blaðið - 12.08.2006, Side 30
30
LAUGARDAGUR 12.ÁGÚST2006 blaðiö
uij yúiii
1. Hvað fær maður sér áður
maður fer að borða?
2. Af hverju fljúga fuglarnir
suður á veturna?
3. Hver vinnur við að koma við-
skiptavinum sínum íburtu?
4. Hvað sagði Ijóskan þegar
hún kíkti ofan í Cheerios-pakk-
ann?
5. Afhverju eru slökkviliðs-
menn með rauð axlabönd?
2JÍ)
Nafn?
Hrólfur Sturla Rúnarsson.
Hvenær áttu afmæli?
21. desember 1995.
I hvaða skóla ertu og
í hvaða bekk?
Ég er í Engidalsskóla I Hafnarfirði
og er að fara í 6. bekk.
Hvað finnst þér skemmtileg-
asta fagið í skólanum?
Tölvur, frjálsi tíminn. Þá erum við
bara inni á leikjanetinu að gera
eitthvað. Það finnst mér gaman.
Æfirðu einhverja íþrótt?
Ég æfi fótbolta en er núna í körfu-
boltaskóla Hauka. Fótboltinn
byrjar samt alltaf á sama tími og
körfuboltinn, en körfuboltaskólinn
er bara í tíu daga, svo ég fer aftur
í fótbofta þegar hann er búinn.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera?
Mér finnst skemmtilegast að
spila tölvuleiki á PC tölvu. Uppá-
haldsleikurinn minn er Sims2 en
í honum býr maður til fjölskyldur
og fólk og hugsar um það, gefur
því að borða og lætur það fara í
vinnuna og svona.
Hvað langar þig að verða
þegar þú verður stór?
Ég er ekki alveg búinn að ákveða
það en ég held að ég vilji helst
verða bankastjóri. Þá fær maður
svo há laun. Ég kannast við einn
bankastjóra og hann virðist hafa
efni á nokkrum Sims-leikjum.
Hvaða kvikmynd sástu síðast
og hvernig fannst þér hún?
Pirates of the Carabian. Dead
Man's chest. Mér fannst hún
mjög góð en mér fannst endirinn
fáránlegur og skrítinn. Þetta var
enginn endir.
Hver er uppáhalds
maturinn þinn?
Pizza með pepperoni og kók.
Hver er uppáhalds tölvu-
leikurinn þinn?
Sims 2 er uppáhalds tölvuleikur-
inn minn en næstskemmtilegast
finnst mér að spila Red Alert-
leiki. í þeim á maður að búa til
her og reyna svo að stúta hinu
liðinu.
Hvernig tónlist finnst þér
skemmtilegast að hlusta á?
Þungarokk; til dæmis System
of a Down, AC/DC, Iron Maiden,
Led Zeppelin, Jimi Hendrix og
fleiri þó að Jimi Hendrix sé varla
þungarokk. Mér finnst Magni
líka mjög góður í Supernova og
ég fíla Coldplay þó að það sé
ekki þungarokk. Fannst t.d. flott
þegar Magni tók lagið Clocks.
Hvað gerðiru í sumar?
Ég fór í Vatnaskóg, á Flúðir og
sigldi niður Hvítá. Fór á sælu-
helgi á Suðureyri og í ferðalag
norður í land. Eg var líka mikið í
fótbolta og stundum í tölvunni.
Ef þú fengir eina ósk, hvers
myndirðu óska þér?
Að eignast alla Sims-tölvuleikina.
Þá má nota til að gera ýmis leikföng. Til dæmis hús, eldavél, sjónvarp og margt fleira.
Það eina sem þú þarft er foreldri, tússpenni og góður hníf ur til að skera út glugga og dyr.
Löggan:
Fyrirgefðu herra minn, ég verð
því miður að sekta þig fyrir að
aka á yfir hundrað kílómetra
hraða á klukkustund.
Gamall maður:
Já, en ég er bara búin að keyra í
tíu mínútur!
Þrir sjómenn fengu hafmeyju i
netið hjá sór. Hún sagðist gefa
hverjum þeirra þrjár óskir ef
þeir leyfðu henni að sleppa.
Sá fyrsti sagðist vilja verða
40% gáfaöari og hún gerði
hann 40% gáfaðari.
Annar vildi verða 60% gáf-
aðari og hún gerði hann 60%
gáfaðari.
Þriðji sagðist vilja verða
100% gáfaðari en þá sagði hún
-Ertu viss? Það á mikið eftir að
breytast ef þú verður 100% gáf-
aðari. Hann sagðist vera alveg
viss og þá breytti hún honum
í konu.
Ég er ekki með lungu en samt
þarf óg loft; ég er ekki lifandi
en samt stækka ég; óg er ekki
með likama en samt þoli ég
ekki vatn. Hver er óg?
fi a g ír ife
J3Ö512jii ailífítMja
3$) 3'BUhí
ly.
smni
iöj
Svör við bröndurum:
7ddn uununxnq ep/ei/ ge n± 'g
læjjefBuuqnujaM /e/\ p
ugfjSuqnBia-i £
■geBúecj éBueB
QB )Buei jO J3 QBCj JACj j\/ Z
iiæs 7
Svar við gátu:
jnpB
að eru ekki margir
krakkar í heiminum sem
vinna fyrir sér sem leik-
arar. Hvað þá Hollywood-leik-
arar sem græða mjög mikinn
pening í hvert sinn sem þau
koma fram í mynd. Freddie
Highmore er einn af þessum
krökkum en margir muna eftir
að hafa séð hann fyrst í mynd-
inni Finding Neveriand og svo
í Charlie and the Chocolate
Factory.
Freddie Highmore fæddist þann
14. Febrúar árið 1992 í London í
Englandi. Hann hefur leikið í kvik-
myndum og sjónvarpsþáttum frá
því hann var sjö ára en hann kom
fyrst opinberlega fram í sjónvarps-
myndinni Walking on the Moon.
Mamma Freddies vinnur við að
finna hæfileikafólk og pabbi hans
er leikari. Hann lék til dæmis pabb-
ann í myndinni um Jóa og Bauna-
grasið sem Freddie Highmore lék
íárið 2001.
Hann spilar á klarinett, er að læra
á gítar og uppáhalds bókin hans
er Bjargvætturinn í Grasinu eftir
J.D. Salinger. Freddie er líka að
læra frönsku. Eitt af því erfiðasta
sem hann hefur gert í vinnunni
sinni var að leika í Finding Never-
land af því aðdáendur Johnny
Depp stóðu víst alltaf rétt hjá og
öskruðu -Við elskum þig Johnny!
Næsta mynd sem kemur út með
Freddie Gilmore heitir A Good
Year, en í henni leikur hann t.d.
með Russel Crowe sem margir
kannast við úr myndinni The
Gladiator.