blaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 22
3 0 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006
MaðiA
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Er verðstrið í uppsiglingu?
„Það er að minnsta kosti öruggt að við í Samfylkingunni munum
engan afslátt gefa af hagsmunum landsmanna."
Össur Skarphéðinsson, þiugflokksformaður
Samfylkinga rinna r.
Samfylkingin hefur lagt fram tillögur um lækkun matvælaverðs, en rík-
isstjórnin hefur unnið að tillögum í sama augnamiði sem von er á innan
skamms.
HEYRST HEFUR...
Íónína Benediktsdóttir
hefur ekki lagt árar í bát
rátt fyrir að hún hafi beðið
lægri hlut í dóms-
máli sínu gegn
Fréttablaðinu. Nú
eftir mánaðamót
taka við málaferli
hennar gegn DV
vegna fréttaflutnings blaðsins
af einkamálefnum hennar.
Heyrst hefur að Jónína sé að
undirbúa kynningarfund í
einum af ráðstefnusölum borg-
arinnar að réttarhöldunum
afloknum og þar muni hún
greina frá upphafi Baugsmáls-
ins í nokkrum smáatriðum og
leggja fram gögn máli sínu til
stuðnings. Þeir sem til þekkja
segja að Jónína hafi viðað að
sér gífurlegu gagnamagni og
' að sumt af því sé afar eldfimt,
enda tengist fleiri málinu en
Baugsfjölskyldan ein...
Aðsókn á styrktartónleika
Forma, félags átröskunar-
sjúklinga, á Nasa á föstudag var
frekar dræm þrátt
fyrir að aðgangur
væri ókeypis og
fjöldi listamanna
kæmi fram.
m*. Pörupiltarnir í
dúettnum Dr.
Mister og Mister
Handsome voru
samir við sig á
tónleikunum, létu
öllum illum látum
og tókst meðal annars að brjóta
gítar tónlistarmannsins Togga.
Ekki var nóg með það heldur
læstu þeir sig einnig inni í bak-
herberginu og reyndu að eigna
sér allan bjórinn sem tónlist-
armennirnir áttu að skipta á
milli sín í bróðerni.
Skiptar skoðanir eru meðal
fólks um ágæti þess að fá Dr.
Mister og Mr. Handsome til
að troða upp á samkomunni
og telja sumir að framkoma
þeirra sé málstaðnum síst til
framdráttar og kunni jafnvel
að koma óorði á gott og göfugt
starf...
Bækur sem bæta lífið
Guðjón Bergmann, jógakennari,
fyrirlesari og rithöfundur, á ekki í
miklum vanda með að deila ástríðu
sinni meðlesendum.
„Bækur eru ástríðan mín,” segir
Guðjón. „Ég elska að lesa og skoða
bækur.”
Guðjón er duglegur við lesturinn
og segist yfirleitt vera með tvær til
þrjár bækur í gangi í einu, en auk
þess hlustar hann á bækur og nám-
skeið í bílnum og í iPodnum sínum.
„Ég byrjaði að lesa meira eftir að ég
hætti að reykja og get ekki sagt að
ég hafi nokkru sinni séð eftir þeim
skiptum.”
En hvernig bækur les Guðjón
helst? „Ég les fyrst og fremst
bækur um jógaheimspeki, sjálfsefl-
ingu, sálfræði, markmiðasetningu,
mannkynssögu, heimspeki, sam-
skipti og jákvæða hugsun, en einnig
finnst mér gaman að lesa góðar
vísindaskáldsögur og spennusögur.
Bækur þessa mánaðar hjá Guðjóni
eru meðal annars The Present eftir
Spence Johnson, A Theory of Every t-
hing eftir Ken Wilber, skáldsagan
The Righteous Men eftir Sam Bo-
urne og nú er hann nýbyrjaður á
A Brief History of Everything eftir
Ken Wilber, en Wilber er uppáhalds-
rithöfundur Guðjóns þessa dagana.
Á ferðalögum ver Guðjón oft
drjúgum tíma í bókabúðum. „Ég
er líka duglegur að skoða bækur á
Netinu, þá sérstaklega á Amazon.
com, þar sem ég kaupi flestar mínar
bækur.”
Guðjón safnar einnig bókum sem
hafa komið út á íslensku um jóga-
heimspeki og þræðir fornbókaversl-
anir í þeim tilgangi. Hann segir að
ekki hafi verið nóg útgefið af slíku
efni undanfarin ár.
„Árin á milli 1930 og 1960 voru
mjög blómleg tíð í útgáfu á bókum
um andleg málefni og má þar nefna
skrif Þórbergs Þórðarsonar, Stein-
unnar Briem og Sörens Sörenssonar
sem ég hef mikið dálæti á.” Guðjón
nefnir að fyrsta greinin um jóga-
heimspeki sem kom út á íslandi
hafi komið út í Eimreiðinni 1893 og
var skrifuð af Matthiasi Jochums-
syni. Greinin fjallaði um ræðu ind-
Guðjón Bergmann
Hann /es fyrst og
fremst bækurym
jógaheimspeki,
sjálfseflingu, sál
fræöi, markmiöase
ingu, mánnkýnssi
heimspeki, sar
skipti og jákvæöa
hugsun.
Mynd/FMi
verska jógans Swami Vivekananda
sem hann hélt 11. september 1893
í Chigaco á heimsráðstefnu trúar-
bragða þar sem hann hvatti til sam-
stöðu trúarbragða.
Guðjón hefur sjálfur fengist
nokkuð við skriftir og þýðingar í
gegnum tíðina og eftir hann hafa
komið út bækur um andlegt og lík-
amlegt heilbrigði. „Það er það sem
gerist þegar maður les svona mikið
af bókum, þá kemur þörfin til að
skrifa. Stundum eru bækur á þessu
sviði heilmikið torf að lesa og fólki
finnst oft erfitt að virkja hugmynda-
fræðina inn í sitt daglega líf. Ég
reyni í bókum mínum að gefa fólki
verkfæri og aðferðir til þess.”
f byrjun september kom út fyrsta
bók Guðjóns á ensku. Bókin heitir
the Seven Human Needs og kom
bókin út hjá uppáhaldsútgáfu Guð-
jóns, Amazon. Bókin fjallar um
austræna og vestræna heimspeki
og segir Guðjón að hann hafi viljað
gefa út hagnýta bók sem byggir á að-
ferðafræði austrænnar heimspeki en
gefur fólki verkfæri og aðferðir til að
nýta spekina í sínu eigin lífi. „Ég hef
gaman af því að bæta líf mitt og ég
vil útvíkka það og gefa fólki tæki til
að bæta sitt líf, það er ástæðan sem
liggur að baki skrifum mínum.”
Guðjón segist hafa ákveðið það
þegar hann var 18 ára gamall að
starfa aldrei við neitt sem honum
finnst leiðinlegt og það má með
sanni segja að starfið sé hans
ástríða. Rithöfundarhlutverkið
vegur þar alltaf þyngra og þyngra
og þar af leiðandi vegur lesturinn
einnig þyngra og þyngra, sem
hlýtur að vera draumastaða fyrir
ástríðufullan bókelskanda.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt I reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
8 1 9 5 6 2 3 7 4
2 4 3 7 8 9 5 6 1
5 6 7 3 1 4 8 9 2
7 5 4 8 2 3 9 1 6
6 3 1 9 4 5 2 8 7
9 8 2 1 7 6 4 3 5
3 9 6 4 5 7 1 2 8
4 2 8 6 9 1 7 5 3
1 7 5 2 3 8 6 4 9
Gáta dagsins:
2 8 9 6
4 9 3 2
8 6 5 3
8 7 5 1 4
2 7
5 8
6 5 4 3
7 8 6 9
9 8
eftir Jim Unger
11-17
íH*
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
Getum við fengið skeifuna okkar aftur?
Á fðrnum vegi
Ferðu á
listasýningar?
Jóna Ásgeirsdóttir ellilífeyrisþegi
„Jájá, af og til. Ég fer oftast á sýning-
ar í Hafnarborg."
Sigurvin Jóhannesson
tónlistarmaður
„Ef sýningarnar tengjast á einhvern
hátt tónlist þá kíkir maður."
Eiríkur Ágúst fornbókasali
„Já, ég fer á listasýningar og hef gam-
an af. Mér finnst gamaldagsmyndlist
best.“
Matthías Kristinsson ellilífeyrisþegi
„Stundum fer maður á sýningar. Ég er
hinsvegar lítið fyrir nútímalistina."
Ingibjörg Matthíasdóttir
heimavinnandi
„Ég fer stundum og nýt þess. Þá líkar
mér helst við myndlistina en þoli verr
framúrstefnuna."