blaðið - 12.08.2006, Síða 26

blaðið - 12.08.2006, Síða 26
26 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 12.ÁGÚST2006 blaöiö Aftur í rokkið Daníel Ágúst býr ásamt fjölskyldu sinni í miðbæ Reykjavíkur ífalleguhúsi á tveimur hæðum. Hann var svolítið þreyttur þegar ég bankaði upp á, enda hafði hann brugðið sér í miðnæturveiðitúr ásamt félögum sínum kvöldið áður og komið seint heim. Daníel hellti upp á kaffi, bauð mér Turkish Delight og við byrjuðum að spjalla. Fyrst lék mér forvitni á að vita hvaða tónlistarstefnur hafi mótað þennan ágæta listamann og hvað hann hlustaði á sem barn. „Þegar ég var svona sex ára hélt ég mikið upp á Elvis Presley. Ég safnaði af honum litlum myndum, eins konar leikaramyndum, og leit á hann sem mikla hetju. Ég man til dæmis að ég tók allar plöturnar mínar með honum út í sveit eitt sumarið á bóndabæ á Grímsstöðum á Fjöllum. Þar setti ég þær allar út í glugga til að sýna kindunum og kúnum hvað ég ætti gott plötusafn. En þær náttúrulega bráðnuðu og beygluðust í sólinni og þá þurfti ég að hætta að hlusta á hann og við tóku margs konar tegundir af tónlist. Mamma mín, Guðný Daníelsdóttir læknir, átti, og á reyndar enn, mjög gott plötusafn. Bæði klassík, popp og rokk. Ég gekk bara í þetta plötusafn og hlustaði á það sem fyrir varð. í þessu safni kennir ýmissa grasa allt frá Pink Floyd og Bítlunum yfir í Ninu Simone, Beethoven og Bob Dylan,“ segir Daníel og bætir því við að móðir hans hafi ekki komið nálægt því að semja tónlist þrátt fyrir þetta fína plötusafn, en faðir hans, Harald G. Haralds leikari, söng þó um skeið með KK sextettinum á sínum tíma. Innblástur í belgískum kastala Fyrir ári síðan fluttu Daníel, Gabríela og Daníela frá Belgíu, en þau bjuggu í Brussel í þrjú ár þar sem þau störfuðu að list sinni. Er mikill munur á því að starfa að listsköpun erlendis en hérheima? „Já, mér finnst mun betra að vinna úti enda er meiri vinnufriður þar. Maður þekkir færri þegar maður er að koma sér fyrir á nýjum stað og það fer vissulega púður í það að kynnast nýju fólki og umhverfi, en um leið verður allur innblástur sterkari." 1 Belgíu höfðu Daníel og Gabríela einstaka vinnuaðstöðu í gömlum kastala. Daníel segir að þetta umhverfi hafi veitt honum mikinn innblástur: „Dvöl okkar í kastalanum kom þannig til að við kynntumst arkitekt, Birgi Jóhannssyni, sem var að gera upp þennan kastala sem var í eigu Gunnars Björg en Gunnar Björg er vel efnaður íslendingur sem var eitt sinn viðriðinn Cargolux. Hann réði Birgi Jóhannsson til að gera kastalann upp og þannig kom það til að Birgir bauð okkur að vera með vinnuaðstöðu á þessum merkilega stað. Þar vorum við svo þrjú; ég, Gabriela og Birgir í risastóru húsi að vinna að hugðarefnum okkar. Kastali Iþessum Belgíska kastala unnu Daníel og Gabríela í tæp þrjú ár. Vinnuaðstaðan var sérstaklega skemmtileg af því það var svo mikið næði í þessu stóra húsi. Maður gat lokað sig af ef maður vildi en svo var líka hægt að rölta yfir og rabba saman ef því var að skipta.“ Mér finnst þú vera orðin svolítið sextándu eða sautjándu aldarlegur í útliti upp á síðkastið. Heldurðu að kastalinn hafi haftþessi áhrif? „Það getur vel verið,“ segir Daníel og skellir upp úr. „Það hafði „Maður verður að hafa gaman af því sem maður er að gera, hvort sem það er einhver einn stór brandari eða grafalvarleg list" vitanlega mjög sterk áhrif á mann að vera í þessu sérstaka umhverfi. Síki í kringum kastalann, stór garður með margs konar dýralífi og mikil náttúra. Þetta var heimur út af fyrir sig.“ Einfalt og hægt rokk Um síðustu jól kom út sólóplata Daníels, Swallowed a Star. Sú plata inniheldur margar flóknar útsetningar og var því lengi í vinnslu. Swallowed a Star fékk mjög góða dóma í blöðum en seldist þó aðeins í um þúsund eintökum sem er minna en Daníel á að venjast fyrir verk sín. Hann segist vilja hafa næstu plötu einfaldari og vonar að sú komi út í kringum næstu jól: „Fyrstu demóin sem ég samdi fyrir þessa plötu sem ég hyggst gefa út í vetur eru kannski fjögurra ára gömul. Það sem mig langar að gera með henni er eitthvað annað en ég gerði sfðast, en það er nauðsynlegt til að halda áhuga mfnum á tónlist lifandi. Nú er ég að gera blátt áfram og einfalt, hægt rokk. Það má líka segja að ég kunni betur inn á rokkið enda byrjaði ég á því sautján, átján ára gamall þegar ég var með Nýdönsk," segir Danfel. Fimm línur á Qórum mínútum Á sólóferli sínum hefur Daníel valið að skrifa textana á ensku, en eins og margir vita voru/eru liðsmenn Nýdönsk ansi lunknir við textasmfðar. „Ég valdi að skrifa á ensku enda er maður oft að flækja hlutina fyrir sér á íslenskunni. Ég eyði samt miklum tíma í textagerð og finnst það mjög skemmtilegt. Það er gaman að reyna að fanga hugsanir og setja þær í fimm línur sem hljóma á fjórum mínútum. Þetta er knappt form en mér fannst þetta orðið of flókið á íslensku, fyrir utan það að mig langaði til að stækka hlustendahópinn. Það skilja fleiri ensku en íslensku í heiminum sjáðu til... svo er ég svo óeigingjarn, vil að fleiri fái að skilja mig,“ segir hann kíminn og stendur upp til að ná sér í vatnsglas. Fylltist örvæntingu Hver eru yrkisefnin þín? „Bara það sem er að gerast í höfðinu á mér. Á þessari nýju plötu eru textarnir töluvert dekkri en á þeirri sem kom út um síðustu jól. Á Swallowed a Star var meira sólskin. Svo fór ég að vinna textana á næstu plötu á sama tíma og ég var að reyna að koma Swallowed a Star út. Við það fylltist ég oft örvætingu yfir þvf að enginn, og þá sérstaklega hljómplötuiðnaðurinn, skildi hvert ég væri að fara með þessari músík. Stundum var ég heldur ekkert of bjartsýnn og það endurspeglast í textagerðinni. En það er samt alltaf von, er það ekki?“ spyr hann í gamni og alvöru og ég jánka enda orðin spennt að fá að heyra plötuna sem fór einvern veginn fram hjá mér í síðasta jólaplötuflóði. Engin málamiðlun Finnst þér það þess virði að fórna listrcenum metnaðifyrirsöluvöru, eða að draga úr einhverjum ákveðnum þáttum með því markmiði að tónlistin seljist betur? „Ef listrænir einstaklingar eru að verki þá skín það alltaf í gegn um tónlistina. Hvað sem þeir ætla sér að gera, vinsælt popp eða ekki. Það að gera eitthvað fyndið og skemmtilegt þarf ekki endilega að leiða til málamiðlana eða rýra gæði tónlistarinnar. Maður verður að hafa gaman af því sem maður er að gera, hvort sem það er einhver einn stór brandari eða grafalvarleg list.“ Spilaði á þjóðlagatónlistarhátíð í Belgíu Nýlega tróðu Daníel Ágúst og Borgar Magnason bassaleikari, upp á skemmtistaðnum Sirkus við Klapparstíg. Ætlunin með þeim tó'nleikum var að hita svolitið upp fyrir þjóðlagatónlistarhátíð sem þeir félagar spiluðu á í Belgíu um síðustu helgi. „Mig langaði til að prófa að flytja þessi nýju lög mín áður en við færum út, en ég ldæddi þau í sérstakan þjóðlagabúning fyrir þetta tilefni. Ég veit ekki hvenær ég spila næst hér f Reykjavík. Það er annað að skipuleggja hljómsveitastarf í dag en það var fyrir tæpum tveimur áratugum síðan þegar hljómsveitarmeðlimir þurftu ekki að vinna sjö vinnur í einu. Fólk er að gera ýmislegt annað en að vera f hljómsveit og það tekur tíma og fyrirhöfn að pússla þessu saman. En ég geri samt fastlega ráð fyrir því að við munum spila einhvers staðar í nánustu framtíð,“ segir þessi stórgóði tónlistarmaður að lokum en fyrir þau sem vilja vera viss um að heyra í honum, má geta þess að Daníel og hljómsveit hans verða meðal þeirra sem stíga á stokk á Iceland Airwaves hátfðinni sem verður haldin að venju í október næstkomandi. Margrét Hugrún Gústavsdóttir MYIID/STEINAR HUGI i ■ Daníel Ágúst Haraldsson er landsmönnum löngu kunnur. Um árabil starfaói hann með hljómsveitinni Nýdönsk, þarnæst gekk hann til liðs við fjöllistahópinn Gusgus en undanfarin ár hefur hann verið sjálfstætt starfandi tónlistarmaður, ásamt því að vinna að margs konar listsköpun með eiginkonu sinni, Gabrielu Friðriksdóttur.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.