blaðið - 26.09.2006, Page 26
IBM kynnir fyrstu
einkatölvuna til sögunnar.
Hún var með 4,7MHz
örgjörva og 16K í minni.
Fyrsta færanlega tölva IBM
kemur á markað, hún var
aðeins 14 kg.
Fyrsta HnnkRid fartölvan
fré IBM kemurá markaðinn.
Þetta er fyrsta fartölvan á
markaðnum með litaskjá
og pinnamús.
Nýherji stofnaður með
samruna IBM á Islandi oi
Skrifstofuvéla og verður
umboðsaðili IBM.
' '
IBM kynnir fyrstu
fartölvuna sem
vegur minna en 2kg
IBM hefurselt
100 milljón tölvur
út um allan heim.
Einkatölvuhluti IBM og
tölvuframleiðandinn Lenovo
renna saman i eitt fyrirtæki
undir nafninu Lenovo.
25 árum síðar víkkar
Lenovo út vörulínuna. Auk
Lenovo ThinkPad kemur
Lenovo 3000 fartölvulínan
á markað sem setur nýja
staðla í gæðum og verðum.
Nýherji fagnar því að í ár eru
25 ár síðan IBM hóf
tölvubyltinguna með því að
setja fyrstu einkatölvuna á
markaðinn.
Kíktu í verslun Nýherja og
skoðaðu afmælistilboðin.
fistxlboð
www.lenovo.is
Borgnrtúni 37 | 105 Rvykjavík | s: 5G9 /700 | f: 569 7799 | nyKétji@nyherji.is
Afmælisborn dagsms
T.S. ELIOT SKÁLD, 1888
PÁLL VI PÁFI, 1897
GEORGE GERSHWIN TÓNSKÁLD, 1898
blaöiö
34 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006
kolbrun@bladid.net
Laðast að fornri fegurð
alla Gunnarsdóttir
opnaði nýlega fyrstu
einkasýningu sína í
Gallery Turpentine við
Ingólfsstræti. Sýning-
in ber nafnið Hibridi og þar sýnir
Halla skúlptúr úr gifsi af ýmis kon-
ar furðuverum ásamt málverkum.
„Fyrir þremur árum byrjaði ég að
skoða furðuverusöfn 17. aldar í Evr-
ópu, sem voru aðallega í eigu aðals-
manna. Ég gerði lítinn mannhest
sem var undir áhrifum frá þeim
verkum. Svo byrjaði boltinn að
rúlla og verkin urðu fleiri og síðan
ákvað ég að mála nokkrar myndir
til að hafa einnig á sýningunni," seg-
ir Halla. „Ég hef alltaf laðast að bar-
okkinu sem er svo leikrænt og það
hefur haft áhrif á skúlptúrinn. Ég
fór í mjög hefðbundið nám, bæði á
Ítalíu og í New York, og hef mikið
sótt í það gamla. Ég laðast að fegurð-
inni í listum fyrri alda og sæki svo-
lítið í rómantíkina og hið dulúðlega.
Mér finnst líka gaman að vinna
með höndunum, bæði í málverkinu
og skúlptúrnum. Nálægðin er svo
skemmtileg.
Ég vann þessa sýningu í vinnustof-
unni minni í Gróttu í sumar. Þegar
maður er einn á vinnustofunni þá
er mjög þægilegt og vinalegt að hafa
þessa furðufugla í kringum sig. Þeir
verða kunnugleg andlit í stúdíóinu.
Mér fannst ég ekki vera alveg ein
þegar þeir voru þarna og horfðu á
mig.“
Þegar Halla er spurð hvort hún
eigi erfitt með að láta verk sín frá
sér segir hún: „Fyrst fannst mér erf-
itt að láta frá mér það sem ég hafði
gert en núna er ég komin yfir það.
Það er ánægjulegt til þess að hugsa
að verkin séu þar sem fólk nýtur
þeirra. Ég vil halda áfram og gera
eitthvað nýtt og þá er ekki hægt að
hafa of mikið af gömlum verkum í
kringum sig.“
Skúlptúristi sem málar
Halla býr í New York og er með
vinnustofu í Queens-hverfinu. Hún
stundaði nám í Flórens, New York,
Moskvu og Mexíkó. „Ég hóf nám
í Flórens sem er lítil og þægileg
borg og það er alveg sérlega gaman
að vera þar í skóla. Síðan lærði ég í
nokkra mánuði við rússnesku lista-
akademíuna í Moskvu. Á þessum
tíma rann lítið sem ekkert fjármagn
til listastofnana í borginni og ég
gerði mér fljótt grein fyrir því að það
væri ekki ákjósanlegt fyrir mig að
vera þar sem nemandi og sneri aftur
til Italíu. Árið 1996 fór ég í BA-nám
til New York og var mikið í grafík og
árið 2001 byrjaði ég í mastersnámi í
skúlptúr. Ég lít fyrst og fremst á mig
sem skúlptúrista sem málar.
Frelsi leikhússins
Ég hef búið í New York í tíu ár
þannig að ég er orðin vön borginni
en mér þykir alltaf mjög vænt um
Flórens því ég fór þangað fyrst eft-
ir stúdentsprófið og minningarnar
þaðan eru mjög sterkar. Moskva
hefur mikla sérstöðu því þótt ég
hafi bara verið þar í nokkra mán-
uði þá var mikil upplifun að vera
þar. New York er hins vegar borgin
sem stendur mér næst, svona fyrir
utan Reykjavík auðvitað."
Halla kemur reglulega til íslands
og hún hannaði bæði leikmynd og
búninga fyrir Litlu hryllingsbúð-
ina og Maríubjölluna hjá Leikfélagi
Akureyrar síðastliðinn vetur. „Ég
get vel hugsað mér að vinna meira
í leikhúsinu þótt skúlptúrinn verði
alltaf í fyrsta sæti. I leikhúsinu er
mikið frelsi og þar er hægt að gera
svo margt og maður getur látið
ímyndunaraflið leika lausum hala.
Þegar maður vinnur með góðum
hópi af fólki eins og ég gerði fyr-
ir norðan í vetur þá er leikhúsið
ákaflega gefandi vinnustaður. Svo
blandast auðvitað hugmyndavinn-
an saman. Það er gaman að sjá að
stundum eru hugmyndir sem ég
ætlaði að útfæra í skúlptur búnar
að læða sér upp á svið inn í leik-
mynd og svo öfugt. Bæði störfin
næra hvort annað.“
menningarmolinn
Fyrsta sjónvarpskappræða
Kennedys og Nixons
Á þessum degi árið 1960 fór fram
fyrsta sjónvarpskappræðan milli
johns F. Kennedys og Richards
Nixons í baráttu þeirra fyrir for-
setakjöri. Þetta var jafnframt í
fyrsta sinn sem sjónvarpað var
frá kappræðum forsetaframbjóð-
enda. Kennedy og Nixon mættust
í upptökuveri í Chicago og ræddu
innanríkismál. Mál manna var að
Kennedy hefði staðið sig áberandi
betur. Honum leið vel fyrir framan
sjónvarpsmyndavélar og persónu-
töfrar hans nutu sín til fulls. Nixon
virkaði taugaóstyrkur og þar sem
hann hafði neitað að láta farða
sig fyrir útsendingu sýndist hann
fölur og óaðlaðandi. Nixon gekk
betur í annarri og þriðju kappræðu
þeirra. Sú fjórða snerist um utan-
ríkismál. Tæplega þremur vikum
seinna vann Kennedy forsetakosn-
ingarnar naumlega. Hann fékk 49.7
prósent atkvæða og Nixon 49.6.
4