blaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 16

blaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 16
ÞEIR SÖGÐU NÚ! Ég er ekki hér afþví ég er sonur Jóns Baldvins, ég er ekki hér af m m því ég er sonur Bryndísar Schram eða sonarsonur Hannibals, nú ** eða litli frændi Ellerts Schram meðframbjóðanda míns hér.” GLÚMUR BALDVINSSON NEITAR ALGJÖRLEGA AÐ NOTFÆRA SÉR ÆTTARTENGSL i PRÓFKJÖRSBARÁTTUNNI. UMMÆLIN ER AÐ FINNA Á HEIMASÍÐU HANS: GLUMUR.IS. 16 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 blaöiö Héraðsdómur: Síbrotamaður dæmdur Maður á fertugsaldri var dæmdur í 5 mánaða fangelsi, þar af eru þrír mánuðir skil- orðsbundnir, fyrir að brjótast inn í bíl og stela geislaspilara. Maðurinn hefur margoft orðið uppvís að fikniefnabrot- um og þjófnuðum. Þar að auki framdi maðurinn afbrotið þegar hann var að afplána skilorð. Því þykir Héraðsdómi Reykjavík- ur rétt að dómurinn sé ekki skilorðsbundinn að fullu. Nú kostar meira að halda upp á jólin: Jólatré hækka mikið í verði ■ Minna framboð ■ Salan að hefjast Eftir Atla Ísleifsson atlii@bladid.net „Ég á eftir að átta mig almennilega á því en ég hugsa að það gæti orðið allt að fimmtán til tuttugu prósenta verðhækkun á jólatrjám í innkaups- sölu,“ segir Kristinn Einarsson, fram- kvæmdastjóri Blómavals. „Svo á eftir að koma í ljós hvað íslenski kaupmað- urinn gerir. Innkaupsverðið er hins vegar ldárlega að hækka.“ Kristinn segir að öll erlend tré sem íslendingar flytja inn komi frá Danmörku. Þar eru langflest tré af tegundinni normannsþini ræktuð sem er það tré sem selst mest á Is- landi. „Um sjötíu til áttatíu prósent af jólatrésmarkaðnum eru dönsku normannsþinirnir. Við áætlum að verið sé að flytja inn um fjörutíu þús- und slík tré á ári hverju. Það er eitt- hvað með loftslagið í Danmörku og normannsþininn sem á vel saman.“ I Danmörku hafa framleiðendur á jólatrjám verið að hætta vegna þess að þeim hafa boðist úrelding- arstyrkir, styrkir til að hætta fram- leiðslu, þar sem offramboð hefur verið á jólatrjám. „Nú hafa margir þegið þessa styrki, þannig að fram- boðið er miklu minna en það hefur verið. Það hleypir upp verðinu.“ Að sögn Kristins fer salan af stað á Islandi i næstu viku, þegar fyrir- r% Innflutningsverð erhærraiáren ifyrra ' A. Ví Kristinn Einarsson Framkvæmdastjóri Blómavals tæki og stofnanir fá tré til að setja út. „Jafnvægi hefur rikt milli fram- boðs og eftirspurnar á jólatrésmark- aðnum á íslandi undanfarin ár. Maður veit samt ekki hvernig þetta verður. Innkaupsverðið verður að minnsta kosti hærra í ár en hefur verið siðustu ár. Það mun svo koma í ljós hvort menn haldi eitthvað að sér höndum í innkaupunum og hvort kaupmaðurinn taki á sig hækk- unina eða verðið á trjánum hækki í smásölu. Við hjá Blómavali eigum eftir að taka ákvörðun um það.“ Kristinn segir innlenda fram- leiðslu ekki vera mikla. „Vissulega hefur eitthvað þurft að grisja skóga, en kerfisbundin framleiðsla er hins vegar að hefjast hjá Skógræktarfé- lagi Islands um þessar mundir. Ég myndi áætla að um tíu til fimmtán Íiúsund tré séu höggvin árlega á slandi.“ Meðalverð á jólatré, sem er um 175 sentimetrar að hæð, hefur verið milli 4 og 5 þúsund krónur síðustu árin. Stungna konan komin af gjörgæslu: Arásarmaður játar morðtilraun Maðurinn sem stakk konu og mann á Húsavík síðasta sunnudag hefur játað verknaðinn. Lögreglu- menn segja málsatvik þó ekki enn Uggja ljós fyrir. Ekki er vitað hvers vegna maðurinn reyndi að myrða fólkið en hann verður í gæsluvarð- haldi til 20. nóvember. Vegna þess hversu ofsafengin og alvarleg árásin var er ekki ólíklegt að krafist verði áframhaldandi gæsluvarðhalds. Konan hringdi á hjálp og lagði lögreglan þá af stað til hjálpar. Mað- urinn mun hafa stungið hana í bakið þannig blað hnifsins gekk inn í brjósthol. Einnig stakk hann hús- ráðanda. Sá gat forðað sér særður yfir til nágranna. Alvarieg morðtilraun Maðurstakk konu og mann og kveikti íhúsinu. Þegar lögreglan kom á staðinn stóð húsið í ljósum logum og lá konan í anddyrinu. Lögreglu- mönnum tókst að bjarga henni út. en þá réðist maðurinn á þá. Konan var færð á sjúkrahús en hefur nú verið útskrifuð þaðan. Maðurinn sem var stunginn hefur dvalið á sjúkrahúsi alla vikuna. er þekkt fyrir dugnaö, stefnufestu og málafylgju í starfi. Hún stendur vörð um velferðarkerfið og er óþreytandi að boða jöfnuð og réttlæti í samfélaginu. Ójöfnuður í þjóðfélaginu er orðinn allt of mikill og óþolandi. Brýnast er að bæta kjör og aðbúnað lífeyrisþega og öryrkja og létta undir með barnafólki með því að leiðrétta vaxtabætur og bamabætur. Þá þarf að leggja mikla áherslu á menntamál sem tæki til að jafna kjör og aðstæður fólks. Við þurfum líka nýja atvinnustefnu sem hampar ekki stóriðju á kostnað annarra atvinnugreina. ' Ásta Ragnheiður hefur barist ötullega fyrir framförum og réttindum almennings í heilbrigðis- og tryggingamálum og nýtur þar yfirburðaþekkingar sinnar og reynslu af þeim málaflokkum. Hún hefur beitt sérfyrir fjölmörgum umbótum og nýjungum, m.a. í heilbrigðis- og félagsmálum, menningar- málum, samgöngu- og ferðamálum. Ásta Ragnheiður hefur hugsjónir að leiðarljósi og berst ótrauð fyrir þeim. Jöfnuður, samhjálp og réttlæti eru kjarni starfa hennar í stjórnmálum. Við höfum tækifæri til að tryggja að Ásta Ragnheiður haldi áfram að standa vörð um velferð, réttindi og hagsmuni almennings. Tökum þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í dag, 11. nóvember. Tryggjum Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur áfram 4. sætið - þitt atkvæði getur ráðið úrslitum. KOSNINGAMIÐSTÖÐ BANKASTRÆTI 11 OpiÐKL. 10-18 SIMI 534 9498 bvlíing í dekkjum Kynningarverð! kr. 5.700.- kr. 6.700.- kr. 7.800.- kr. 9.900. efhireM. Komdu strax Takmarkaö magn Vesturhraun 3-210 Garðabær Green Diamond USA sími 555 1122/ 869 1122 - efnir@efnir.is wwwgreendiamondtire.com Opið virka daga kl. 9-18 - Laugardaga kl.13-16 í i < l l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.