blaðið - 26.09.2006, Page 17
blaðiö
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 17
Fötluð börn á vergangi
Fjöldinn allur af fötluðum börnum og
ungmennum fær hvergi inni eftir að
skóla lýkur.
daglega að standa í útréttingum til
að finna dóttur sinni stað. Þetta kosti
mikla viðveru frá vinnu og sé þreyt-
andi þegar fram í sækir.
Hrafnhildur tók í sama streng og
sagði einkennilegt hversu lítill áhugi
virðist vera hjá hinu opinbera að
sinna þessum málaflokki. „Það er al-
veg sama hvar mann ber niður í mál-
efnum fatlaðra. Það benda allir hver
á annan. Það er til nóg af peningum
í alls konar dekurverkefni á borð við
inngöngu í öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna en ekki fyrir þessa örfáu
einstaklinga."
Siglir í strand
Hvað yngri hópinn varðar, ío til
16 ára börn, virðist málið einnig
hafa siglt í strand vegna deilu milli
ríkis og sveitarfélaga um kostnað og
ábyrgð á málaflokknum.
Sveitarfélög víðs vegar um landið
hafa boðið upp á lengda viðveru eftir
skólatíma fyrir fötluð og ófötluð börn
í 1. til 4. bekk í grunnskólum. Eftir
að 4. bekk sleppir fellur þessi þjón-
usta niður og foreldrar þurfa að leita
til annarra stofnana. Misvel gengur
að finna aðstöðu þar og nokkuð stór
hluti þeirra 370 barna sem um ræðir
fær hvergi inni.
Ríkið hefur bent á að hagkvæm-
ast væri að sveitarfélög haldi áfram
eftir 4. bekk að bjóða upp á lengri
viðveru fyrir fötluð börn. „Það er hag-
kvæmast að sveitarfélög veiti þessa
þjónustu þar sem hún er í beinu
framhaldi af skólanum og hægt að
reka hana í tengslum við núverandi
þjónustu við yngstu börnin,“ sagði
Óskar Páll Óskarsson, lögfræðingur
hjá félagsmálaráðuneytinu, í samtali
við Blaðið. Hann bendir ennfremur á
að engar lagalegar kvaðir hvíli á rík-
inu að veita og greiða fyrir þjónustu
af þessu tagi. „Það kemur ekki skýrt
fram í lögum að þessi þjónusta skuli
veitt og hver eigi að veita hana.“
Aðeins dropi í hafið
Sigurður Óli Kolbeinsson, lögfræð-
ingur hjá Sambandi íslenskra sveitar-
félaga, er á öndverðum meiði og segir
að ríkinu beri að veita þessa þjónustu
og greiða fyrir hana. „Það stendur
skýrt í lögum að málefni fatlaðra séu
í höndum ríkisins. Þar er líka getið
um þjónustu sem ríkið á að veita, til
dæmis dagvistunarstofnanir. Sveitar-
félögin telja því að það sé engin laga-
skylda á þeim að bjóða þessa þjónustu
fyrir krakka í 5. bekk og upp úr.“
Félagsmálaráðherra skipaði í síð-
asta marsmánuði starfshóp til áð
fjalla um lengda viðveru fatlaðra
grunnskólabarna og leita lausna í
deilu ríkis og sveitarfélaga.
Hópurinn skilaði inn ítarlegri
skýrslu um síðustu mánaðamót
þar sem meðal annars ríki og sveit-
arfélög lýstu sig tilbúin til að deila
kostnaði jafnt sín á milli. Hins vegar
greinir aðila á um heildarkostnað og
er áætlun sveitarfélaganna nokkru
hærri en áætlun ríkisins.
„Ríkið viðurkennir ekki okkar út-
reikninga og mat þess er um 60%
lægra en oldcar. Það sem ríkið vill
borga er því aðeins dropi í hafið,“
segir Sigurður.
Niðurstaða áfall
Félagsmálaráðuneytið óskaði í
siðustu viku eftir formlegum fundi
með fulltrúum sveitarfélaganna þar
sem enn á ný verður gerð tilraun til
að leysa hnútinn. Ekki liggur fyrir
hvenær sá fundur verður haldinn.
Jarþrúður Þórhallsdóttir, foreldra-
ráðgjafi hjá Sjónarhóli, segir marga
foreldra hafa bundið miklar vonir
við skýrslu starfshópsins og því
hafi niðurstöður hennar valdið von-
brigðum. „Það var mikið áfall fyrir
foreldra að málið skyldi enn vera fast
þrátt fyrir þessa góðu úttekt.“
Jarþrúður telur heppilegra að mál-
efni fatlaðra væru aðeins á hendi eins
aðila en ekki tveggja og vill að sveitar-
félögin taki málaflokkinn að sér. „Þá
væri ekki hægt að henda boltanum
svona á milli og menn gætu komist
að niðurstöðu."
Höskuldur
Kári Schram
skrífar um málefni
fatlaóra barna og
Fréttaljós
hoskuldurw'bladid.net
Fyrirlestrar frá Yale:
Elítuháskóli á netið
Stjórnendur Yale-háskólans í
Connecticut í Bandaríkjunum til-
kynntu i vikunni að myndbandsupp-
tökur af fyrirlestrum úr nokkrum
námskeiðum skólans verði gerðar
aðgengilegar á Netinu.
Meðal þeirra námskeiða sem
fróðleiksfús almúginn getur nálgast
gegnum Netið verða inngangsnám-
skeið í stjórnmálafræði, eðlilsfræði
og í guðfræði. Þrátt fyrir að ýmsir
þekktir háskólar i Bandaríkjunum
hafi gert kennsluefni aðgengilegt
fyrir almenning á Netinu undan-
farin ár er Yale fyrsti háskólinn sem
býður upp á myndbandsupptökur af
fyrirlestrum.
,,Eftir námið gat
ég valið á milli
þriggja starfa!"
„Eftir að ég kláraði Skrifstofu- og
tölvunámið hjá NTV s.l. haust hefur
lífið verið ævintýri líkast. Ég starfaði
áður á leikskóla en gat eftir námið
valið á milli þriggja starfa. í dag hef
ég tvöfalt hærri tekjur fyrir sama
vinnutíma. Þetta nám er langbesta
fjárfesting mín hingað til og hefur
breytt öllu fyrir mig og börnin mín.
Takk fyrir mig NTV!"
Ingibjörg Pálsdóttir
- Skrifstofustúlka hjá lianönum
SKRIFSTOFU-
& REKSTRARNÁM
Skrifstofu- og rekstrarnám er tveggja anna nám. Hér að neðan er lýsing á því sem
kennt er á fyrri önninni sem er Skrifstofu- og tölvunám.
Á seinni önninni, næsta vor er kennd rekstrarhagfræði, fjármálastjórnun og notkun
Excel við fjármál og rekstur. Einnig er farið í sölu-, viðskipta- og launakerfishluta
Navision og farið dýpra í tölvubókhald s.s. skil til endurskoðenda og gerð
fjárhagsskema.
Fyrri önnin er 258 stundir og skiptist í fjóra flokka:
Tölvunám - 96 stundir
- Windows stýrikerfið
- Word ritvinnsla
- Excel töflureiknir
- Power Point kynningarefni
- Access gagnagrunnur
- Internetið & Tölvupóstur
í tölvuhlutanum er lögð áhersla á þau forritsem
nemandi þarfað kunna á til að öðlast ECDL (TÖK)
skírteini sem er alþjóðleg viðurkenning á tölvukunnáttu
hans. Öll 7 ECDL (TÖK) prófin og alþjóðlegt prófskírteini
er innifalið í náminu.
Viðskiptagreinar - ws stundir
- Verslunarreikningur
- Bókhald
- Tölvubókhald Navision MBS®
Sjálfsstyrking - 30 stundir
- Tímastjórnun og
markmiðasetning
- Sölutækni og þjónusta
- Framsögn og framkoma
- Mannleg samskipti
- Streitustjórnun
- Atvinnuumsóknir
Lokaverkefni - 24 stundir
- Auglýsingatækni
- Markhópagreining
- Gerð birtingaráætlana
- Gagnvirk tenging forrita
- Flutningur lokaverkefnis
Kenndur er sá hluti verslunarreiknings sem mest er
notaður á skrifstofunni og tekin fyrir flest þau atriði sem
þarf til að færa bókhald fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
NTV leggur mikið upp úr því að ná fram því besta hjá
hverjum og einum nemanda. Það er ekki nóg að búa
yfir þekkingu og hæfileikum. Nemandinn þarf einnig
að þekkja styrk sinn og veikleika, kunna að stýra tíma
sínum, setja sér skýr markmið og kunna að selja öðrum
hugmyndir sínar og skoðanir.
„Skemmtilegasti og erfiðasti hluti námsins" segja margir.
Unnið er í 3-4 manna hópum að markaðssetningu á
vöru eða þjónustu. Lokaverkefnisvinnan er skemmtileg,
krefjandi og framsett á þann hátt að hún taki á flestum
þáttum námskeiðsins.
Næsta námskeið:
Kennt er alla virka daga frá kl. 8:30-12:30.
Fyrri önn (Skrifstofu- og tölvunám) byrjar 16. okt. og lýkur 13. des.
ATH! Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína í þcssu námi
ntv
.15
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS