blaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 blaöið VEÐRIÐ í DAG Hægviðri Hægviðri og skýjað með köflum en rign- ing austanlands. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Hæg norðanátt um mestallt land. ÁMORGUN Rigning Austlæg átt og fremur vætusamt en þó milt veður. Heldurfer þó kólnandi næstu daga. VÍÐA UM HEIM Algarve 23 Glasgow 19 New York 18 Amslerdam 23 Hamborg 21 Orlando 23 Barcelona 20 Helsinki 16 Osló 17 Berlín 23 Kaupmannahöfn 20 Palma 23 Chicago 16 London 20 París 21 Dublin 16 Madrid 23 Stokkhólmur 18 Frankfurt 24 Montreal 15 Þórshöfn 13 Fötluð ungmenni: Fá hvergi inni eftir að skóla lýkur ■ Stofnanir vísa hver á aöra ■ Kostar 60 þúsund á hvert ungmenni Reykjavík: Einstefna á Vesturgötu Breyting hefur verið gerð á akstri um Vesturgötu í Reykja- vík. Frá gatnamótum Vesturgötu og Ægisgötu að gatnamótum Vesturgötu og Garðastrætis er nú einstefna til austurs. Á gatna- mótum Vesturgötu og Ægisgötu er jafnframt stöðvunarskylda og skulu ökumenn sem fara um Vesturgötu nema staðar fyrir þeim sem aka Ægisgötu. Nígería: Geit breyttist í lík ættingja Nígerískur maður sem er ákærður fyrir að hafa myrt bróður sinn með öxi segist vera með öllu saklaus. Hann hafi hins vegar ráðist á geit og drepið hana með öxi en geitin umbreyttist svo á dularfullan hátt í lík bróður hans. Að sögn nígerískra lög- reglu- yfirvalda staðhæfir maðurinn að nokkrar geitur hafi verið að flækjast á bóndabæ hans og hann hafi ætlað að hrekja þær á brott. Ein þeirra hreyfði sig ekki og þess vegna lagði maðurinn til hennar með öxinni. Trú á svartagaldur og dulræn fyrirbrigði er ekki óþekkt fyr- irbrigði í Nígeríu og stundum halda menn því fram að andar og forynjur hafi platað þá til að fremja myrkraverk. Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net Um 20 fötluð ungmenni fá hvergi inni í kerfinu eftir að skólatíma lýkur þar sem hvorki ríkið né sveit- arfélög eru tilbúin til að taka þau að sér. Foreldrar barnanna eru orðnir langþreyttir á skilningsleysi innan kerfisins og segja hið opinbera hafi brugðist þeim. Ríkið hætti að halda utan um málið síðasta vor og vísaði því til sveitarfélaganna. Málið er nú í kyrrstöðu innan borgarkerf- isins. Móðir 17 ára fatlaðs drengs segir engan vilja taka ábyrgð á mála- flokknum og að stofnanir vísi hver á aðra. Þjónustu hætt „Ég sit uppi með það að tólf ára gömul dóttir mín þarf að bera ábyrgð á 17 ára gömlum bróður sínum á daginn,“ segir Hrafnhildur Kjartansdóttir, flugfreyja og móðir fatlaðs drengs. „Það vill enginn passa fullorðið fólk og þjóðfélagið er þannig að það eru allir í vinnu og hafa nóg á sinni könnu.“ Sonur Hrafnhildar stundar nám við Fjöl- brautaskólann við Ármúla en skól- anum Iýkur venjulega upp úr hádegi. I fyrra var boðið upp á frístundaað- stöðu fyrir þessi ungmenni eftir skólatíma allt til loka vinnudags foreldra. Þessari þjónustu hefur nú verið hætt og þurfa foreldrar sjálfir að útvega börnunum sínum pössun á daginn. Langþreytt á aðgerðaleysi Upphaflega var það Svæðisskrif- stofa Reykjaness sem hélt utan um frístundaaðstöðuna í samvinnu við sveitarfélögin. f kjölfar aukinna um- sókna og breyttra áherslna í starf- inu þótti umsjónaraðilum rétt að málið yrði fært alfarið yfir í hendur sveitarfélaganna. íþrótta- og tómstundaráð Reykja- víkur hefur boðist til að taka málið að sér og hefur lagt fram fjárhags- áætlun þar að lútandi. Felur hún í sér umtalsverðar hækkanir á kostn- aði fýrir sveitarfélögin. Er reiknað með að mánaðarlegur kostnaður á bak við hvern einstakling nemi 60 þúsund krónum en hann var áður í kringum 20 þúsund. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur haft málið til umfjöllunar síðan í vor en engin afstaða liggur fyrir. Telst málið því vera í biðstöðu. Móðir fatlaðrar stúlku sem ekki vildi koma fram undir nafni segist vera orðin langþreytt á aðgerða- og skilningsleysi yfirvalda. Hún segist margoft hafa leitað svara hjá borgar- yfirvöldum en alltaf komið að lok- uðum dyrum. Á meðan þurfi hún nánast daglega að standa í útrétt- ingum til að finna dóttur sinni stað eftir að skóla lýkur. Hranfhildur segir það sorglegt að ekki skuli vera meiri áhugi hjá hinú opinbera á að sinna þessum málaflokki. „Það er alveg sama hvar mann ber niður í málefnum fatlaðra. Það benda bara allir hver á annan. Það er til nóg af peningum í alls konar dekurverkefni á borð við inngöngu í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna en ekki fyrir þessa örfáu einstaklinga.“ Eldur í Varmárskóla: Mjög stolt af börnunum „Óneitanlega var fólki brugðið og börnin urðu mjög hrædd. Ég er virkilega stolt af þeim og starfsfólki skólans,” segir Helga Richter, aðstoðarskólastjóri Varmárskóla, enum klukkan tvö í gær fór brunavarnarkerfi skólans í gang eftir að eldur kom upp í þaki og rýma þurfti skólann í kjölfarið. Alls þurftu á fimmta hundrað einstaklingar að yfirgefa bygginguna og engin slys úrðu á fólki. „Hjá okkur fara reglulega fram brunaæfingar og því gekk allt upp samkvæmt rýmingar- áætlun,” segir Helga. „Búið er að tilkynna atburðinn til allra foreldra og áfallateymi hefur verið kallað saman.” Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæð- isins stendur rannsókn yfir og eldsupptök því ekki kunn. Vamarliöið: Þyrlurnar halda á braut Síðustu þyrluvakt björgun- arsveita varnarliðsins lauk í gærmorgu^ Björgunar- þyrlurnar verða nú teknar í sundur og s|ftar um borð í flugvél semmun flytja þær til herstöðvar Bandaríkjamanna í Bretlandi, ásamt tuttugu varnarliðsmönnum. Landhelgisgæslan hefur tekið tvær þyrlur á leigu, sem munu koma í stað björgunarþyrlna varnarliðsins. Þær koma til landsins í næsta mánuði, en þá mun Landhelgisgæslan ráða yfir fjórum þyrlum. Tuttugu menn, sem eru nú í þjálfun, hafa verið ráðnir til að manna áhafnir nýju þyrlnanna. Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Gæða sængur og heilsukoddar. Heilbrigðisráðherra lofar úrbótum: Ný göngudeild fyrir BUGL verður byggð fljótlega „Ráðuneytið er að vinna í ýmsum málum er snúa að geðheilbrigði og þar á meðal að byggja nýja göngu- deild fyrir barna- og unglingageð- deild Landspítalans,” segir Siv Frið- leifsdóttir heilbrigðisráðherra. Biðtími eftir innlögn hjá BUGL eru fjórtán mánuðir og fjölskyldur barna með geðræn vandmál kvarta sáran yfir því að fá enga hjálp. Yfir- læknir geðdeildarinnar hefur gagn- rýnt harðlega skipulag innan Land- spítalans i geðheilbrigðismálum og segir aðstöðu deildarinnar forkast- anlega. Sviðsstjóri geðsviðs spít- alans vísar til þess að göngudeild muni leysa mikinh vanda. „Eg hef lagt áherslu á það í fjárlaga- gerðinni að byrjað verði sem fyrst á fyrsta áfanga göngudeildarinnar eða í síðasta lagi á næsta ári,” segir Siv. Gongudeild framundan Heilbrigðis- ráðherra segir að hafist verði handa vtö nýja göngudeild BUGL ísíðasta lagi á næsta ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.