blaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 15
blaðið LAUGADAGUR 12. ÁGÖST 2006
FRÉTTIR I 15
Simon Reeve, höfundur ágætrar
bókar um Osama bin Laden og sam-
verkamanna hans, segir A1 Qaeda hafi
breyst úr því að „vera hryðjuverkasam-
tök í það að vera hugarástand“. Það
flækir vissulega baráttuna gegn þeim.
En hugarástand kallar á ytri veruleika
til þess mótast í og ástandið í Pakistan
veitir öfgafullum Islamistum umtals-
vert svigrúm til þess að skipuleggja
hryðjuverk gegn Vesturlöndum.
Úr öskunni í eldinn?
Sérfræðingar telja að þeir sem
stóðu að baki fyrirhugaðri hryðju-
verkaárás hafi annaðhvort verið í
beinum tengslum við leiðtoga A1 Qa-
eda og fengið stuðning samtakanna
til myrkraverkanna eða að þeir hafi,
líkt og þeir sem stóðu að baki hryðju-
verkaárásinni í London, sjálfir haft
frumkvæði að því að setja sig í sam-
band við hryðjuverkahópa í Pakistan
og hlotið þjálfun frá þeim. Báðir skýr-
ingarnar fela í sér slæmar fréttir fyrir
hina hnattrænu baráttu gegn hryðju-
verkum. Annaðhvort sýnir hin fyrir-
hugaða árás að A1 Qaeda samtökin
hafi ennþá getu til þess að skipuleggja
stórfelldar hryðjuverkaárásir eða
að hryðjuverkaógnin sem stafar af
öfgafullum Islamistum hafi splundr-
ast upp í öreindir; fjölmargir hópar
víðsvegar um heim innblásnir af Os-
ama bin Laden hafa getu til þess að
skipuleggja stórfelld hryðjuverk. Hið
fyrrnefnda bendir til þess að baráttan
gegn A1 Qaeda hafi þrátt fyrir allt
ekki tekist sem skyldi. Síðarnefnda
skýringin felur í sér að sú barátta hafi
skilað raunverulegum árangri en að
ný og illviðráðanlegri ógn hafi stigið
úr öskustó samtakanna.
Reyndar felur hið síðarnefnda
í sér hið raunverulega eðli A1 Qaeda.
Oftar en ekki er talað um A1 Qaeda
eins og um væri einhvers konar sam-
tök en nær lagi væri að lýsa A1 Qaeda
sem hugmyndafræði og lauslegu
bandalagi fólks með sameiginleg
markmið og úr þessu hefur orðið til
stoðkerfi fyrir hryðjuverkamenn.
Endurtekið efni?
Athygli vekur hversu lík árásaráætl-
unin er hinni svokallaðri Bojinka-
árás sem komið var í veg fyrir árið
1995. Sú árás var skipulögð í Filipps-
eyjum af Ramzi Yousef, sem stóð að
baki hryðjuverkaárásinni á World
Trade Center í New York árið 1993,
og Khalid Shaikh Mohammed sem
eru nánir samverkamenn Osama
bin Laden. Þeir ætluðu meðal annars
að sprengja upp ellefu bandarískar
farþegaþotur yfir Kyrrahafinu með
fljótandi sprengjuefni sem átti að
koma fyrir í linsuvökvaflöskum. Upp
komst um árásina fyrir tilviljun. Yf-
irvöld komust á sporið í kjölfar þess
að eldur kom upp í hótelherbergi eins
tilræðismannana þegar hann var að
vinna með sprengjuefnið.
Ætla má að sé A1 Qaeda viðriðið
hina fyrirhuguðu árás að hún hafi átt
að vera hin margboðaða stórárás sem
leiðtogar samtakanna hafa boðað und-
anfarin ár. Það sem er sérstaklega ógn-
vekjandi við báðar þessar áætlanir
er að nánast ómögulegt hefði verið
að komast að því hvað hefði valdið
sprengingunum í flugvélunum. Enska
dagblaðið Financial Times hefur eftir
breskum embættismaönnum að
hefði tilræðismönnunum tekist áætl-
unarverk sitt hefðu aðrir getað fylgt í
kjölfarið og notað sömu aðferð til þess
að sprengja upp flugvélar án þess að
sönnunargögn fyndust um hvað hefði
valdið sprengingunum.
Bojinka-hryðjuverkaáætlunin sner-
ist ekki eingöngu um að sprengja upp
farþegaflugvélar. Tilræðismennirnir
ætluðu sér einnig að myrða Jóhannes
Pál Páfa og Bill Clinton, þáverandi for-
seta Bandaríkjanna, og ræna flugvél
og fljúga henni á höfuðstöðvar banda-
rísku leyniþjónustunar í Virginíu.
Hliðstæðan milli þessara tveggja
fyrirhuguðu hryðjuverkaárása vekur
upp grun hvort að árásin sem bresk yf-
irvöld komu í veg fyrir hafí verið angi
í stærri áætlun sem kann að verða
framkvæmd fyrr en ætlað var vegna
atburða vikunnar.
Hið svokallaða „hnattræna strfð
gegn hryðjuverkum“ mun halda
áfram um ókomna tíð. Ómögulegt er
að meta hvort að sú árás sem komið
var í veg fyrir sé mælikvarði á hvernig
sú barátta gengur. Hins vegar bendir
hversu langt árásarmennirnir voru
komnir með skipulagningu á myrkr-
arverkunum til þess að hópar, hvort
sem þeir njóta stuðnings A1 Qaeda
eða einhverra hryðjuverkasamtaka,
hafa enn, þrátt fyrir aðgerðir stjórn-
valda víðsvegar um heim, getu til þess
að fremja hryðjuverk af svipaðri stærð-
argráðu og þau sem eru kennd við 11.
september 2001. En vonandi benda
atburðir vikunnar einnig til þess að
geta ríkja til að afstýra slíkum ógnar-
verkum hafi aukist.
Tímannatákn
Vel vopnaður Breti stendur vaktina á
viðsjárverðum tímum. 24 eru íhaldi
lögreglunar grunaðir um að hafa
ætlað að sprengja tíu flugvélar.
UTSALA 30 - 60% AFSLATTUR
Komið um helgina og gerið bestu kaupin
46%
Sófasett svart hamrað leður 3+1+1
Verð áður: 241.670
Tilboðsverð nú: 129.000
- 47%
Hægindasófasett Bycast leöur. Svart/dökkbrúnt 3+1+1
Verð áður: 359.070
Tilboðsverð nú: 189.000
- 30%
Tungusófi
Verðáður: 141.570
Tilboðsverð nú: 99.000
I
I
Sjón er sögu ríkari
znbÉvss í '"'Ttw.','íhí
Stofuskenkur 200x46x85 Litur: Eik Natur
Verð áður: 112.970
Tilboðsverð nú: 69.000
1 Komið og skoðið frábært úrval af
glæsilegum húsgögnum nú með
L 30 - 60% afslætti.
\ Seljum einnig minniháttar
útlitsgallaðar vörur á enn lægra verði
30%
Svefnsófi. Litir: Ijós, dökkur og svartur
Verð áður: 69.900
Tilboðsverð nú: 49.000
Borðstofuborö 200x100x72 Litur: Eik Natur
Verð áður: 84.370
Tilboðsverð nú: 49.000
Borðstofustóll PU - litir: svartur, hvitur og dökkbrúnn
Verð áður: 14.157
Tilboðsverð nú: 8.900
Borö og 6 stólar
Tilboðsverð nú: 95.000
BOHEMIA
vöruhús
Askalind 2 - 201 Kópavogur
S: 544 2290 - www.bohemia.is
Opið Laugardag og Sunnudag 10-18