blaðið - 04.11.2006, Qupperneq 13
blaöiö
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 13
Umrœðan
Freyja
regnjakki
verð áður 3.410 kr.
nú 1.700
Freyja
regnbuxur
verö áður 2.890 kr.
nú 1.400 kr.
kr
Lagersala ■ Faxafeni 12
Opið virka daga kl. 09-18 • laugardag kl. 10-16
NORÐUR
Þórunn er
hugsjónakona
Kristin Pétursdóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir gefur
kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Suðvesturkjör-
dæmi þann 4. nóvember nk. Að
öðrum ólöstuðum er Þórunn best
til þess fallin að leiða listann af
þeim góða hópi sem gefur kost á sér
í prófkjörinu.
Hún hefur setið á Alþingi frá ár-
inu 1999 og hefur verið virk í stjórn-
málum um langa hríð, fyrst með
Kvennalistanum og síðan með Sam-
fylkingunni. Á þessum tíma hefur
hún öðlast ómetanlega reynslu og
áunnið sér traust og virðingu þeirra
sem hafa kynnst henni.
Þórunn er jafnaðarmanneskja af
bestu gerð og ötull talsmaður mann-
réttinda. Hún er femínisti og hefur
beitt sér af krafti í baráttunni gegn
launamun kynjanna. Þórunn vill
að hagsmunir barna hafi forgang
í samfélagi sem kennir sig við vel-
ferð og jöfnuð. Hún vill styðja við
fjölbreytta menntun og nýsköpun,
meðal annars með því að stórauka
framlög til rannsókna og þróunar í
fyrirtækjum og háskólum landsins.
Þórunn er umhverfissinni og
stuðningsmaður þess að ósnortin
og ómetanleg náttúrusvæði séu
vernduð. Hún er einn helsti sérfræð-
ingur Samfylkingarinnar í utan-
rikismálum og hefur m.a. beitt sér
fyrir auknum framlögum íslands
til þróunarsamvinnu.
Þeir sem þekkja Þórunni vita að
þar fer hörkuduglegur stjórnmála-
maður. Hún er kraftmikií hugjóna-
kona, traust og fylgin sér.
Styðjum Þórunni til forystu.
Höfundur er kennari og varabæjar-
fulltrúi í Kópavogi.
Til hvers eru stjórnmálamenn?
Hvernig nennirðu þessu? Er ég
stundum spurð af vinum og stuðn-
ingsfólki þegar rætt er um hörkuna
í íslenskum stjórnmálum. Harkan
er að vísu mest í pípulögnunum
en á stundum brestur lögnin og
þá flæðir út um allt svo að eftir er
tekið.
Svar mitt er einfalt: Ég nenni
þessu af því stjórnmálin snúast
ekki um mig sem persónu, heldur
um hugsjónir mínar og flokkinn
sem ég hef valið að starfa í - Sam-
fylkinguna. Stjórnmál snúast
um fólk - hinn almenna borg-
ara - réttindi hans og lífsgæði. A
því megum við stjórnmálamenn
aldrei missa sjónar. Pólitíkin snýst
ekki um persónu okkar þótt hún
hafi auðvitað áhrif á kjósendur og
val þeirra. Hún er miklu stærri en
við sjálf.
Dómur kjósenda
Svo eru það verkefnin. Það er vin-
sælt að tala fyrir atkvæðgreiðslum
um mál sem deilur standa um og
ekki að undra í samfélagi sem er
jafn illa haldið af meirihlutaræða og
Island er. Það er mjög mikilvægt að
hægt sé að vísa stærstu hagsmuna-
málum þjóðarinnar til kjósenda, t.d.
aðild að Evrópusambandinu eða
stjórnarskrárbreytingum. Annað
væri bæði óeðlilegt og ólýðræðislegt.
Fyrir því hefur Samfylkingin lengi
barist.
En það að vísa stórum málum til
kjósenda leysir stjórnmálamenn
ekki undan þeirri skyldu að hafa
skoðun á þeim. Þjóðaratkvæða-
greiðslur eiga ekki að vera skjól fyrir
skoðanaleysi eða hlutleysi í mikil-
vægum málum. Svo að aftur sé vikið
að hugsanlegri aðild að ESB þá geta
hvorki flokkar né stjórnmálamenn
gert sér upp afstöðuleysi í því máli
vegna þess að kjósendur eigi síðasta
orðið. Þeir þurfa hins vegar að lúta
vilja kjósenda sama hver skoðun þe-
irra sjálfra á málinu er og þótt þeir
lúti í lægra haldi.
Erfíð mál
Það sama á við um fyrirhugaða
atkvæðagreiðslu Hafnfirðinga um
stækkun álversins í Straumsvík.
Atkvæðagreiðslan leysir bæjarfull-
trúana ekki undan þeirri skyldu
að lýsa skoðun sinni á stækkun-
inni. Hér er um stórmál að ræða
og það er ekki einkamál Hafnar-
fjarðarbæjar, ekki frekar en Kára-
hnjúkavirkjun gat verið einkamál
Héraðsbúa og Austfirðinga. I raun
er um þjóðarhagsmuni að tefla,
bæði í efnhagslegu og umhverfis-
legu tilliti.
Af þessum ástæðum hef ég
leyft mér að lýsa skoðun minni á
hugsanlegri stækkun álversins í
Straumsvík og tel hana óráðlega
og hvorki til hagsbóta fyrir Hafn-
arfirðinga né aðra landsmenn. Ég
geri mér alveg grein fyrir því að
með því að lýsa þessu yfir set ég
höfuðið í gin ljónsins. Én það hef
ég áður gert og lifað af.
Forystan leiðir
Stjórnmálamenn eiga ekki að
hlaupa á eftir hjörðinni eða láta
karlakjaftaþættina stjórna sér.
Þeir eiga að hlusta á fólkið, taka
upplýstar ákvarðanir byggðar á
lífsskoðun sinni og hugsjónum
og vera óhræddir við að leiða þjóð-
nu
Súlur
vind- og regnheldur jakki
verð áður 24.500 kr.
9.800
Súlur
vindheld og hlý
verð áður 14.490 kr.
5.800
nu
kr
Þórunn er
jafnaðar-
af
bestu gerð
ina inní nýja tíma. Þannig hef ég
alltaf starfað í Samfylkingunni og
þannig vil ég starfa áfram í forystu
Samfylkingarinnar.
Höfundur er þingmaður Samfylking-
arinnar í Suðvesturkjördæmi.
Stjómmála
menn eiga að
hlusta á þjóð
ina og veita
henni
forystu
Þórunn Sveinbjarnardóttir