blaðið - 04.11.2006, Page 44
blaðið
Megas og Magga Stína
Magga Stína og félagar halda útaáfutónleika plötunnar Magga
Stína syngur Megas i Salnum í Kopavogi í kvöld klukkan 2T. Þar
mun hun syngja nokkrar af perlum meistarans meö sínu nefi.
helgin@bladid.net
44 LAUGARDAGUR 4.
2006
Stæltir kroppar
Þeir sem hafa áhuga a stæltum líkömum geta
skellt sér á bikarmotiö í fitness og vaxtarrækt
fer fram í Austurbæ klukkan 20 í kvöld.
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
C®1
HjartaHeill
sírai 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
Nplheilsa
Ll JBB -haföu þ*ö gott
MÚLTÍ-VÍT
Náttúruleg fjölvítamín
með steinefnum
V*bo b»l mtr* tyrtr þfiir ÍUtfHkngi
180 töflur
Inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni.
'*‘ðAV°
heilsa
-hdfðu þaö gott
SMÁAUGLÝSINGAR
KAUPA
/SELJA
blaðiön
SMAAUGLYSINGAR igBLAOID.NET
Risaball
Á móti sól
Magni Ásgeirsson og félagar í
hljómsveitinni Á móti sól verða
með risaball ásamt Veðurguð-
unum í Ölfushöllinni í kvöld.
Nýtt barnaleikrit
Möguleikhúsið við Hlemm
frumsýnir Höll ævintýranna, nýtt
barnaleikrit eftir Bjarna Ing-
varsson, á morgun, sunnudag,
klukkan 14.
Ganga gegn
nauðgunum
Jafningjaf-
ræðslan
stendur fyrir
göngu gegn
I nauðgunum
frá Hlemmi
niður Lauga-
veginn á mið-
nætti í kvöld.
Gangan
endar á Ing-
ólfstorgi eða í kjallara Hins húss-
ins (ef veður verður slæmt) þar
sem trúbadorinn Toggi mun leika
lög af nýútkominni plötu sinni.
Gjörningur á
Lækjartorgi
í tilefni af degi alþjóðlegrar lofts-
lagsherferðar standa fslandsvinir
fyrir myndasýningu sem varpar
Ijósi á þátt fslendinga í lofts-
lagsþreytingum á Lækjartorgi
klukkan 13 í dag.
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ
NÁMSKEIÐ VIKULEGA
Hárbylting
Nær eigin hári kemst þú ekki.
Með H.P.c injected hári.
Einn helsti framleiðandi varanlegs
viðbótarhárs býður nú lausn sem er svo
eðlileg að þér finnst þú hafa fengið þitt
eigið hár aftur.
Efþú viit vita meira, hringdu þá til okkarí
dag án nokkurra skuldbindinga og
í fullum trúnaði.
APOLLO hárstúdio Hringbraut 119
107 Reykjavík
Sími: 5522099
www.apollohar.is
Listahátíð ungs fólks í fullum gangi
Undirbúningur í fullum gangi
Nemar á fataiðnbraut í Iðnskólanum
í Reykjavík undirbúa sig fyrir sýning-
una íkvöld.
Fatahönnuðir
framtíðarinnar
Unglist, listahátíð ungs
fólks, stendur nú sem
hæst og í kvöld klukk-
an 20 blása nemar í
fataiðn við Iðnskólann
i Reykjavik til glæsilegrar tísku-
sýningar í Tjarnarbíói. Þeir sýna
föt sem þeir hafa sjálfir hannað og
saumað og verður fjölbreytnin í fyr-
irrúmi að sögn Tinnu Kvaran, skipu-
leggjanda sýningarinnar.
„Þessir krakkar eru að þróa sig
áfram með að sauma á sig föt sem
ekki fást úti í búð. Það er einmitt
þess vegna sem margir þeirra eru
í þessu námi. Þeir hafa áhuga á að
fást við hönnun og skipta sér af því
sem er í tísku og vera ekki allir eins,“
segir Tinna.
Góð reynsla fyrir nemendur
Tískusýning fataiðnnema hefur
verið fastur liður Unglistar frá upp-
hafi og segir Tinna að nemendur
hefji undirbúning fyrir hana í haust-
byrjun þó að skipulagning hefjist
ekki af alvöru fyrr en tveimur vik-
um fyrir sýningu.
Jm
HMé
' ■!'' jp’
Frá tískusýningunni í fyrra
Tískusýning fataiðnnema hefur verið
fastur liður á Unglist frá upphafi.
„Kennararnir halda þessu við og
ýta undir að nemendur taki þátt og
sýni sitt og fái alla þessa reynslu í
staðinn,“ segir Tinna og bætir við
að það sé einnig mikilvæg reynsla
fyrir sig að taka þátt í skipulagn-
ingu sýningarinnar.
Hún hefur haft í nógu að snúast
undanfarna daga enda koma um 6o
manns að sýningunni. Nemendur
úr Förðunarskólanum sjá um förð-
un fyrirsætna, hárgreiðslunemar
um hárgreiðslu og nemar af hönnun-
arbraut eiga heiðurinn af umgjörð
sýningarinnar. Þá munu nemar úr
Tónlistarskóla Reykjavíkur sjá um
upphitun áður en sýningin sjálf
hefst.
Sígild verk frá ýmsum tímum
Unglist heldur áfram á morgun
klukkan 20 en þá verður boðið til sí-
gildrar tónlistardagskrár í Tjarnar-
bíói. Ungt og upprennandi listafólk
úr tónlistarskólum víðsvegar um
höfuðborgarsvæðið mun leika og
syngja fjölbreytt sígild verk frá ýms-
um tímabilum tónlistarsögunnar.
Ókeypis er inn á alla viðburði
Unglistar og eru allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir. Dagskrána í
heild sinni má nálgast á unglist.is.
Vökudagar a Akranesi
Það verður mikið um að vera á
Akranesi um helgina enda hófust
Vökudagar, árleg menningarhátíð
bæjarins, á fimmtudag og stendur
til 9. nóvember. Boðið verður upp
á fjölbreytta dagskrá víða um bæ-
inn meðan á hátíðinni stendur svo
sem tónleika, myndlistarsýningar,
leiklistarnámskeið og hagyrðinga-
kvöld.
f dag opnar ljósmyndarinn og
bæjarlistamaðurinn Friðþjófur
Helgason sýningu sína „Fólk í fimm
heimsálfum“ í húsnæði Skagaleik-
flokksins Vesturgötu 119.
Klukkan 11 fer fram orgelkynn-
ing fyrir börn í Akraneskirkju und-
ir yfirskriftinni „Bach fyrir börnin"
og síðdegis verður sérstök dagskrá
um „Skagaskáldin“ á Safnasvæðinu
á Akranesi.
Þá verður handverk og ýmsir
munir til sölu á Höfðabasarnum í
dvalarheimilinu Höfða milli klukk-
an 14 og 17.
Unglingum á aldrinum 13-17 ára
gefst tækifæri til að taka þátt í leik-
listarverkefni í húsnæði Skagaleik-
flokksins Vesturgötu 119 í dag og á
morgun frá klukkan 13-16.
Orkuveita Reykjavikur stendur
fyrir flugeldasýningu á íþróttasvæð-
inu á Jaðarsbökkum klukkan 20
annað kvöld og að henni lokinni
verður blásið til hagyrðingakvölds í
Safnaskálanum að Görðum.
Menning á Skaganum Mennin-
garhátíðin Vökudagar stendur yfir á
Akranesi um þessar mundir.
Dagskrá menningarhátíðarinnar
í heild sinni má nálgast á vef Akra-
nesbæjar akranes.is.