blaðið - 16.09.2006, Page 30
30 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006
4
blaðiö
„Því eldri sem maður verður því betri
grein gerir maður sérfyrir því hvað maður
veit lítið. Maður áttar sig á því að lífið er
flókið. Eg held að það sé holltfyrir stjórn-
málamenn að átta sig á því að þannig er
veröldin. Hún erflókin og margbreytileg."
Hvað með manninn sem margir
segja að sé mesti snillingur tónlistar-
sögunnar, Mozart? Ertu sammála
því mati?
„Ég held að það sé erfitt að neita
því. Svo ég tali nú eins og hagfræð-
ingur þá sést það þegar litið er á
fjölda verka hans og gæði þeirra.
Hann náði að afreka gríðarlega
mikið á stuttum tíma og verk hans
eru í hæsta gæðaflokki. Afrek hans
eru eiginlega ómennsk.
Samt er það þannig að ef einhver
spyr mig um uppáhaldspíanista eða
tónlistarmann þá segi ég venjulega:
Ja, þessi er á lista mínum yfir topp 20.
Svo breytist listinn eftir því hvernig
maður er stemmdur þá stundina.
Fyrir einhverjum árum hefði maður
svarað mjög kokhraustur og nefnt
nöfn án þess að hika og sagt: Þessi
er sá besti sem til er. Núorðið held
ég að ég myndi seint gefa slíkt svar.
Þetta snýst svo mikið um það hverju
maður er að leita eftir og hvað það er
sem hrífur mann þá stundina."
Heldurðu þá að hluti af því að
eldast sé að komast að því að lífið er
flóknara en maður héltþegar maður
varyngri?
„Það skrýtna er að maður hélt að
eftir því sem maður yrði eldri því
betur myndi maður skilja heiminn.
Mér finnst þetta vera öfugt. Því
eldri sem maður verður því betri
grein gerir maður sér fyrir því hvað
maður veit lítið. Maður áttar sig á
því að lífíð er flókið. Ég held að það
sé hollt fyrir stjórnmálamenn að
átta sig á því að þannig er veröldin.
Hún er flókin og margbreytileg."
Pólitísk sinnaskipti
Þú varst vinstrimaður í pólitík en
gerðist síðan hœgrimaður. Hvernig
vildi það til?
„Ég ólst upp á vinstrisinnuðu
heimili þar sem pabbi minn var í
bæjarstjórn fyrir Alþýðubandalagið
á Sigluíirði í tólf ár. Það var örugg-
lega áfall fyrir foreldra mína þegar
ég gerðist hægrimaður. Vinir þeirra
hafa oft spurt: „Hvað gerðist? Var
þetta félagsskapurinn? Hvað var það
sem fór svona hörmulega úrskeiðis?"
Þegar ég ákvað að segja föður
mínum frá pólitískum sinna-
skiptum mínum bað ég hann um
að koma í bíltúr með mér. Það hafði
ég aldrei áður beðið hann um og
honum brá nokkuð. Hann taldi sig
vita að ég ætlaði að segja honum
alvarlegar fréttir. Ég held að hann
hafi verið feginn þegar ég var bara
að segja honum að ég væri orðinn
hægrimaður en ekki að ég gengi
með banvænan sjúkdóm.
Þessi sinnaskipti urðu á síðasta
árinu í menntaskóla og fyrsta árinu
þar á eftir. Hluti af því var félags-
skapur og bækur sem ég las og síðan
held ég að ég hafi ekki haft slæmt af
veru minni á Flateyri í frystihúsinu
þar sem ég vann á sumrin. Fram að
þeim tíma var ég sannfærður um að
hagsmunir fyrirtækja og þeirra sem
ynnu þar gætu ekki farið saman, og
ég taldi mig geta fært rök fyrir því.
En þarna í frystihúsinu skynjaði ég
afar sterkt að það skipti öllu fyrir
lífsafkomu mína um veturinn hvort
mikið var að gera í frystihúsinu á
sumrineðaekki. Þetta ásamt mörgu
öðru gerði að verkum að ég fór að sjá
hlutina í öðru ljósi en áður.
Ef það var eitthvað eitt sem sló
mig sterkt þegar ég var að skipta um
pólitíska skoðun þá var það þegar
það rann upp fyrir mér hversu von-
laust verkefni það væri að stýra sam-
félaginu í stóru sem smáu. Framför
snýst um þekkingu, þekkingu á stað-
háttum, þekkingu á tækni, þekkingu
á mannlífinu. Þessari þekkingu er
dreift svo víða og þegar menn ætla
sér að stýra þjóðfélaginu í smæstu at-
riðum þá reka þeir sig á það að þekk-
ing þeirra á veröldinni er svo lítil.
Þess vegna er betra að dreifa valdinu
til sem flestra og nýta þekingu sem
flestra. Það var þessi uppgötvun
sem átti kannski stærstan þátt í að
gera mig að hægrimanni."
Atvinnuviðtai hjá Davíð
Hvernig líkar þér að hafa atvinnu-
stimpilinn „aðstoðarmaður Davíðs
Oddssonar'?
„Mér líkar það vel. Fyrir mig var
mikið gæfuspor að Davíð Oddsson
réð mig í vinnu. Ég hef reyndar