blaðið - 12.08.2006, Síða 10

blaðið - 12.08.2006, Síða 10
10 I ÁLIT LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 blaftiö Jónas Kristjánsson á jonas.is Stríð og stóriðja Islenzk stjórnvöld eru andvíg gegnsæi. Þau vilja ekki, að kjósendur fái að vita, hvað er borgað fyrir rafmagn til stóriðju. Þau vilja ekki, að kjósendur fái að vita, hvað stendur í samningum við Bandaríkin um svokallaðar varnir landsins. f báðum tilvikum telja stjórnvöld heppilegt, að fólk fái ekki upplýsingar, sem gera því kleift að taka afstöðu í stjórnmálum. Gegnsæi er nefnilega hornsteinn lýðræðis, jafngildur sjálfum kosningunum. Þess vegna er ríkisstjórnin andvíg gegnsæi í stóriðju og stríðsmálum. Brw m ■ L Treystu aldrei löggu Talsmaður löggunnar á Austurlandi sagði rangt, að löggan þar veittist að fólki með ofbeldi. Um leið og hann sagði þetta í sjónvarpinu, sýndi sjónvarpið myndskeið af honum sjálfum, þar sem hann veittist harkalega að ljósmyndara. Það kom í ljós, að talsmaður- inn laug. Þannig starfar löggan. Hvergi er meiri tilfinn- ing fyrir andstöðu „okkar“ og „þeirra“ en einmitt hjá henni. Hún er sú stétt, sem mesta hópsál hefur. Þvi vita menn, að engir ljúga eins mikið og löggur. Dæmin sýna það um allan heim. Treystu aldrei löggu. BJÓÐUM STÓRKOSTLEGT ÚRVAL HEIMILISTÆKJA, VEGGSJÓNVARPA, HLJÓMTÆKJA O.M.FL. MEÐ 15-40% AFSLÆTTI MEÐAN BIRGÐIR ENDAST! SAMSUNG DVD-1 25 DVD upptökutæki og spilari Verð áður: 264.900 kr. TILBOÐSVERÐ: 219.900 kr. Þú sparar: 45.000 kr Pottar og pönnur 25-40% afsláttur Strjáujárn 20% afsláttur Frábært úrval af DVD hljómleikadiskum 20% afsláttur tölvuleikir frá 590 kr. stk. UPPÞVOTTAVEL MEÐ ÍSLENSKU STJÓRNBORÐ! STÁL: 89.000 kr. HVÍT: 79.000 kr. 1700W Turbo ryksuga Verð áður: 10.990 kr. TILBOÐSVERÐ: 7.990 kr. Pú sparar: 3.000.- kr ré' S E- SHARR 26” LCD Sjónvarp Verð áður: 149.900 kr. TILBOÐSVERÐ: 1 29.900 kr. Þú sparar: 20.000 kr. Éibrabantia iolid tomp«ny Strauborð, ruslafötur og margt fleira. Hönnun á helms- mælikvarða. "200/0 vafslátturj ÞU GERIR EKKI BETRI NÉ VANDAÐRI KAUP AEG þvottavél 1600 snúninga, 6 kg., Islenskt stjórnborð. AEG þurrkari mjög hljóðlátur, fjöldi prógramma, v (slenskt stjórnborð. ’ Lavatherm 57820 TILBOÐ: KR. 175.000 PARIÐ (Fullt verð: KR. 213.900) KOMDU OG GERÐU GOÐ KAUP! ORMSSON r 1- LAGMÚLA 8 • Sími 530 2800 2- SIÐUMÚLA 9 • Sími 530 2800 3. SMARALINO • Slmi 530 2900 4. AKUREYRI • Símí 461 5000 5. KEFLAVÍK • Sími 421 1535 Veltingur Sigurjóns M. Egilssonar Fjandans peningar Það er mikið talað um peninga og helst vegna þess að sum okkar eiga svo mikið af peningum að við hin hreinlega skiljum ekkert í þessu. Til er nýtt fyrirbrigði, tuttugumilljóna- maðurinn. Einn í okkar hópi hefur það víst svo fjandi fínt að hann þénar á við eitt hundrað vinnufé- laga sína. Eitt hundrað vinnufélaga. Þetta er nú ansi mikið. Svo er til fólk sem á svo mikið að peningum, í nútímanum er það jafnvel kallað að eiga skrilljónir, en það þýðir að þau sem eiga skrilljónir eiga meira en flestir aðrir og langtum meira en hægt er að skilja. Þau sem eiga þessar skrilljónir virðast bara ekkert hirða um að vera með launatekjur eins og við hin. Lifa bara af skrilljónunum, sem er greinilega fínn kostur. Þá þurfa þau ekki að borga nærri eins mikið í skatta og við sem fáum útborgað reglulega fyrir okkar vinnu. Skrilljónafólkið borgar bara kvartskatta. Og það er víst barasta þannig að við hin getum þakkað fyrir framlag þessa ágæta fólks, ef við erum með múður, getur þetta fína fólk flutt sig til landa þar sem hægt er að komast upp með að borga enn þá minna. Það hafa reyndar margir gert. Það er nánast sama hvort þetta fólk er eða fer, það tekur það takmarkaðan þátt í samfé- laginu okkar. Samt held ég að það sé ekkert gott að vera tuttugumilljónamaður. Vissulega vilja allir vera með fín laun og það allt, en eru tuttugu- milljónir ekki um of? Hver kann með þær að fara, gengi kannski á ári, en ekki í hverjum mánuði. Ekki er hægt að kaupa endalaust nýja flatskjái, heita potta, bíla eða sumar- hallir. Einhvern tíma er komið nóg, allir mettast, eða hvað? Kannski er tuttugumilljónamaðurinn sú manngerð sem kann að fjárfesta og margfaldar þannig fínu launin sín og mun þá eftir ekki svo langan tíma fara í flokk þeirra sem greiða bara fjórðung miðað við okkur hin. Sennilega, nema hann nemi land þar sem ekkert þarf að borga, bara njóta. Kannski. Annars eru peningar svolítið merkilegir. Þeir geta brey tt fólki. Þeir sem eiga enga peninga geta ekki veitt sér eins og hinir og þeir verða oft bitrir, hræddir og treysta ekki náunganum. Fara inn í sig. Svo eru þeir sem eiga skrilljónir. Þeir verða líka oft hræddir og hætta að treysta, verða jafnvel bitrir út í samfélagið. Fara jafnvel undan með aflið sitt og vilja halda sem mestu hjá sér, hætta að tíma að borga frá sér, með svipuðum hætti og hinir sem geta það ekki. Hamingjan er ekki til sölu. Það er alveg sama hvað fólk á mikla peninga. Það getur ekki keypt ham- ingju. Ástæðan er meðal annars sú að það er ekki hægt að selja ham- ingju. Það er hægt að gefa hamingju og það er hægt að þiggja hamingju. En þar koma peningar bara ekki við sögu, ekki í sannri hamingju. Mannskepnan er svo fjölbreytt að það sem á við eitt okkar getur barasta aldrei átt við það næsta. Meðan tuttugumilljónamaðurinn hefur áhyggjur af því að gera sem mest og best með alla peningana sína eru aðrir sem vita ekki hvernig þau brauðfæða sig næst. Samt tekst báðum oftast það sem þau ætla sér, einn að græða meira og hinn að borða. Og svo aftur næsta dag og næsta. Heyrði einu sinni af lang- drukknum manni slaga út af Skippernum, sem var alræmd búlla nærri Reykjavíkurhöfn, eftir að hafa slagað kannski fimmtán metra frá kránni rak hann hægri hönd á kaf í buxnavasann. Eftir að hafa haft höndina þar skamma stund, dró hann hana upp og milli vísi- fingurs og þumals var krumpaður fimmhundruðkall. Hann bar hann að augunum til að sannfærast. Virt- ist bara ekki trúa því að hann ætti heilan fimmhundruðkall. Þegar hann sannfærðist, hætti hann við heimferðina, eða hvert sem hann förinin var heitið, og sneri til baka. Átti fyrir einum enn. Auðvitað var hann búinn að fá meira en nóg. Fyrir hann var ekki hægt að sofna með ónotaðan fimmhundruðkall í vasanum. Ekki mögulegt. Hvernig hefði farið fyrir þessum manni þyrfti hann að drekka fyrir tíu millj- ónir eða meira á mánuði. Hann gæti það bara ekki. Þess vegna hefði hann ekkert með það að gera að vera tuttugumilljónamaður. Bara alls ekkert. Það er nefnilega vandasamt að vera tuttugumilljóna- maður og það er sko alls ekki fyrir alla. Aftur að þeirri staðreynd að hvorki gleði né hamingja fást fyrir peninga. Eins eru mörg dæmi iess að þau okkar sem verða rik af leningum breytast, til verða nýjar larfir, ekki bara í efnisleg gæði heldur líka í þá sem fólk umgengst. Skyndiríkir kveðja jafnvel það sem þeir hafa átt, bara vegna auðlegðar. Vissulega er ekki svo um alla. Mörg dæmi eru til fólk sem á nóg og veitir vel, bæði með peningum og ekki síður gjörðum sínum. Ég held að þessir fjandans pen- ingar geti skemmt jafnmikið og þeir geta grætt, þeir geti glatt og valdið sorg og umfram allt geti þeir seint tekið frá fólki tilfinningar, góðar sem slæmar, og aldrei verði hægt að kaupa hamingju, heiðar- leika, velferð eða nokkuð það sem hefst í andanum. Kraftur pening- anna er mikill og þess vegna getur verið strembið að ráða við hann. Það er ekki öllum gefið.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.