blaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 48

blaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 48
4 8 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 blaöiö helgin helgin@bladid.net^^ Tálgað í skóginum Boðið verður upp á skógargöngu i dag klukkan ellefu sem og tálgunarnámskeið fyrir börn við gamla Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur. Hjólaveisla í Hljómskálagarðinum Hjólreiðakeppnin í fyrsta sinn í áttatíu ár í lausu lofti Fimleikafélög víða um land kynna almenningi íþróttina í dag. Samgönguvika í Reykjavík hófst í gær og verður boðið upp á fjöl- brey tta dagskrá næstu daga þar sem fjallað verður um samgöngumál í víðu samhengi. Kastljósinu verður í dag beint að hjólreiðum og borgar- búar hvattir til að draga fram hjólin en hvíla bílinn. Hjólalestir leggja af stað klukkan þrettán úr fjórum úthverfum og eru brottfararstaðir við Sundlaug Vesturbæjar, verslunarmiðstöðina Spöngina í Grafarvogi, Hafnarborg í Hafnarfirði og Árbæjarsafn. Hjólreiðamennirnir halda að Kjar- valsstöðum og þaðan verður farið í einni stórri hjólalest niður í Hljóm- skálagarð þar sem slegið verður upp fjölskylduskemmtun. Pálmi Freyr Randversson hjá umhverfissviði Reykjavíkurborgar segir að hjólaferðirnar séu upplagð- ar fyrir fjölskylduna og ekki eigi að vera mikið vandamál fyrir börn að slást í för með foreldrum sínum. „Ef fólk vill getur það náttúrlega hitt okkur við Kjarvalsstaði. Það er kannski hentugra fyrir mjög ung börn,“ segir Pálmi og bætir við að mjög góð mæting hafi verið á hjóla- deginum í fyrra og þeir reikni með að hún verði jafnvel meiri nú. Hjólreiðakeppni umTjörnina Dagskráin i Hljómskálagarðinum er fjölbreytt og verður meðal ann- ars boðið upp á hjólaþrautir, hjól- reiðafélög kynna starfsemi sína og ungir ofurhugar sýna listir sínar á BMX og fjallahjólum auk þess sem dixíbandið Öndin leikur. Hápunkt- ur dagsins verður Tjarnarsprettur- inn, keppni á götuhjólum umhverf- is Tjörnina, sem hefst klukkan 15.30. Þetta er í annað skipti sem efnt er til Tjarnarspretts en hann verður ár- legur viðburður héðan í frá. „Þetta var í fyrsta skipti í 80 ár sem svona hjólreiðakeppni var hald- in í Reykjavík og menn eru mjög spenntir fyrir henni í ár,“ segir Pálmi. Vilja draga úr stuttum bílferðum „Við erum aðallega að vekja fólk til umhugsunar um val á samgöngu- máta og reyna að fá það til að sjá möguleikann í til dæmis hjólinu," segir Pálmi. „Það eru sífellt fleiri sem eru farnir að nota hjólin á vet- urna og fólk er farið að átta sig á möguleikanum á því að nota nagla- dekk á hjólin. Þetta snýst líka um að klæða sig vel vegna þess að mað- ur getur klætt af sér allan kulda,“ segir Pálmi og bætir við að einnig vilji menn draga úr stuttum ferðum á einkabílum. „Það er svo hátt hlut- fall ferða sem er undir tveimur til þremur kílómetrum þannig að það eru stór sóknarfæri í hjólreiðanotk- un á höfuðborgarsvæðinu. Fólk átt- ar sig ekki á því hvað fjarlægðirnar eru stuttar og veðrið reynist oft mun skárra þegar maður kemur út en þegar maður leit í gegnum glugg- ann,“ segir Pálmi að lokum. SERBLAÐ BÍLAR Þriðjudaginn 19. september Auglýsendur, upplýsingar veita Forskot á sæluna Annað kvöld klukkan 21 verður tekið forskot á Jazzhátíð Reykjavík- ur þegar tríóið Tyft heldur tónleika áNasa. í vikunni kom út nýr diskur með sveitinni sem heitir „Meg Nem Sa“ og segir Hilmar Jensson, gítarleikari Tyftar, að á tónleikunum verði fyrst og fremst leikið efni af honum. „Það má segja að þetta efni sé ansi rokkað þó að það kenni einnig ýmissa ann- arra grasa. Þetta er tiltölulega form- fast miðað við margt af því sem við höfum gert áður,“ segir Hilmar og bætir við að á tónleikum spinni þeir og leiki sér meira með tónlistina en á plötunni. „Við leyfum okkur svolítið meira á tónleikunum. Við getum leyft okk- ur að teygja á ákveðnum stöðum og þeytumst oft úr einu lagi í annað. Við teygjum þetta og togum á okkar hátt.“ Tónleikaferð um Evrópu Tónleikarnir á Nasa verða einu tónleikar sveitarinnar á íslandi að sinni en morguninn eftir heldur hún í tveggja vikna tónleikaferð um Evrópu. Hilmar segir að dagskráin verði nokkuð stíf og þeir spili hvert kvöld. í nóvember halda þeir svo í annað tónleikaferðalag, að þessu sinni um Bandaríkin og Kanada „Við sáum fram á við yrðum allir það uppteknir eftir áramót að við myndum ekki ná saman fyrr en í fyrsta lagi næsta sumar þannig að við ákváðum að nýta allar glufur þetta haust til að túra. Þetta verður því ansi mikill þeytingur út árið en það er raunverulega lúxus að geta spilað með þessum gaurum á hverju kvöldi þannig að maður leggur mik- ið á sig fyrir það,“ segir Hilmar Planað fram í tímann Auk Hilmars eru í Tyft Jim Black sem leikur á trommur og rafhljóð og Andrew DAngelo sem leikur á saxófón, bassa, klarínett og rafhljóð. Meðreiðarsveinar Hilmars búa í Bandaríkjunum og segir hann að það gangi furðu vel að vera í hljóm- sveit með þeim þrátt fyrir fjarlægð- ina. „Við höfum spilað talsvert sem þetta tríó og svo er ég í hljómsveit- inni hans. Jim og ég og Andrew höfum leikið saman í öðrum verk- efnum. Allir erum við talsvert upp- teknir þannig að það er mikið plan- að fram í tímann," segir Hilmar. Fimleikafélög opna dyr sínar Fimleikasamband (slands (FSÍ) stendur fyrir svokölluðum Fim- leikadegi í dag í tilefni af 125 ára afmæli Alþjóðafimleikasam- bandsins. Fimleikafélögin taka þátt í deg- inum með ýmsum hætti og bjóða almenningi að koma og kynna sér íþróttina og það starf sem fer fram innan félaganna. „Við viljum opna deildirnar fyrir sem flestum. Alþjóðafimleika- sambandið hefur hvatt aðild- arsamtök sín til að hafa svona fimleikadaga og þar með gefa almenningi tækifæri til að koma inn í félögin og sjá hvað er verið að gera og kynna sér þá mögu- leika sem í boði eru,“ segir Anna Möller, framkvæmdastjóri FSÍ, og bætir við að gífurleg aukning hafi orðið hjá öllum félögum. „Iðk- endum hjá okkur hefur fjölgað um einhver 1.500 til 1.600 frá skráningu ÍSÍ árið 2005,“ segir Anna sem þakkar aukninguna meðal annars betri aðstöðu og öflugu kynningarstarfi félaganna. Dagskrá hvers félags fyrir sig má nálgast á vefslóð Fimleikasam- bandsins www.fimleikar.is Stemning í réttunum Réttað veröur í landnámi Ingólfs Arnarsonar um helgina. Réttir um helgina Um helgina verða göngur og réttir víða í grennd við höfuð- bogarsvæðið og reyndar víðar. Borgarbörnum gefst því upplagt tækifæri til að bregða sér út fyrir bæjarmörkin og upplifa sann- kallaða réttarstemningu. Hér að neðan er listi yfir helstu réttir í nágrenni borgarinnar: ■ Laugardagur 16. sept- ember: Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, upp úr hádegi Húsmúlarétt við Kolviðarhól, upp úr hádegi ■ Sunnudagur 17. september: Fossvallarétt við Lækjarbotna, klukkan 11 Hraðarétt í Mosfellsdal, um hádegi Kjósarrétt í Hækingsdal, kiukkan 16 Selvogsrétt í Selvogi, síðdegis Þórkötlustaðarétt í Grindavík, klukkan 13 ■ Mánudagur 18. september Selflatarétt f Grafningi, klukkan 9 Ölfusréttir í ölfusi, klukkan 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.