blaðið - 20.10.2006, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006
blaðið
Edda Þórarinsdóttir leik-
kona var ung móðir í
Hafnarfirði þegar hún
fékk heilablóðfall fyrir
rúmum þrjátíu árum.
Hún var ein heima
ásamt fjögurra mán-
aða syni sínum þegar hún hrasaði í
tröppum og fann síðan fyrir svima
og ógleði.
„Mér fannst eins og það blæddi úr
höfðinu en sá ekki neitt. Maðurinn
minn var ekki í bænum en það sem
vildi mér til happs var að konan á efri
hæðinni var heima og ég náði að kalla
í hana. Hún áttaði sig strax á þvi að
það væri eitthvað mjög alvarlegt að og
hringdi í lækni. Það vildi mér einnig
til happs að það var einmitt læknir
staddur í nágrenninu. Hann áttaði
sig á því hvað þetta væri alvarlegt,
hringdi í sjúkrabíl í einum grænum
hvelli og ég var keyrð upp á Borgar-
spítala,“ segir Edda og bætir við að
það hafi einnig skipt máli að um þetta
leyti hafi verið nýkomnir til landsins
tveir ungir læknar sem höfðu sérhæft
sig á þessu sviði og annar þeirra, Krist-
inn Guðmundsson, hafi meðhöndlað
hana. „Það var það sem bjargaði mér
því að tíminn skiptir svo miklu máli
i þessu.“
Slapp við lömun
Á meðan Edda var meðvitundar-
laus var ekki vitað hve skaðinn af
heilablóðfallinu yrði mikill og óttað-
ist faðir hennar, sem var læknir, að
hún kynni að lamast. Hún slapp sem
betur fer við lömun en þegar hún rank-
aði við sér átti hún erfitt með að hugsa
skýrt og talaði eintóma vitleysu.
„Ég man eftir því að á því dramat-
íska augnabliki þegar ég var að vakna
til lífsins gat fólkið mitt ekki stillt sig
um að hlæja því að það sem ég reyndi
að segja var svo algjört rugl. Ég var
eins og trúður að skemmta fólki með
einhverju fáránlegu og fyndnu bulli."
Nafnorðin duttu út
Edda segir að á þessum tíma hafi
ekki mikið verið vitað um heilann
og honum hafi verið lýst þannig fyrir
henni að hann væri eins og kommóða
með alls konar skúffum, í einni skúff-
unni væru nafnorð, í annarri sagnorð
og svo framvegis.
„Mér var sagt að þegar svona blæð-
ing yrði gætu einhverjar skúffur
skaddast og í mínu tilfelli var það
nafnorðaskúffan. Nafnorðin duttu
alveg út og það var dálítill galdur að
mynda setningar og gera sig skiljan-
lega án þess að nota þau. Þá bjó ég nú
stundum að því að vera lærð leikkona
þvi að þá varð maður í raun að leika
nafnorðið. Ef mig vantaði til dæmis
handklæði þá sagði ég „Mig vantar
... “ og síðan sýndi ég með látbragði
hvernig maður þurrkar sér með
handklæði," segir Edda og bætir við
að þetta minni svolítið á vel þekktan
samkvæmisleik.
„Nafnorðin komu hægt og rólega
aftur en oft voru þetta kannski ekki
réttu nafnorðin sem ég notaði. Það
kemur reyndar fyrir enn þá, sérstak-
lega ef ég er mjög þreytt,“ segir Edda
og bætir við að þessi skúffa geti enn
verið svolítið stirð. „Ég á það meðal
annars til að biðja um vínber í bak-
aríinu þegar ég ætla mér að kaupa
vínarbrauð.“
Lærði að lesa á ný
Hún átti einnig í erfiðleikum með
lestur og þurfti nánast að læra að lesa
upp á nýtt.
„Það var enginn hér á landi sem
hafði lært eða kunni gagngert að
hjálpa fólki til dæmis að læra að lesa
TILBOÐ
Metasys frábær leið til þyngdarstjómunar
Þessa dagana eru að koma fram fleiri og fleiri einstaklinar sem vitna
um að Metasys hjálpar svo sannarlega í baráttunni við aukakílóin
auk margra annarra heilsufarslegra ávinninga.
Fræið, Fjarðarkaupum, kappkostar lágt vöruverð á heilsuvörum og
höfum við því ákveðið að bjóða
þriggja mánaða skammt af
Metasys á kr. 8890.-
(mánaðarskammtur kostar kr. 4275-)
metasys
áætlunin til að léttast J
FJARÐARKAUP
Fjarðarkaup, Hólshrauni 1b, 220 Hafnarfjörður, sími 5552700
Gerbreyttar aðstæður
,Ef ég hefdi aldrei lært að lesa
aftur eða náð tökum á þvíad læra
eitthvad utan bókar þá hefði maður
bara orðið að snúa sér að einhverju
öðru en leiklist. Aðaimálid varað ná
heilsu," segir Edda Þórarinsdóttir
leikkona sem fékk heilablóðfall fyrir
rúmum þrjátíu árum. Mymlir/Fiikki
iyyjN' * jZl , k • [m
T Á
i i . 't ■ ■■iiÉH ''w 1