blaðið - 20.10.2006, Síða 38
hitt&þetta
38
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006
Æstur aðdáandi
Fræga fólkið á yfirleitt nokkra brjálaða aðdáendur. Leikarinn Brad Pitt er
ekki undanskilinn því en árið 1999 braust inn til hans kona að nafni Athena
Rolando. Þegar konan var gripin af lögreglunni var hún búin að klæða sig í föt
stjörnunnar og hafði komið sér vel fyrir i rúmi hans. Athena var dæmd í 3 ára
skilorðsbundið fangelsi og skikkuð til að gangast undir sálfræðiaðstoð.
CH—dLSu^
» Einhleypueldhúsið
blaðið
Stjörnur í herferðum
Stjörnurnar eru alltaf vinsælar í auglýsingaherferðum
stóru tískufyrirtækjanna. Mischa Barton er andlit versl
unarkeðjunnar Morgan, Madonna er hjá H&M, Claudia
Schiffer er fyrirsæta Accessorize og söngkonan Sop-
hie Ellis Bextor situr fyrir hjá Monsoon.
MEINHOLLUR SKYNDIBITI
SOÐIN ÝSA MEÐ NÝJUM KARTÖFLUM OG RÚGBRAUÐI
Uppáhaldsmaturinn okkar er soðin ýsa með kartöflum
og ég mæli með ýsunni að minnsta kosti elnu sinni í
viku, segir Líf Magneudóttir sem býr í Vesturbænum
með syni sínum Degi Ara, 6 ára.
Við veljum litlar kartöflur því það tekur lítinn tíma að
sjóða þær. Ég set ýsuna í kalt vatn, læt suðuna koma
upp og slekk og leyfi ýsunni að standa i smá stund.
Hún er síðan borin fram með kartöflum og rúgbrauði
með smjöri. Stundum bý ég til Surtsey handa Degi
syni mínum. Þá stappa ég ýsuna við kartöflur með
smjöri. Bý til eins konar fjall með gati í miðjunni og
set tómatsósu þar í. Amma mín gerði þetta fyrir mig
og nafnið er vitaskuld eftlr eyjunni sem við græddum
árið 1963. Surtseyjargos úr ýsu með vellandi tómat-
sósuhrauni.
Ég mæli
með því að allir
gerist heimsfor-
eldrar UNICEF og
hætti að pirrast yfir
smásmuguleg-
heitum.
Lif Magneudóttir
eldarSurtseyjargos
ur Jýsu með t i
vellandi tómatsósuhrauni
Fullt nafn? Líf Magneudóttir
Aldur? 32 ára
Starf? Almannatengill og fréttaþýðandi
Eru skór tll að ganga á? Krúsjoff notaði skóinn sinn til að berja í borðið á fundi í SÞ
svo þeir eru til margs nýtilegir.
Hvað verður að vera til I ísskápnum? Naglalakk, óframkallaðar filmur, AB mjólk og
tómatar.
Hvað bjargar deglnum? Strákurinn minn og sturta.
Ferðu eftir uppskriftum? Nei - læt oftast aðra sjá um að elda. Hins vegar fer óg eftir
matseðlum.
Hvaða bækur ertu að lesa? How I became grandmaster at age 14 eftir Alexandra
Kosteniuk, Emil í Kattholti og einn reyfara.
Hvað er kynþokki? Kynþokki er í kollinum
Hvað hlakkar þú til að gera um helgina? Fara á Airwaves og eyða tíma í hangs og
dekur með fjölskyldunni.
Hver myndirðu vilja vera værir þú karlmaður? George Best
Norsk Rosenrot
Rosenrot
... kraftur, orka, andlegt álag
- unnið úr Rosenrot
Brenn Cell
... brennsla
- unnið úr Rosenrot og grænu tei
Lyst - löngun
... kynlífskraftur frá noskri
náttúru fyrir karla og konur
- unnið úr Rosenrot og Muira Puama.
Rosenrot Norge AS framleiðir vörur sínar úr norskri burnirót,
Rosenrot er þekkt fæðubótarefni. www.rosenrot.no
Fæst í Árbæjarapóteki, Lyfjavali Álftamýri, Lyfjavali Hæðasmára, Lyfjavali Mjódd og Rimaapóteki.
ORosenrotl
Foíoktvk^togiWie
ovmfcKWlhvwðair'
Snyrtibuddan
úður Nýtt Stay-in-Place púöur frá
Estée Lauder sem helst virkilega
vel á húöinni allan liðlangan dag-
inn. Þetta er tilvalinn farði hvort
sem er til að nota að degi til eða
á kvöldin. Farðinn er léttur og
fellur vel að húðinni og gerir áferð
hennar silkimjúka og lýtalausa. .
Förðunarbursti
Þennan bursta er
frábært að nota með öllum
förðum frá Lancðme. Með honum er
auðvelt að bera farðann á, áferðin verður jöfn og
ending farðans eykst.
Farði Magie Matte farðinn frá Lancöme er sér-
staklega góður fyrir þær sem vilja náttúrulegan
og mattan farða sem endist allan daginn. Farðinn
jafnar áferð húðarinnar mjög vel og getur verið
bæði mikið og lítið þekjandi. Formúlan er létt
og auðveld í notkun, hylur ójöfnur og dregur
úr gljáa og svokallaðar micro perlur gefa
húðinni geislandi yfirbragö.
Hyljari Stay-in-Place
hyljarinn frá Estée Lauder
helst ótrúlega vel á
húðinni allan daginn og
fjarlægir þreytumerki
ásamt því að gera húðina
geislandi fallega. Hylj-
arinn hentar öllum húö-
gerðum og er afar mjúkur
og léttur viðkomu. Hann
er auðveldur í notkun og
hylur þau svæði andlits-
ins sem hann er borinn á
^fullkomlega.
Orange-Palms Preventor
Erfitt getur verið að losna
við gulbrúna lófa eftir að
brúnkukrem hefur verið
boriö á, en lófarnir eiga það
til að taka óþarflega mikinn
lit. Orange Palms Preventor
er snilldar lausn, en kremið
er sérstaklega hannað fyrir
þetta vandamál þar sem
það fjarlægir á mildan hátt
sjálfsbrúnku úr lófunum.
Jfe..
Flash Retouche Frábær hyljari sem gefur húðinni fal-
legan Ijóma. Burstinn er ótrúlega einfaldur i notkun og
hylur þau svæði sem hann er notaður á sérstaklega vel.
Perluagnir í farðanum gefa húðinni einstakan Ijóma þar sem þær
endurkasta Ijósi og gera það að verkum að útkoman verður geislandi
yfirbragð. Þreytumerki hverfa af húðinni með einni pennastroku.