blaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 30
3 8 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 blaöiö menntun menntun@bladid.net Evrópskur tungumáladagur Stofnun Vigdisar Finnbogadóttur í samvinnu við menntamálaráðu- neytiö efnirtil hátíðardagskrár i tilefni Evrópska tungumáladagsins i Hátiðarsal Háskóla íslands í dag klukkan 15 Samfélagslegt vandamál Rannsóknir benda til að kyn- skiptur vinnumarkaður skýri stóran hluta af ójafnri stöðu kynjanna. Sumir segja því að kynbundið náms- og starfsval sé samfélagslegt vandamál þar sem það hindri bestu nýt- ingu mannauðsins og dragi úr sveigjanleika vinnumarkaðarins. Vegna þessa var ný heimasíða undir heitinu „Jöfn framtíð fyrir stelpur og stráka" opnuð form- lega á fundi jafnréttisnefnda sveitarfélaga sem haldinn var í Hveragerði í síðustu viku. Síðuna má finna á www.jafnretti.felag- smalaraduneyti.is Stærðfræði er skemmtileg Háskólinn í Reykjavík býður upp á námskeið í ólympíustærð- fræði fyrir grunnskólabörn í 5. til 8. bekk í tilefni af stærðfræði- átaki sem kallast Stærðfræði er skemmtileg. [ ólympíustærð- fræði eru þrautir sem reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Markmiðið með námskeiðinu er ekki að kenna nemendum meiri stærðfræði, heldur að nota stærðfræði sem þeir hafa lært í skólanum til að leysa þrautir. Með því að glíma reglulega við þrautir byggja þeir upp færni sína í þrautalausnum. Við það styrkist hæfileikinn til að hugsa rökrétt, draga ályktanir og vera úrræðagóður og þrautseigur. Tungumálanám í grunn- og framhaldsskólum á íslandi Spænska aldrei vinsælli Spænska á auknum vin- sældum að fagna bæði meðal grunn- og fram- haldsskólanemenda sam- kvæmt nýrri samantekt Hagstofunnar á tungumálanámi í grunn- og framhaldsskólum. „Þeim Qölgar ár hvert sem læra spænsku, sérstaklega í grunnskólunum, en þýskan hefur verið á niðurleið. Það virðist vera sem spænskan sé að vaxa á kostnað þýskunnar því að það eru ekki neinar rosalegar breytingar á fjölda þeirra sem vilja læra frönsku,“ segir Ásta Urbancic, deildarstjóri á mennta- og menningarmáladeild Hagstofunnar. 467 nemendur lögðu stund á spænskunám í grunnskóla á síðasta skólaári og hafði fjöldi þeirra þrefald- ast frá fyrra skólaári. Nemendur í þýsku voru hins vegar 588 og hefur fækkað hratt á undanförnum árum en skólaárið 2003 til 2004 voru þeir til dæmis 945. Dægurmenning hefur áhrif Hólmfríður Garðarsdóttir, dósent í spænsku við Háskóla íslands, telur að skýringanna sé fyrst og fremst að leita í spænskri og suðuramerískri dægurmenningu sem hafi orðið meira áberandi á undanförnum ár- um. „Þá er það viðhorf ríkjandi að það sé auðveldara að læra spænsku en til dæmis frönsku og þýsku. Það er ekk- ert út í hött. Hljóðfræði spænskunnar er mjög svipuð íslensku og málfræð- in er auðvitað miklu einfaldari en til dæmis þýsk málfræði,“ segir Hólm- fríður. Að sögn Hólmfríðar virðist vegur spænskunnar fara vaxandi víðar en á íslandi og að hún njóti aukinna vin- sælda til dæmis í Bandaríkjunum, á Norðurlöndum og víðar í Evrópu. Líkt og í grunnskólunum á þýskan undir högg að sækja í framhaldsskól- unum hér á landi og hefur nemend- um sem leggja stund á hana fækkað hlutfallslega. Nemendum sem læra frönsku hefur einnig fækkað hlut- fallslega en spænskan er á uppleið. Spænska og franska njóta núna álíka mikilla vinsælda, en skólaárið 2005 til 2006 lærðu 11,9 prósent fram- haldsskólanema spænsku en 11,8 pró- sent frönsku. Nemendur í spænsku eru nú í fyrsta sinn fleiri en nemend- ur í frönsku þegar litið er á tölur bæði frá hausti og vori en frönskunemar voru fleiri á haustmisseri en nemend- ur í spænsku. Yngri nemendur í tungumálanámi Aldrei áðurhafa fleiri grunnskóla- nemendur lagt stund á enskunám en skólaárið 2005 til 2006 lærðu 28.782 grunnskólabörn ensku, sam- kvæmt upplýsingum frá Hagstofu Islands. Það vekur jafnframt at- hygli að yngri nemendum sem læra ensku hefur fjölgað verulega á milli ára og fleiri sex ára nemendur læra nú ensku en nokkru sinni fyrr. Á síðasta skólaári.lærðu 421 nem- andi í 1. bekk ensku og hefur fjöldi þeirra nærri tífaldast frá skólaár- inu 2002 til 2003 þegar þeir voru 44. Skólaárið 2003 til 2004 lærðu 57 nemendur í 1. bekk ensku og 129 2004 til 2005. Flestir grunnskólanemendur hefja enskunám í 5. bekk en í nokkrum skólum hefst kennsla í er- lendum tungumálum fyrr en kveð- ið er á um í aðalnámskrá og skýrir það fjölgun yngri nemenda sem stunda tungumálanám. Sem dæmi má nefna að í 13 skólum er boðið upp á enskukennslu í 1. bekk. Sænska og danska í yngri bekkjum „I örfáum skólum er líka verið að kenna dönsku og sænsku í yngri bekkjunum neðar en á að byrja á henni samkvæmt námskrá. Það kemur manni á óvart hvað það eru margir ungir krakkar sem eru að læra tungumál og mun fyrr en aðal- námskrá kveður á um að sé skylda,“ segir Ásta Urbancic. Ásta segir að ekki sé hægt að sjá beinlínis út úr tölunum hvað valdi þessari aukningu. „Ég held að umræðan í þjóðfélaginu um að nýta þessa hæfileika barna til að læra tungumál og að reyna að færa þennan aldur neðar hafi áhrif,“ seg- ir Ásta en slær þó þann varnagla að hér sé aðeins um hennar eigin til- gátur að ræða. einar.jonsson@bladid.net Innritun á myndlistarnámskeið er að Ijúka Enn er laust í barnahópa og unglingahóp Fullbókað í alla fullorðinshópa Fyrstu námskeiðin hefjast í vikunni Innritun í símum 566 8710/663 5160 Skemmtileg tómstundaiðkun í góðum félagsskap! Aukió álag á stoðkerfi barna Iðjuþjálfafélagið hóf í gær að fræða börn á miðstigi grunnskóla um þyngd á skólatöskum og líkams- stöðu. Fræðslan sem nær til um 60 grunnskóla um land allt stendur út vikuna og taka 45 iðjuþjálfar þátt í henni. Margir þættir sem hafa áhrif Erla Björk Sveinbjörnsdóttir iðju- þjálfi segir að um forvarnavinnu sé að ræða sem miði að því að gera fólk meðvitað um hvaða álag börn- in bera og hvað sé best að gera til að sporna við álagseinkennum á stoð- kerfi barna sem hafa verið vaxandi á undanförnum árum. „Rannsóknir hafa sýnt okkur að stoðkerfisvandi barna hefur farið vaxandi þannig að börn fá oftar illt í bakið, höfuðverk og vöðvabólgu. Það er náttúrlega erfitt að segja hvort það sé nákvæmlega þetta sem hafi áhrif. Það getur líka verið mikil kyrrseta og lengri skóladagur. Börn- in sitja lengur við tölvurnar og sitja kannski ekki heldur rétt. Það þarf að huga vel að því hvernig maður situr því að það hefur áhrif á kroppinn okkar,“ segir Erla Björk. Þarf að stilla töskuna rétt „Við förum í skólana, erum með fræðslu, segj- ér umkrökkunumhvernig • eigi að stilla töskurnar, raða í þær og annað slíkt. Hvernig töskurnar eru best- ar með breiðum böndum og ólum yfir axlirnar vegna þess að í öxlum og hálsi er fullt af fíngerðum taugum og æðum sem verða fyrir hnjaski ef böndin eru mjó,“ segir Erla sem mælir jafnframt með því að mittis- og brjóstólar séu notaðar. Að lokinni fræðslunni fá nemendur síðan eins konar gátlista sem þeir láta foreldra sína fá. Að sögn Erlu er æskileg þyngd sem maður ber, hvort sem maður er barn eða fullorðinn, á milli 10 og 20 prósent af líkamsþyngd einstaklingsins. „Við bjóðum þeim upp á að vigta töskuna hjá hverjum og einum til að reikna út hlutfallið. Þannig getum við líka haldið utan um tölfræði yfir hvaða aldurshópur verði fyrir álagi,“ segir Erla Björk. Taskan skiptir máli Þyrtgd skólatösku og fleiri þættir hafa áhrif á líöan barns- ins og geta átt þátt í stoökerf- isvandamálum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.