blaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 blaAið UTAN ÚR HEIMI Fjölgað í friðargæsluliði Afríkubandalagið tilkynnti í gær aö það myndi fjölga friðargæsluliðum á þess vegum í Darfúr-héraði í Súdan um fjögur þúsund menn. Með þeirri fjölgun verða ell- efu þúsund menn við friðargæslustörf í landinu. Friðargæsluliðarnir verða við störf til áramóta. Hillary verri en djöfuliinn Ef Hillary Clinton verður forsetaefni demókrata verður það líklegra til að sameina kristna menn en ef djöfullinn sjálfur væri í framboði. Þetta sagði Jerry Falwell á fundi með þrestum. Falwell hefur mikil áhrif á kristna Bandaríkjamenn. Abbas frestar viðræðum Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, hefur frestað viðræðum um myndun þjóðstjórnar við Ismail Haniyeh, forsæt- isráðherra heimastjórnarinnar. Abbas og Haniyeh ætluðu að reyna að höggva á þann hnút sem er kominn upp í viðræðunum um þjóðstjórn- ina og þykir frestunin vera til marks um minni líkur á myndun hennar. ’f - -jfc ^ Umferðarlögbrot: Stoppaðir í kappakstri Tveir ökumenn voru stöðvaðir á Miklubraut á sunnudagskvöld þegar þeir háðu ólöglegan kapp- akstur á götum borgarinnar. Að sögn lögreglu voru þeir svo uppteknir að þeir tóku ekki eftir að lögreglan veitti þeim eftirför. Þeir mældust á tæplega 130 kílómetra hraða og þurfa að greiða hvor um sig 40 þúsund króna sekt. Karl Bretaprins: Vandlátur á eggin sin Talsmenn Karls Bretaprins hafa neitað staðhæfingum breska sjónvarpsmannsins Jeremy Paxman um að prinsinn viti fátt betra en að snæða soðin egg eftir að hafa verið við veiðar en sé sérstaklega nákvæmur þegar kemur að suðutíma eggja. I nýrri bók Paxmans „Um konungsfólkið” kemur fram að prinsinn láti starfsfólk sitt sjóða sjö egg i hvert sinn svo að hann geti valið úr það egg sem kemst næst því að vera fullkomlega eldað að mati prinsins. Þrátt fyrir neitun talsmanna prinsins stendur Paxman við söguna og segir hana hafða eftir nánum vinum hinnar konung- legu eggjaætu. Foringi í Al- Kaeda féll Breskir hermenn felldu hátt- settan meðlim Al-Kaeda-hryðju- verkanetsins í írösku borginni Basra í gær. Maðurinn hét Omar Faroug og er sagður hafa borið ábyrgð á starfsemi hryðju- verkanetsins í Suðaustur-Asíu. Faroug var handsamaður í Indónesíu árið 2002 og náði að flýja úr bandarísku herfangelsi í Afganistan í fyrra. Að sögn talsmanns breska hersins í írak var Faroug þungavigtarmaður í röðum Al-Kaeda. Faroug fór huldu höfði í Basra og að sögn breska ríkisútvarps- ins bendir ekkert til þess að hann hafi verið að skipuleggja aðgerðir á vegum Al-Kaeda í írak. Eftir Gunnar Reyni Valþórsston gunnar@bladid.net Uppljóstranir Þórs Whitehead um starfsemi leyniþjónustu á íslandi koma Steingrími Hermannssyni, sem var dómsmálaráðherra 1978- 1979, í opna skjöldu. Fyrir honum hljóma fréttirnar af starfseminni eins og að um leyniþjónustu Sjálf- stæðisflokksins hafi verið að ræða. Guðni Th. Jóhannesson segir eðli- legt að rannsakað sé hvort yfirmenn lögreglunnar hafi haft samráð við ráðherra Framsóknarflokksins um starfsemi leyniþjónustunnar. Prívat njósnastarfsemi Sjálfstæðisflokksins ;,Ég veit ekkert um þetta mál,“ segir Steingrímur Hermannsson sem var dómsmálaráðherra 1978- 1979 og síðar forsætisráðherra. „Ég heyrði þetta aldrei nefnt. Ég heim- sótti allar mínar stofnanir eins og tíðkast þegar nýr ráðherra tekur til starfa. Eg þekkti Árna Sigurjónsson og hitti hann í Útlendingaeftirlit- inu en þetta nefndi enginn maður,“ segir hann. Árni Sigurjónsson er í grein Þórs Whitehead sagður hafa verið starfsmaður öryggisþjónust- unnar og að starf hans hjá Utlend- ingaeftirlitinu hafi verið eins konar yfirvarp. Steingrímur segist skilja það mæta vel að til einhverra aðgerða hafi þurft að grípa á óróatímum eins og þeim sem voru í byrjun kalda stríðsins. „Ég áfellist Bjarna Bene- diktsson ekki fyrir það, alls ekki. Hins vegar hljómar þetta eins og þetta hafi síðar þróast yfir í að vera einskonar prívat njósnastarfsemi á vegum Sjálfstæðisflokksins." Hann segir, að hafi starfsemin enn verið við lýði í tíð hans sem dómsmálaráð- herra sé greinilegt að ekki hafi verið farið eftir settum reglum. Steingrímur segir að sér finnist að þeir aðilar sem óskað hafi eftir því að fá aðgang að gögnum um símhleranir frá þessum tímum eigi að fá því framgengt. „Mér finnst sjálfsagt að þeir sem voru aðilar að þessum hlerunum fái að sjá það sem þar er til. Ég held að mönnum sé ekki stætt á því að halda því frá þeim. Enda er svo langur tími lið- inn frá þessu að ég held að það sé best að sem mest sé gert opinbert, það væri langhreinlegast." Tortryggni á milli Ólafs og Sigurjóns Guðni Th. Jóhannesson sagn- fræðingur segist ekki hafa haldið því fram að um leyniþjónustu sjálf- stæðismanna hafi verið að ræða en Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra hefur gagnrýnt ummæli Guðna sem hann lét fjalla í við- tali á Stöð 2 um síðustu helgi. Guðni segist einfaldlega vilja spyrja þeirrar spurningar hvort yfirmenn lögreglunnar hafi Eðlllegt að spyrja spuminga GuðniTh.Jóhannesson sagnfræðingur haft jafn náið samráð og sýnt jafn- mikið traust þeim sem voru dóms- málaráðherrar í vinstri stjórnum 1956-1958 og 1971-1974- ..Og jafnvel ráðherrum í ríkisstjórnunum sem sátu 1974-1978 og 1978-1979 þrátt fyrir að þá hafi þessi starfsemi verið orðin mun minni í sniðum. Þetta er ósköp sjálfsögð fræðileg spurning,“ segir Guðni og bætir því við að þegar svona miklar nýjar upplýsingar koma fram eins og í grein Þórs White- head sé sjálfsagt að slíkar spurningar vakni. „Þetta er bara fræðimennska en ekki pólitík." Guðni efast hins vegar um að hægt verði að svara þessum spurningum á óyggjandi hátt „Okkur vantar skriflegar heimildir og þeir sem gætu svarað þessu eru flestir eða allir fallnir frá. Þegar svo er, þá verðum við að leyfa okkur að draga ályktanir og geta {eyðurnar.“ I viðtali á laugardag sagði Guðni að sér þætti líklegt að Olafur Jó- hannesson, ráðherra Framsóknar- flokksins, hafi ekki verið leiddur í jafnmikinn sannleika um starfsemi öryggisþjónustunnar og forverar hans, sjálfstæðismennirnir Jóhann Hafstein og Bjarni Benediktsson. Guðni segist þó ekki hafa slegið neinu föstu í þeim efnum. „Hitt veit ég þó, að það var nokkur tortryggni á milli Sigurjóns Sigurðssonar og Ól- afs Jóhannessonar árin 1971 og þar á eftir,“ segir hann, en Sigur- jón var lögreglustjóri í Reykjavík og er talinn einn af þeim sem að leyniþjónustunni komu í grein Þórs. „Fyrir því hef ég heim- ildir,“ segir Guðni Th. Jóhannesson. Steingrímur Hermannsson Dómsmálarádherrann fékk ekki að vita af tilurö leyniþiónustu Bandarískur sjóður til að hreinsa upp eftir herinn: Fáum ekkert þegar herinn fer „Flestir dómar sem fallið hafa á sjóðinn hafa verið í þá veru að hann sé skuldbundinn að leggja út fé til hreinsunar landsvæðis þar sem Bandaríkjaménn hafa haft yf- irráð. Á meðan varnarliðið var hér var varnarsvæðið skilgreint sem bandarískt yfirráðasvæði,” segir Brynhildur Davíðsdóttir, dósent við Háskóla íslands. Hún bendir á að bandaríska um- hverfisráðuneytið eigi sjóð, Sup- erfund, sérstaklega til að hreinsa landsvæði eftir opinberar stofnanir og stórfyrirtæki. Sjóðurinn hefur yfir að ráða jafnvirði 600 milljarða króna. „Erlendis þekkist að þar sem banda- ríski herinn lokaði herstöðvum sínum var fengið fé úr þessum sjóði til að hreinsa upp og því undarlegt að slíkt hafi ekki komið til umræðu hér,” segir Brynhildur. „f lögum sjóðsins kemur skýrt fram að ekk- ert fæst greitt úr sjóðnum ef herinn er farinn frá landinu og landsvæðið hefur verið látið af hendi án bind- andi samnings um hreinsun.” Vilji íslendingar fé úr sjóðunum þurfa þeir því að hafa hraðar hendur. SUPERFUND: Átakssjóður bandaríska umhverfisráðuneyt- isins sem veitlr fé til að hreinsa upp Jarðveg á yfirráðasvæðum bandarískra stórfyrir- tækja og opinberra stofnana. Herinn á förum Eftir að herinn fer er ekki hægt aö óska eftir fjárframlögum úr sjóönum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.