blaðið - 16.09.2006, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006
blaöiA
Vextir hækka
Sparisjóðirnir hafa ákveðið að hækka óverð-
tryggða inn- og útlánavexti sína um 0,25 til 0,5
prósentustig. Þessi ákvörðun kemur í framhaldi af
stýrivaxtahækkun Seðlabanka íslands í gær. Vextir
á húsnæðislánum sparisjóðanna breytast þó ekki.
Steiner sleppt
Lögreglan sleppti Franklín Steiner eftir yfirheyrslur í
gær. Húsleit var gerð heima hjá honum og í öðru húsi
um hádegisbil á fimmtudaginn og fannst ætlað þýfi,
hnífar, skotvopn og skotfæri. Þá fannst einnig LSD,
amfetamín og hass en ekki er gefið upp magn þess.
Taktu þátt
Forvarnardagur í grunnskólum sem heitir „Taktu þátt! Hvert
ár skiptir máli" verður haldinn í fyrsta sinn í næstu viku að
frumkvæði forseta Islands. Markmið dagsins er að kynna
nemendum 9. bekkjar grunnskóla ráð til að forða börnum
og unglingum frá því að verða fórnarlömb fíkniefna.
írak:
Bagdad girt
skotgröfum
Iraska ríkisstjórnin lýsti
því yfir í gær að hún hyggist
umkringja Bagdad-borg með
skotgröfum og vegatálmum til
þess að hefta för vígamanna og
hryðjuverkamanna til borgar-
innar. Hægt verður að komast
inn í borgina eftir tuttugu og
átta vegum en við þá alla verða
settar upp varðstöðvar. Radíu-
sinn í kringum borgina er um
áttatíu kílómetrar og er talið
að það taki mánuði að ljúka við
verkið.
Fyrir nokkru tóku banda-
rískar og íraskar hersveitir
höndum saman til þess að koma
böndum á ástandið í Bagdad og
gæta um 30 þúsund hermenn
götur borgarinnar. Þrátt fyrir
þær aðgerðir er ekkert lát á of-
beldisöldunni í borginni.
Bretland:
Kjallari bítils
á minjaskrá
Kjallari í húsi í úthverfi
Liverpool á Englandi hefur
verið settur á minjaskrá
breskra stjórnvalda og hefur
ákvörðunin meðal annars þær
afleiðingar að vernda þarf inn-
anstokksmuni og ekki má rífa
húsið.
Húsið er æskuheimili Petes
Best, fyrsta trommara Bítlanna,
og þeir félagar léku fyrstu
tónleika sína í kjallaranum. En
móðir Best hafði breytt honum
í lítið kaffihús sem gekk undir
nafninu Cashbah-Coffee eftir að
hún hafði frétt af því að svokall-
aðir „bít-klúbbar” væru vinsælir
meðal táninga í borginni.
Sunny Beach Fyrrí sumarlenti
ung stúlka íþvíað vera skorin í
andlitið afþjófi á sama stað
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Ég var stöðvaður af öryggisvörðum
og ásakaður um að hafa brotið rúðu
á veitingastað og hent mat yfir af-
greiðslukassa,“ segir Geir Theódórs-
son, nemi í Menntaskólanum á Ak-
ureyri, sem er ósáttur við hvernig
viðskiptum hans við lögreglu og ör-
yggisverði í Búlgaríu lyktaði. Hann
segir að sér hafi verið haldið nauð-
ugum og hann krafinn um 50 þús-
und krónur fyrir skemmdarverk sem
hann væri saklaus af og misþyrmt af
öryggisvörðunum.
Fyrr í sumar lenti stúlka úr Versl-
unarskólanum í því að vera skorin í
andlitið af þjófi en hún var á sömu
strönd og Geir.
„Ég var að labba heim um nóttina
og var dálítið í því þegar öryggis-
verðir koma að mér og saka mig
um skemmdarverkin,“ segir Geir.
Hann segir að þegar hann reyndi að
útskýra mál sitt þá hafi þeir slegið
hann í hnakkann og sagt honum
að halda sér saman. Hann var dreg-
inn í stól inni á staðnum og sögðu
öryggisverðirnir við Geir að hann
yrði að borga 50 þúsund krónur fyrir
skemmdarverkin.
„Ég bauð þeim bjórsopa og reyndi
að tala við þá en ekkert gekk,“ segir
Geir sem fékk heldur óblíðar við-
tökur vegna tilboðs síns. Tveir örygg-
isverðir héldu honum í stólnum á
meðan einn sló hann ítrekað í mag-
ann. Geir segir að þá hafi hann áttað
sig á alvöru málsins.
„Þeir tóku veskið mitt, hirtu pen-
ingaseðla sem voru í því og svo kortið
mitt,“ segir Geir en af ótta lét hann
mennina einnig fá leyninúmerið.
Geir segist ekki vita hversu mikið
þeir tóku út af kortinu en er að láta
bankann kanna það.
Lögreglan kom nokkru síðar og
hélt Geir að gíslatökunni væri þá
lokið. En svo var ekki.
„Lögreglan sló mig líka í hnakk-
ann þegar ég ætlaði að útskýra hvað
hefði gerst,“ segir Geir en lögreglan
krafði hann um vegabréf sem hann
hafði ekki á sér. Svo varð úr að Geir
sagði þeim á hvaða hóteli hann
gisti og herbergisnúmer. Lögreglu-
að hyggja þá held ég að þetta hafi
ekki einu sinni verið lögreglumenn
því kennarinn minn sagði þá hafa
verið í allt öðruvísi vestum en þeir
á lögreglustöðinni,“ segir Geir en
honum var ráðið frá því að tilkynna
um brotið vegna þess að það tæki
viku fyrir hann að komast að og gefa
skýrslu.
Að sögn Geirs er það verst að hann
fái ekki tryggingabætur vegna at-
viksins því þá þarf lögregluskýrslu
af atvikinu. Hann segir að hann ætli
að endurgreiða féð til kennarans og
félagans með pening sem hann hafði
ætlað að kaupa námsbækur fyrir.
„Það er kannski kaldhæðnislegt að
ég var sjálfur í ferðaráðinu og barðist
manna harðast fyrir því að fara til Bú-
lagaríu,“ segir Geir hlæjandi en tekur
fram að ferðin hafi mestmegnis
gengið ágætlega fyrir sig.
Geir er ekki óvanur framandi
löndum en hann fór til Palestínu á
síðasta ári. Að-
spurður hvort
landið sé verra
segir hann
þau afar
ólík og
ósam-
Á góðri stundu í Palestínu Geir The-
ódórsson fór til Palestínu og segirþá
ferð hafa farið betur en Búlgaríuferðin
maður fór og náði í vegabréfið hans
og varð þá kennari var við ferðir
lögreglumannsins.
„Kennarinn og her-
bergisfélaginn
minn nurl-
uðu saman
peningunum
og komu á
staðinn,“
segir Geir
en þegar kenn-
arinn ætlaði að borga
þeim skaðabæturnar þá heimtuðu
þeir meira. Kennarinn þráaðist við
j)annig að þeir féllust að lokum á
30 þúsund krónur. „Svona eftir á
bæri-
leg en
fólkið var
tvímælaust
kurteisara og ljúfara
í Palestínu. Ferðalangarnir skiluðu
sér heim fyrr í vikunni og að sögn
Geirs voru menn almennt fegnir eftir
átakamikla dvöl.
Fasteignamarkaður:
Enn dregur
úr sölu íbúða
Velta á fasteignamarkaði
á höfuðborgarsvæðinu var
rúmum 1,5 milljarði minni i
síðustu viku miðað sama tíma í
fyrra samkvæmt upplýsingum
frá Fasteignamati ríkisins. Alls
nam heildarveltan tæpum 3,3
milljörðum en var tæpir 4,8
milljarðar í fyrra.
Þá var 120 kaupsamningum
vegna fasteignakaupa þinglýst
á höfuðborgarsvæðinu í síðustu
viku og fækkar þeim um 85
milli ára eða um 42%.
Evrópusambandið:
Styður
þjóðstjórnina
Utanríkisráðherrar Evrópu-
sambandsins (ESB) samþykktu
í gær að lýsa yfir stuðningi við
nýja þjóðstjórn á palestínska
heimstjórnarsvæðinu sem er
verið að mynda undir stjórn
Mahmoud Abbas forseta, leið-
toga Hamas-samtakanna sem
leiddu fráfarandi ríkisstjórn.
Italski utanríkisráðherrann,
Massimo DAlema, sagði að
Javier Solana, utanríkismála-
stjóri ESB, hefði fullyrt að
þjóðstjórnin muni standa við
áður gerða samninga sem þýðir
að Hamas viðurkenni óbeint
tilverurétt Israelsríkis.
Eimskip:
Kaupa í
Kursiu Linija
Eimskip hefur gengið frá
kaupum á þrjátíu prósenta hlut í
skipafyrirtækinu Kursiu Linija.
Fyrr á árinu hafði Eimskip
eignast sjötíu prósenta hlut í
félaginu og hefur nú eignast það
að fullu. Eimskip fjármagnar
kaupin með eigin fé, en heildar-
kaupverð hlutanna nemur átta
milljónum evra.
ZEPTO 6615WD
Sú öfíugasta
15,4” WSXCA 1680x1050 sk|ár
Intel Core Duo 2,0Ghz örgjörvi
Geforce Go 7600 512MB skjákort
1024MB DDR2 vinnsluminni
100GB 7200rpm harður diskur
Innb. DVD skrifari, þráðl. netkort
vefmyndavél o.fl
ORMSSON
| SMÁRALIND ■ Sími 530 2901
| AKUREYRI ■ Slmi 461 5000
I KEFLAVÍK • Slmi 421 15^8
SlÐUMÚLA 9 • Slmi 530 28C
Tölvukaupalán: 1 Vaxtalaust: \KynnmgarverO:
Kr. 7.175,- I Kr. 23.042,- ! kr. 199.900,-
ZEPTO 2425W
Öflug og skemmtileg
ZEPTO 4015SE
Fjölhæf og þolgóð
15,4" Crystal Clear breiðtjaldsskjár
Intel Core Duo l,83Ghz örgjörvi
Geforce Go 7600 256MB skjákort
100GB harður diskur
1024MB DDR2 vinnsluminni
Innb. DVD skrifari, þráðl. netkort,
vefmyndavél, fingrafaralesari o.fl.
Allt að 4 klst. rafhlöðuending
15*XGA skjár
1,5Ghz Intel Celeron 1MB örgjörvi
512MB DDR2 vinnsluminni
80GB harður diskur
Innb. DVD skrrfari, þráðl. netkort o.fl
Allt að 5 klst rafhlöðuending
Kvnninaarvcrö.