blaðið

Ulloq

blaðið - 11.11.2006, Qupperneq 2

blaðið - 11.11.2006, Qupperneq 2
 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 blaöió VEÐRIÐ I DAG Bjart og hægt Norðvestan 5 til 10 metrar á sekúndu um hádegisbilið, mestur vindur aust- antil. Þykknar upp vestanlands í kvöld. Hiti rétt undir frostmarki. AMORGUN Slagviðri Suðaustan slagviðri sunnan- og vestanlands á morgun en slydda norðaustantil. Hiti 2 til 8 stig en kólnar í næstu viku. Algarve 20 Glasgow 13 New York 14 Amsterdam 10 Hamborg 8 Orlando 13 Barcelona 20 Helslnkl 0 Osló 2 Berlln 9 Kaupmannahöfn 5 Palma 22 Chlcago 18 London 11 París 10 Dublln 14 Madrid 21 Stokkbólmur 3 Frankfurt 9 Montreal 6 Þórshöfn 7 Hannes Hólmsteinn: Sýknaður af ritstuldi Hannes Hólmsteinn Gissur- arson prófessor var sýknaður af öllum kröfum Auðar Laxness, ' ekkju Halldórs Laxness, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Auður taldi Hannes hafa brotið höfundarrétt Halldórs við ritun ævisögu hans. Dómari segh að meðferð Hann- esar á verkum Halldórs hafi verið ófullnægjandi, en samkvæmt almennum hegningarlögum á að höfða slík mál innan sex mánaða frá því að vitneskja fæst um brotið. Því verði að sýkna Hannes af kröfunum þar sem sá frestur hafi löngu verið liðinn. Sameinuöu þjóðirnar: Bolton á útleið Líklegt þykir að John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, verði næsta fórnarlamb kosningasig- urs demókrata á eftir Donald Rumsfeld. Þrátt fyrir að George Bush forseti vilji að Bolton verði áfram í embætti eru taldar litlar líkur á að öldungadeildin, þar sem demókratar eru í meirihluta, staðfesti skipun Boltons frá ág- úst í fyrra. Bolton var skipaður í embætti á meðan þinghlé stóð yfir en fresturinn til þess að þingið staðfesti skipunina rennur út í lok desember. ÚTGÁFA blaðsins Blaöiö kemur að venju næst út á þriðjudag. Arnar Jensson hræddur við Franklín Steiner: Dekrað við Franklín eins og fjölskylduvin ■ Arnar óttaðist afleiðingar ■ Franklín algjörlega friðhelgur Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Mér er það í mun að fram komi að þrátt fyrir þrýsting frá Arnari Jens- syni þá lét ég ekki undan. Það var annar ráðherra sem lét Franklín lausan. Ég vil ekki undir neinum kringumstæðum að öðru sé haldið fram,“ segir Óli Þ. Guðbjartsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra. I umfjöllun Blaðsins um vafa- samar starfsaðferðir lögreglunnar kom meðal annars fram að Arnar Jensson, fyrrverandi yfirmaður fíkniefnadeildar, hafi beitt sér fyrir reynslulausn eiturlyfjasalans Frank- líns Steiners eftir að hann hafði að- eins afplánað helming tímans. Mesti fíkniefnasali landsins vann í skjóli lögreglunna' Ég upplifði mikinn ótta hjá Arnari Óli Þ. Guðbjartsson fyrrverandi dómsmálaráðherra Hræddurvið Franklín Árið 1990 var Franklín dæmdur til 29 mánaða fangelsisvistar. Á þeim tíma var gert ráð fyrir að fíkniefnasalar afplánuðu að minnsta kosti tvo þriðju fangelsis- vistar, jafnvel þótt um fyrsta brot væri að ræða. Oli var dómsmálaráð- herra og lét ekki undan þrýstingi um reynslulausn. Þorsteinn Páls- son tók við af Óla sem dómsmála- ráðherra og veitti Franklín reynslulausn. Óli ítrekar að Arnar hafi beitt sig miklum þrýstingi með stöðugum símhringingum og heimsóknum. „Ég upplifði mikinn ótta hjá Arnari. Hann ótt- aðist greinilega afleiðingar þess ef honum tækist ekki að fá Franklín lausan úr fangelsi,“ segir Óli. Algjörlega friðhelgur Einn af heimildarmönnum Blaðs- ins, sem þekkir vel til starfsemi lögreglunnar, segir samband fíkni- efnadeildarinnar við Franklín hafa verið mjög náið. „Mér ofbauð dekrið við Franklín Steiner. Það leit út eins og hann væri fjölskyldu- vinur," segir heimildarmaðurinn. „Málið sem fyllti mælinn var þegar ungur piltur var tekinn með kiló af fikniefnum eftir uppljóstrun Franklíns. Hið óeðlilega við handtökuna var að dreng- urinn hafði nefnilega upp- haflega keypt fíkniefnin af Franklín en hann var algjörlega friðhelgur." Litla Hraun Franklín Steiner dvaldi á Litla Hrauni meðan Arnar þrýsti á að honum væri sleppt snemma á reynslulausn. Noregur: Fangelsi fyrir fataþjófnaö Norsk kona hefur verið dæmd í eins árs fangelsi fyrir ítrek- aðan þjófnað á fötum sem hefur staðið yfir í að minnsta kosti níu ár. í dómnum segir að H&M hafi mest orðið fyrir barðinu á konunni, þó að fataverslanirnar sem konan hnuplaði í telji á annan tug. Sannað þykir að hún hafi stolið fötum frá H&M fyrir andvirði um fjögurra milljóna króna. Þýfið fannst á heimili konunnar, sem er 56 ára gömul, og mældist þýfið um hálft tonn að þyngd. Auk fangelsis- dómsins þarf konan að greiða skaðabætur. Irak: Alltað 150 þúsund fallin Heilbrigðisráðherra Iraks, Ali al-Shamari, segir að á bilinu 100 til 150 þúsund manns hafi látist í stríðinu í írak. Mat manna á því hversu margir hafa fallið síðan Bandarikjamenn og bandamenn þeirra réðust inn í landið er mismunandi og hafa tölur frá 50 þúsund upp í 655 þúsund verið nefndar. Fram til þessa hafa bæði írakskir og bandarískir embættismenn ýjað að því að um 50 þúsund hafi fallið. Ali al-Shamari segir að talan sé byggð á tölum frá opinberum likhúsum og sjúkrahúsum í írak Aftakaveður á sunnan- og vestanverðu landinu: Rúta valt á Holtavörðuheiði Gæða sængur og heilsukoddar. Opið virka daga: 10-18, lau: 11-16 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Rúta valt á Holtavörðuheiði um hádegisbil í gær í aftakaveðri sem gekk yfir landið. Að sögn lögreglu í Borgarnesi slasaðist enginn og hlutu farþegar aðeins skrámur. Miklar vindhviður gengu yfir heiðina í gær og var mikil hálka. Mikill viðbúnaður var hjá.björg- unarsveitum á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt gærdagsins vegna óveð- ursins. Um fimmtíu björgunarsveit- armenn voru á vakt alla nóttina og sinntu þeir um fjörutíu útköllum. Jón Ingi Sigvaldason hjá Lands- björgu segir að í flestum útköllum hafi þurft að stöðva fjúkandi ruslat- unnur, kerrur og trampólín en sem betur fer hafi verið lítið um brotnar rúður og þess háttar óhöpp. Innanlandsflug lá niðri langt Rúta fauk út af og valt á hlið Miklar vindhviöur gengu yfir Holtavöröuheiöi og var mikil hálka. fram eftir degi auk þess sem milli- landaflug riðlaðist vegna óveðurs- ins. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, segist reikna með að flugsamgöngur ættu að vera komnar í samt lag seinnipartinn í dag. Þá var öllum ferðum Herjólfs milli lands og Vestmannaeyja aflý og veginum um Óshlíð lokað vegr grjóthruns. Veðrið hafði einnig áhrif á skól starf, en því var aflýst í þremi skólum í Borgarfirði. Skólahald fé einnig niður í Grunnskóla Grind
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.