blaðið - 04.11.2006, Qupperneq 6
[ffls töframassinn
Án skaðlegra efna • Fitu- og kýsilleysandi
Húðvænt • Náttúrulegt • Mjög drjúgt
Ótrúlega góður árangur
Fyrir
Eftir
Tilboð 650 gr. á kr 1.990.-
Svampur fylgir með
Hreinsar, fægir og verndar samtímis. Hentar vel til
þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfríu stáli,
sllfri, áli, gulli, kopar, messlng, gleri, plasti,
lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulfni ofl. ofl.
Ómlssandi fyrir heimilið, f bflinn, bátinn,
tjaldvagninn, vlð tómstundirnar, á verkstæðinu,
fyrlr hótel, veitingastaði ofl. ofl.
Ræstivörur Ræstivörur ehf
Stangarhyl 4 • Sfmi 567 4142
www.raestivorur.is
" • .... .
Sveinbjörg Sveínbjörnsd.
Löggiltur fasteignasalí og hdl.
domus
STRAUMSALIR 2 - 201 KÓPAVOGI
Einstaklega glæsileg 127,2 fm 4ra her-
bergja fbúð á 2.hæð í litlu fjölbýli á eftir-
sóttum stað í Salahverfi. Þrjú rúmgóð
svefnherbergi. Allar innréttingar, hurðir og Halldór Jensson
skápar er lakkaðir háglans hvítar, parket og Viðskiptastjóri
flísar á gólfum. Björt og falleg eign þar sem halldor@domus.is
stutt er ( alla almenna þjónustu. slmi 840 2100/440 6014
Verð 31,5 MILU.
Mánud.
12-18
Þriðjud. Miðvikud.
12-18 12-18
Fimmtud.
12-21
Föstud.
10-18
Laugard.
10-18
Sunnud.
12-18
Laugavegi 971 sími 440 6000
Unglingarúnci
Hjónarúm
arnarum
Komið og
Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40
6 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006
blaöið
HANDTAKA
INNLENT
Seldu bjór án leyfis
Lögreglan í Reykjavík kom í veg fyrir sölu ungra frjálshyggjumanna
á áfengum drykkjum á Lækjartorgi í gær. Ungu frjálshyggjumennirnir
höfðu boðað sölu á áfengum bjór til að mótmæla einokunarsölu ríkisins.
Vefurinn mbl greindi frá því að lögreglan hefði gert söluvarninginn upp-
tækan. Hún tók forsvarsmann hópsins til yfirheyrslu á lögreglustöð.
Þingkosningar í Bandaríkjunum:
Er Guð Demókrati?
■ Frambjóöendurnir leggja mun meiri áherslu á trúmál en áöur
■ Sóknarfæri flokksins felast í aö höföa til trúaðra
f kjölfar þess að John Kerry, frambjóð-
andi demókrata, tapaði naumlega
fyrir George Bush, sitjandi forseta
í forsetakosningunum í Bandaríkj-
unum árið 2004, tóku kosningasér-
fræðingar Demókrataflokksins að
rannsaka niðurstöðurnar og kann-
anir sem voru gerðar í aðdraganda
þeirra. Þeir komust að einni sláandi
niðurstöðu: Því trúræknari sem kjós-
endur voru því líklegri voru þeir til
þess að styðja Bush frekar en Kerry.
Þetta er býsna vont fyrir stjórnmála-
flokk í landi þar sem fleiri en 90
prósent segjast trúa á Guð. Margt
bendir til þess að þessar tölur hafi
haft áhrif á hvernig frambjóðendur
flokksins haga málflutningi sínum
í aðdraganda þingkosninganna sem
fara fram á þriðjudag.
Vakið hefur athygli hversu margir
frambjóðendur demókrata leggja
mikla áherslu á að auglýsa trú
sína í baráttunni nú. Auk þessa
taka margir þeirra undir afstöðu
trúarhópa sem tengjast Repúblik-
anaflokknum í umdeildum siðferð-
ismálum. Bob Casey, frambjóðandi
demókrata í öldungadeildarkosning-
unum í Pennsylvaníu, segist vera
sanntrúaður kaþólikki og því and-
vígur fóstureyðingum. Þessi áhersla
hans hefur gert það að verkum að
honum hefur tekist að einangra
pólitískt hitamál meðal kjós
enda og eftir stendur að
kjósendur taka afstöðu
til frambjóðenda sem
fyrst og fremst bygg-
ist á mati þeirra á
stefnu George Bush
í efnahagsmálum og
málefnum Iraks. Og
kannanir benda til þess
að Casey muni leggja
sitjandi öldungadeildar-
þingmann repúblikana
að velli. Aðrir frambjóð-
endur í ríkjum þar sem
kjósendur hafa löngum
kosið repúblikana til emb-
ætta hafa leikið sama leik.
Breska ríkisútvarpið, BBC,
hefur eftir Mara Vanderslice,
fyrrum ráðgjafa johns Kerrys í trú-
málum, að þungavigtarmenn innan
raða demókratahafi skilningáþví að
flokkurinn þurfi að standa sig betur
í því að höfða til trúaðra kjósenda.
Ný könnun sýnir að aðeins fimmt-
ungur kjósenda telur að demókratar
hafi jákvæða afstöðu gagnvart trúar-
brögðum. Þessar tölur sýna hversu
repúblikanar hafa staðið sig vel í
að tengja Guð og trúarbrögð
við stefnumál flokksins
í hugum kjósenda.
Hinsvegar telja stjórn-
málaskýrendur að
fjöldi hneykslismála
og fréttir af skorti á
siðferðislegum styrk
meðal þingmanna
flokksins hafi grafið
undan þessum tengslum
og myndað sóknarfæri
fyrir demókrata til
þess að höfða í ríkara
mæli til trúaðra kjós-
enda. Ómögulegt er
að spá hvort aukin
áhersla demó-
krata á trúmál sé
tímabundin eða til
marks um djúpstæða breytingu á
stefnu flokksins. Endurheimti þeir
meirihluta sinn á þinginu á þriðju-
dag velja þeir sér að öllum Hkindum
trúrækinn forsetaframbjóðanda
fyrir kosningarnar 2008.
Tillögur að bættri umferðarmenningu:
Ökumenn teknir föstum tökum
Samgönguráðherra leggur til að
ungir ökumenn fái bráðabirgðaöku-
skírteini til þriggja ára í stað tveggja
eins og nú er. Markmiðið er að bæta
umferðarmenningu hér á landi.
Bergþór Ólason, aðstoðarmaður
Sturlu Böðvarssonar, segir ýmsar tak-
markanir ungra ökumanna til skoð-
unar sem lagðar verði fyrir Alþingi.
,Við viljum takmarka kraft bílvéla
þeirra sem eru með bráðabirgðaskír-
teini og draga þannig úr hraðakstri
ungmenna,“ segir Bergþór. „Síðan
er til skoðunar að takmarka aksturs-
tíma ungra ökumanna að næturlagi
því á þeim tíma hafa ítrekað orðið
slys.“ I reglugerðinni er gert ráð fyrir
hækkun sekta við hrað- og ölvuna-
Hert viðurlög Samgönguráðherra
vill bæta íslenska umferöarmenn-
ingu.
rakstri þar sem hækkunin nemur
allt að sextíu prósentum. Síendur-
tekin umferðarlagabrot verða tekin
föstum tökum. „Eftir ítrekuð brot í
TILLÖGUR
SAMGÖNGURÁÐHERRA:
■ Bráðabirgöaskírteini verði til þriggja ára
■ Takmarkanir á krafti bilvéla fyrir unga
ökumenn
■ Takmarkaður aksturstími að næturlagi
fyrir unga ökumenn
■ Heimild til upptöku ökutækis
síbrotamanna
■ Svigrúm hraðaksturs lækkað úr
10 km/klst í 5 km/klst
■ Hámarkssekt við hraðakstri hækkuð
í 110 þúsund
■ Hámarkssekt við ölvunarakstri hækkuð
í140 þúsund
umferðinni verður heimild til að taka
ökutæki af viðkomandi. Ennfremur
verður heimild til að selja bílinn."