉÉÍ SUND ER SLÖKUN AFGREIÐSLUTÍMI LAUGA Virka daga frá kl. 6:30 - 22:30 Helgar kl. 8:00 - 22:00 afgreiðslutími er mismunandi eftir sundstöðum, sjá nánar á www.itr.is Stakt gjald fullorðnir 280 kr. 10 miða kort fullorðnir 2.000 kr. Stakt gjald börn 120 kr. 10 miða kort barna 800 kr. Sund er æóislegt www.itr.is 1 sími 411 5000 tmm Laugarnar í Reykjavík (

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.