blaðið - 26.09.2006, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006
blaöiö
Bpi OLÍUMARKADIR
Hóta að frysta eignir Shinawatra Leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Taílandi hótaði í gær að frysta eignir Thaksin Shinawatra, fyrrver- andi forsætisráðherra, ef hann reyndi að flytja þær úr landi. Herinn tók völdin í landinu í síðustu viku og er forsætisráðherrann nú í útlegð í London. Olían undir sextíu dölum Verð á olíu heldur áfram að lækka og í gær kostað’i fatið innan við sextíu dollara. Verð hefur lækkað um 17 dollara frá í ágúst og er lækkunin rakin til aukins framboðs, minni eftirspurnar og bjartsýni um að ekki verði viðskiptaþvinganir gegn Iran. Bolsévíkar hertóku fjármálaráðuneytið Lögreglan í Moskvu handtók fjörutíu meðlimi í Bolsévíka- ' flokki Rússlands eftir aö þeir réðust inn í fjármálaráðu- neytið og flögguðu fána sínum. Þeir voru að mótmæla greiðslum erlendra skulda en þeir vilja að féð verði frekar notað til að bæta lífskjör almennings í landinu. |
Vill staldra við Jose Manuel
Barroso, forseti framkvæmda■
stjórnar ESB.
Evrópusambandið:
Barroso vill
fresta stækkun
FRÉTTAVIÐTAL
FRAMSOKNARFLOKKURINN
■ „Menn hafa farið of langt
í einkavæðingunni og það
hefur verið of mikil áhersla
á velferð þeirra sem eiga
fjármagn en of lítil áhersla á
manngildið."
■ Kristinn H. Gunnarsson
þingmaður vill að Framsókn-
arflokkurinn leggi meiri
áherslu á velferð og manngildi
og skilgreini sig frá Sjálfstæð-
isflokki.
Formannsskipti hjá Framsóknarflokknum Fram-
sóknarmenn vonast til að nýr formaður nái að endur-
reisa fiokkinn. Hefur tapað fylgi á miðjunni og vinstri
væng. Kristinn segir að flokkurinn verði að höfða
meira til vinstri en hann hefur gert síðustu árin.
Framsókn þarf að slíta sig
frá Sjálfstæðisflokknum
■ Stefnir á fyrsta sætið í prófkjöri ■ Of mikil hægristefna hjá Framsóknar-
flokknum ■ Vill draga úr stóriðjustefnu.
Jose Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, sagði að ekki ætti að veita
nýjum ríkjum aðild að sambandinu
eftir að Búlgarar og Rúmenar fá að-
ild fyrr en stjórnkerfi sambandsins
hefur verið endurbætt og sátt hefur
náðst um stjórnarskrá þess.
Búist er við því að framkvæmda-
stjórn ESB mæli með því í dag að
Búlgaríu og Rúmeníu verði veitt að-
ild að sambandinu í janúar á næsta
ári. Tyrkir og Króatar hófu aðildar-
viðræður á síðasta ári en ummæli
forseta framkvæmdastjórnar-
innar þykja draga úr líkum á því
að þeim viðræðum ljúki með fullri
aðild í náinni framtíð.
Barroso sagði að geta ESB til
þess að taka við nýjum ríkjum
væri takmörkuð og ekki væri
ráðlegt að veita nýjum ríkjum að-
ild fyrr en endurbótum á stjórn-
sýslu sambandsins væri lokið og
framtíð stjórnarskrárinnar væri
ráðin. Tilraunir til þess að end-
urbæta stjórnsýslu sambandsins
og löggilda stjórnarskrá þess
steyttu á skeri í fyrra í kjölfar
þess að franskir og hollenskir kjós-
endur höfnuðu stjórnarskránni í
þjóðaratkvæðagreiðslum.
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður hyggst sækjast eftir fyrsta
sæti á lista Framsóknarflokksins
í Norðvesturkjördæmi en það sæti
skipar nú Magnús Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra. Tillaga hans um
póstkosningar á prófkjörslista varð
ofan á á kjördæmaþingi flokksins
um síðustu helgi en tillaga stjórnar
kjördæmasambandsins um að 500
flokksmenn myndu velja á listann
var felld. Kristinn segir þörf á að
flokkurinn slíti sig frá samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn og leggi meiri
áherslur á velferð og manngildi.
Flokkurinn tapar fylgi
Túlkarþú niðurstöðu kosninganna
á kjördcemaþinginu sem persónu-
legan sigur fyrirþig?
„Ég vil fara varlega í að leggja of
mikla túlkun í þessar niðurstöður.
Ég hafði lagt áherslu á að það yrði
prófkjör og hafði óskað eftir því
að það yrði gert með póstkosn-
ingum. Margir af mínum stuðnings-
mönnum tóku undir það sjónarmið
en það gerðu einnig fleiri sem ekki
styðja mig persónulega.“
Telur þú að stjórn kjördæmasam-
bandsins hafi með sinni tillögu
viljað bola þér í burtu þar sem fyrir-
fram var vitað að þetta prófkjörsfyr-
irkomulag myndi vinna gegn þér?
„Ég vil nú ekki líta á það þannig.
Hins vegar má segja að þessi til-
högun eins og stjórnin lagði til leiddi
ekki til góðrar niðurstöðu í síðustu
kosningum. Flokkurinn fékk bara
tvo þingmenn en hafði gert sér vonir
um þrjá og missti miðað við kosning-
arnar 1999 líklega um 1.200 atkvæði.
Ég tel að póstkosning henti mér
betur og ég hefði eflaust náð fyrsta
sætinu í síðasta prófkjöri ef kosið
hefði verið með þeim hætti.“
Hyggstu bjóða þig fram gegn
Magnúsi Stefánssyni í fyrsta sœtið á
listanum?
„Já, ég stefni að því. En legg áherslu
á að það getur enginn sagt fyrirfram
að hann eigi eitthvert sæti og þess
vegna er ekki hægt að fara gegn
neinum."
Sókn til vinstri
Þú talaðir um það á þinginu um
síðustu helgi að Framsóknarflokkur-
inn hefði veikst á síðustu árum og
að hann þyrfti að endurmeta stefnu
sína. Hvað veldur því að flokkurinn
hefur veikst að þínu mati?
„Menn hafa farið of langt í einka-
væðingunni og það hefur verið of
mikil áhersla á velferð þeirra sem
eiga fjármagn en of lítil áhersla á
manngildið. Það liggja fyrir upplýs-
ingar sem segja okkur að flokkur-
inn hefur misst um það bil helming
af sínu fylgi. Við höfum misst lang-
mest af vinstra fylginu sem flokk-
urinn hefur haft og um þriðjung af
fýlginu á miðjunni. Á sama tíma
stendur hægra fylgið óbreytt. Hann
hefur því tapað fylgi og færst of
mikið til hægri vegna samstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn."
Á Framsóknarflokkurinn þá að
forðast áframhaldandi stjórnarsam-
starfvið Sjálfstœðisflokkinn á næstu
árum?
„Verkefnið er að minu mati að losna
frá þessu nána samstarfið við Sjálf-
stæðisflokkinn. Kjósendur leggja
yfirleitt þessa tvo flokka saman og
Framsóknarflokkurinn þarf því
að reisa sig við sem sjálfstætt pólit-
ískt afl. Bera fram sína stefnu sem
hann á til og sýna meiri félagslegar
áherslur.
Við þurfum að sækja meira til
vinstri. Leggja auknar áherslur á
velferðarmál og draga úr áherslum á
stóriðjuuppbyggingu. Ég er ekki að
segja að menn þurfi að hafna henni
heldur auka áherslu á umhverfis- og
byggðamál. Það þarf að kalla eftir
meiri árangri á þeim sviðum.“
Þarf að opna flokkinn
Núverandi stefna Framsóknar-
flokksins hefur verið kennd við
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi
formann. Er von á því að Jón Sig-
urðsson, sem kemur úr sama flokks-
helmingi og Halldór, breyti stefnu
flokksins?
„Því verður Jón Sigurðsson að
svara með verkum sínum. Kjör-
dæmaþingið svaraði því hins vegar
um siðustu helgi að staðan sé alvar-
leg og leiðin til að snúa þessu við sé
að opna flokkinn. Gefa grasrótinni
og nýjum félagsmönnum kost á að
hafa áhrif og segja sína skoðun. Það
þarf ekki meiriháttar stefnubreyt-
ingu því þessir málaflokkar eru nú
þegar til í núverandi stefnu flokks-
ins. Það þarf bara að leggja meiri
áherslu á þá.“
Tollskýrslugerð
Hagnýtt og ítarlegt námskeið í gerð tollskýrslna, um meðferð allra
innflutningsskjala og allar helstu reglur er varða innflutning.
Á námskeiðinu er notað nýtt og sérútbúið kennsluefni, kennslubók
og ítarefni. Einnig er kennt að nota forrit í tollskýrslugerð í Navision
frá Maritech.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að geta;
• Þekkt fylgiskjöl meö vörusendingum og hvaða tilgangi þau þjóna
• Gert tollskýrslur og reiknað út aðflutningsgjöld
• Notað tollskrána til aö tollflokka vörur
• Haft grunnskilning á fríverslunarsamningum og gildi þeirra
• Þekkt helstu reglur varðandi innflutning, innflutningstakamarkanir og undanþágur
Lengd: 21 kennslustund. Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga og er
hægt að velja um morgunnámskeið kl. 8:30 - 12:00 eða
kvöldnámskeið kl. 18:00 - 21:30. Hefst 28. september og lýkur 10.
október. Verð: kr. 28.000,- (Aiit kennsiu- og ítarefni innifalið)
TÖLVUSKÓLINN ÞEKKING
SlMI: 544 2210
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
LÁGMÚLA 8 • Sími 530 2800
SMÁRALIND • Sími 530 2900
AKUREYRI • Sími 461 5000
KEFLAVÍK • Sími 421 1535
oghjá UMBOÐSMÖNNUM UM LAND ALLT
www.ormsson.is
ORMSSON