blaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 blaöið Innlend hlutabréfaeign fimm stærstu lífeyrissjóðanna yfir hundrað milljarðar: Veðja á bankastofnanir og útrásarvíkinga Bankarnir meginstoð hagkerfisins ■ Lífeyrissjóðirnir veðja á íslenska útrá ■ Útrásarfyrirtækin bjóða upp á mikla ávöxtun Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net .Athygli vekur að lífeyrissjóðirnir virðast veðja á íslenskt athafnalíf og í tölum þeirra sést þetta greini- lega,” segir Arnar Freyr Ólafs- son, sérfræðingur hjá Greiningu Glitnis. Fimm stærstu lífeyrissjóðir landsins eiga yfir hundrað millj- arða í innlendum hlutabréfum. Helstu fjárfestingar sjóðanna virðast liggja í islenskum bankastofnunum annars vegar og fjárfestingarfyrirtækjum hins vegar. Stefna lífeyrissjóðanna er sú að stærstu eignarhlutirnir séu í skráðum félögum og viðmið á ávöxtun séu vísitölufyrirtæki Kauphallar Islands. „Eðlilegt er að sjóðirnir eigi stóra hluti i bönkunum því þeir eru orðnir stór hluti hagkerfisins. Síðan virðast þeir leggja áherslu á rekstr- arfélögin og það er því ekki aðeins HEILDAREIGN SJÓÐANNA FIMM LÍFEYRISSJÓÐUR GILDI- Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins 42.200.000.000 STARFSMANNA RÍKISINS LÍFEYRISSJÓÐUR Gildi-lifeyrissjóður 42.000.000.000 Kaupþing banki hf. 15.955 milljónir Kaupþing banki 11.874 milljónir Sameinaði lífeyrissjóðurinn Almenni lífeyrissjóðurinn Lifeyrissjóður verzlunarmanna Samtals: Lifeyrissjóðirnir virðast veðja á íslenskt athafnaiíf Arnar Freyr Ólafsson Greiningu Glitnis 13.900.000.000 10.755.000.000 þOgn 108.855.000.000 Skiptir mestu að fá mikla ávöxtun á skömmum tíma Birgir Stefánsson Eignastýringu LSR Landsbanki Islands Actavis Glitnlr FL Group Straumur-Burðarás Mosaic Fashions Atorka Össur 4.796 milljónir 3.975 milljónir 3.581 milljón 1.522 milljónir 1.111 milljónir 1.050 milljónir 804 milljónir 646 milljónir Bakkavör Straumur Burðarás Landsbanki Islands Actavis Glitnir Mosaic Fashions Alfesca Össur 7.935 milljónir 5.869 milljónir 5.366 milljónir 3.793 milljónir 2.180 milljónir 940 milljónir 380 milljónir 357 milljónir bankakerfið sem hefur verið að lána útrásarfyrirtækjunum heldur hafa lífeyrissjóðirnir lika tekið þátt í útrásinni,” segir Arnar Freyr. Ævintýrateg ávöxtun Birgir Stefánsson, hjá eignastýr- ingu LSR, segir lifeyrissjóðina í innbyrðis samkeppni og að þeir reyni að hámarka ávöxtun á sem stystum tíma. „Útrásarfyrirtækin eru einfald- lega stór og eðlilegt er því að sjóðirnir fjárfesti í þessum fyrir- tækjum,” segir Birgir, „t innlendum hlutabréfum skiptir mestu máli að fá mikla ávöxtun á skömmum tíma og hraðan vöxt. Útrásarfyrirtækin henta mjög vel fyrir þessa stefnu.” Veðja rétt Arnar Freyr tekur undir með Birgi að útrásarfyrirtækin henti vel fyrir ávöxtun lífeyrissjóðanna LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA 8>CMM og telur að sú þróun muni halda áfram. „Ævintýraleg ávöxtun hefur 10% vaxtaauki! Frábært TILBOÐ! Kynntu þér málið á spron.is 9 9 9 9 9 9 pÆÍP'típí Óánægja með eiturlosun: Börðu ráðherra út af mengun ■ Sjö látnir ■ Eitur losað á opnum svæðum Hópur ungmenna réðst á sam- gönguráðherra Fílabeinsstrand- arinnar í gær, dró hann út úr bíl hans og börðu til óbóta. Eftir það brenndu ungmennin bíl ráðherrans. Ráðherrann sjálfur er þungt hald- inn eftir árásina. Mikil reiði hefur blossað upp í hafnarborginni Abidjan á Fílabeins- ströndinni vegna þess að eiturefni hafa verið losuð á opnum svæðum í borginni. Vitað er til þess að efn- unum hefur verið sturtað niður á fjórtán stöðum innan borgarmark- anna þar sem ekkert tillit er tekið til mengunar og hættunnar af henni fyrir borgarbúa. Óeirðir brutust út í borginni og krefjast mótmælendur þess að rík- isstjórn landsins segi af sér fyrir að hafa ekkert gert til að sporna við eiturlosuninni. Mengun af völdum eiturefnanna hefur dregið sjö til bana og hátt í 30 þúsund hafa veikst. Forsætisráðherra landsins segir að rannsókn á málinu sé hafin og að hreinsun svæðanna þar sem efnin voru losuð hefjist á sunnudag. blaði Óeiröir í Abidjan Fjöldi ungmenna hefur fariö út á göturnar, lokað þeim fyrir umferð og kveikt í hjólbörðum. Mikil reiði Mótmælendur hafa reist virki á vegum úti og stöðvað alla umferð. Fólkið er afar reitt vegna þess að stjórnvöld hafa ekki komiö i veg fyrir eiturlos- un á opnum svæðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.