blaðið - 11.11.2006, Side 42
42 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006
blaðið
egar litið er yfir starfs-
feril Helgu Hjörvar
mætti ætla að þar væri
mjög öldruð kona á ferð
en ekki kona á besta
aldri. Hún hefur komið
víða við, er leikari, fyrr-
verandi kennari og skólastjóri Leik-
listarskólans, forstöðumaður nor-
rænna menningarstofnana og núna
rekur hún Norrænu menningarmið-
stöðina í Kaupmannahöfn. Helga er í
heimsókn á Islandi til að styðja son
sinn, Helga Hjörvar, í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík en hann
býður sig fram í fjórða sætið. „Við fjöl-
skyldan ákváðum að koma heim og
hjálpa til í prófkjörinu. Við komum
fyrir viku síðan og það er ekki hægt
að segja að landið hafi tekið vel á
móti okkur en maður er minntur á
hvað þarf mikinn kraft til að lifa af
í þessu landi.“
250 ára gamalt pakkhús
Helga hefur rekið Norrænu menn-
ingarmiðstöðina í tæplega tvö ár. „Ég
er forstjóriNorðurbryggju sem er 250
ára gamalt pakkhús sem hefur verið
gert upp. Það var opnað árið 2003 og
tilgangur hússins er að vekja athygli
á menningu Grænlands, íslands og
Færeyja. Ihúsinu er íslenska sendi-
ráðið og færeysku og grænlensku
sendistofurnar. Tvær hæðir hússins
eru alltaf notaðar undir myndlistar-
sýningar en við leigjum út fimmtu
hæðina fyrir ráðstefnur og annað,“
segir Helga sem hefur mikla ánægju
af starfinu. „Það er mjög góð aðsókn
að húsinu og það eru helst Danir og
Svíar sem heimsækja okkur. Það er
mjög gloppótt hvað Danir vita um
menningu þessara landa. Það má
segja að þeir viti mikið um íslenskar
bókmenntir, færeyska málaralist og
grænlenska skurðarlist. Um þessar
mundir er sýning á verkum danskra
málara sem komu til íslands 1947
og sérkennileg sýning um uppstopp-
aða ísbirni í menningarmiðstöðinni.
Auk þess erum við nýbúin að vera
með stórtónleika þar sem ýmsar
hljómsveitir komu fram og þar á
meðal voru Ham frá íslandi og Who
made Who frá Danmörku."
Lífið er tómar tilviljanir
Helga hefur búið af og til í Kaup-
mannahöfn en kom fyrst þangað
þegar hún var nítján ára gömul.
„Það má segja að ég fari þangað sem
vinnan leiðir mig. Ég er svo heppin
að maðurinn minn er rithöfundur
og þýðandi, hann spyr bara hvort
það sé tölvutenging þar sem við
flytjum og þá er hann sáttur. Börnin
okkar segja til gamans að um leið og
þau vaxa úr grasi þá flytjum við for-
eldrarnir að heiman. Upphaflega er
ég leikari en ég hef lítið unnið sem
leikari. Ég lék svolítið eftir að ég
útskrifaðist en við vorum svo ógur-
lega margar leikkonur, og þó ég segi
sjálf frá, rosalega góðar," segir Helga
og hlær. „Það var ekki pláss fyrir
okkur allar. Ég fór mjög fljótlega
að kenna og leikstýra og svo hef ég
verið við stjórn menningarstofnana
síðan 1974. Ég var eins og flestir sem
fara í leiklistarskóla, ég hefði viljað
höggva af mér bæði hæl og tá til að fá
góð hlutverk. En mér líkar mjög vel
leiðin sem valdist fyrir mig. Ég segi
valdist fyrir mig því maður velur
ekki hvert lífið leiðir mann. Lífið er
tómar tilviljanir. Að vera leikari er
eitt erfiðasta starf sem til er því leik-
arinn er alltaf að reyna að gera betur
í dag en í gær. Það er sífelld áskorun
um að gera betur og þess vegna er
gott leikhús eitt það allra besta sem
ég get hugsað mér.“
Efnaleg velferð er ekki
ávísun á hamingju
Helga segist alltaf hafa verið
pólitísk í hugsun og vera félags-
hyggjumanneskja. „Ég er alin upp á
verkamannsheimili og fóstri minn
var hafnarverkamaður. Ég man
vel verkföllin þar sem verið var að
ávinna sér réttindi eins og lífeyris-
sjóði og sjúkrasjóði, hluti sem við
teljum vera sjálfsagða í dag. Fóstri
minn kenndi mér að allir væru jafn-
gildir í þjóðfélaginu, hvort sem þeir
væru verkamenn eða forstjórar. Ég
var líka á mótunarárum þegar 68
kynslóðin var ráðandi og það var
endurmat á hvað væru alvöru gildi
í tilverunni auk þess sem maður
uppgötvaði þessi eilífu sannindi
að maður er manns gaman,“ segir
Helga og bætir við að hún upplifi
það sérstaklega í prófkjörinu hvað
sé gaman að tala við fólk. „Það sem
mér finnst erfiðast í Danmörku er
^QWRÖNA
SMYRIL-LINE
SMYRIL LINE ÍSLAND
FERÐASKRIFSTOFAN
Fyrir einn mann og bíl fram og til baka i klefa. *
Innifalið;Sigling til Danmerkur og til baka, gisting í
klefa, flutningur a bíl, bókunargjalrf og forfallatrygging.
Gildir«17-mars 2007. Gildir ekki 19. des. Oólaferð). MasterCard
Fjarðargötu 8 ■ 710 Seyðisfirði • Tel:+354 4721111
austfar@smyril-line.is • www.smyril-line.is
Stangarhyl 1-110 Reykjavik • Tel:+354 570 8600
Fax: +354 552 9450 • www.smyril-line.is
>A AUSTFAR SMYRIL LINE
innan leiðir
lífii i
Wu /
m V / X ;
að þar sér maður fólk sem á hvergi
höfði sínu að halla. Það er voðalega
erfitt að hugsa sér að það skuli vera
til fólk sem þarf að sofa úti á götu
og það er hlutur sem ég á erfitt með
að sætta mig við. Efnaleg velferð er
ekki alltaf ávísun á lífshamingju en
það má aldrei gleymast að svangur
og húsnæðislaus getur maður ekk-
ert gert. Öll getum við orðið veik,
enginn veit hvenær það hittir okkur
og þá finnst mér þessi samfélagslega
hugsun mikilsverð, að við leggjum
til þjóðfélagsins þannig að við
getum fengið eitthvað aftur ef við
verðum svo óheppin að veikjast."
Þjóðfélag þróað með samræðum
Aðspurð hvort Helgi hafi alist
upp á pólitísku heimili segir Helga
að hann hafi fyrst og fremst alist
upp á heimili þar sem mikið og
margvíslegt fólk sem hafði áhuga
á öllu mögulegu kom í heimsókn.
„Þar var talað, rifist og mikið spek-
úlerað. Helgi hefur vanist því frá
unga aldri að það væru miklar um-
ræður á heimilinu og það finnst mér
að skipti mjög miklu máli. Að fólk
tali saman, það séu skoðanaskipti
og fólk segi hvað því finnst, hlusti
á aðra og við þróum þjóðfélag með
því að tala saman. Helgi var ungur
þegar hann fór að hafa áhuga á
stjórnmálum. Einhvern tímann bað
ég hann I guðs bænum að senda ekki
lesendabréf sem hann hafði skrifað
en þá var hann ellefu ára. Bréfið var
um efnahagsmál en ég var sannfærð
um að allir myndu halda að ég hefði
skrifað það. Hann hefur því fylgst
með stjórnmálum frá unga aldri og
alltaf haft sterka réttlætiskennd."
Arfgengur rýrnunarsjúkdómur
Bæði börn Helgu eru með Retinitis
Pygmentosa sem er arfgengur rýrn-
unarsjúkdómur sem getur orsakað
blindu. „Ég og Úlfur erum hvorugt
með augnsjúkdóminn en við erum
arfberar og það eru einhver gen
sem mætast í Úlfi og mér. Helgi var
ungur strákur þegar við vorum fyrst
vör við sjúkdóminn en það vissi eng-
inn hvað þetta var. Hann var nátt-
blindur og átti mjög erfitt með að
koma úr sólarbirtu inn í hús. Það var
ekki fyrr en hann er um tvítugt sem
hann fékk að vita hvað hrjáir hann.
Þá var hann farinn að sjá frekar illa
blaðið
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 43
heim en þrátt fyrir það er ekki vitað
hvort Helgi og Rósa verði alveg blind
eða ekki. „Þessi sjúkdómur er al-
gengasta orsök blindu hjá ungu fólk
í hinum vestræna heimi. Þetta eru
í raun margir sjúkdómar sem allir
eru þannig að það verður rýrnun í
augnbotninum en genin sem orsaka
það eru mismunandi. Helgi og Rósa
hafa alltaf tekist á við sjúkdóminn,
þau hafa boðið honum byrginn. Það
má nefna sem dæmi þegar Helgi var
í fótbolta með strákunum og upp-
götvaði að annað hvort yrði hann að
sitja til hliðar og horfa á eða láta sig
hafa það að detta á nefið öðru hvoru.
Þau hafa hvorugt skap til að sitja og
horfa á, þau vilja vera með i leiknum.
Það er ekki langt síðan við vorum á
Bakkanum í Kaupmannahöfn og við
villtumst. Það var náttúrlega Helgi
sem fann leiðina út. Hann hefur
alltaf verið voðalega ratvís, hann er
mikill stærðfræðingur og skynjar
vel fjarlægðir,“ segir Helga og við-
urkennir að það hafi verið þungt
að horfast í augu við sjúkdóminn.
„Við höfum alltaf látið hverjum degi
nægja sina þjáningu. Ég hef aldrei
haft ástæðu til að líta á Helga eða
Rósu sem sjúklinga. Þau eru fullfr-
ískt fólk með hausinn fullkomlega í
lagi. Þetta er minni skortur en það
hljómar því þau hafa tekist þannig
á við sjúkdóminn. Við reynum að
aðstoða þau eins og við getum en
þau eru bæði svo sjálfbjarga. Þótt
sjúkdómurinn sé arfgengur er hann
ekki til i okkar ættum svo lengi sem
menn muna. Hann myndast með ein-
hverjum erfðabreytingum og þetta
er sú áhætta sem við lifum öll með.“
svanhvit@bladid.net
Styðja við bakið á sínum manni
Rósa Maria, Helga og Úlfur komu sérstaklega til landsins til að styðja Helga Hjörvar í
prófkjörsbaráttunni en hann býður sig fram i 4. sætið hjá Samfylkingunni í Reykjavik.
Helga Hjörvar: „Það er voða-
lega erfitt að hugsa sér að það
skuli vera til fölk sem þarf að
sofa út á götu og það er hlutur
sem ég erfitt með að sætta mig
við iþjóðfélagi. Efnaleg velferö
er ekki alltaf ávisun á lifsham-
ingju en það má aldrei gleymast
að svangur og húsnæðislaus
getur maður ekkert gert. “
%
en eins og margir sem sjá illa þá
vissi hann ekki að hann ætti að sjá
mikið betur. Það var ekkert farið
að há honum þá því sjónin dofnaði
hægt og rólega og hann tók ekki eins
vel eftir þvi. Það var vitanlega áfall
þegar við heyrðum um sjúkdóminn
en hins vegar hefur það einhvern
veginn aldrei verið til umræðu hjá
okkur. Helgi og Rósa hafa alltaf gert
það sem þeim dettur í hug, þau fara
út á kvöldin og komast sinna leiða.
Helgi gengur mikið ogJtósa hjólar
ennþá um Kaupmannahöfn. Þau
hafa farið sínu fram og sjálf fundið
hvað þau geta og hvað þau geta ekki.“
Ahætta sem allir lifa með
Helga segir að sjúkdómurinn sé
mikið rannsakaður viðs vegar um
Álftanes | Garðabær | Hafnarfjörður | Kjósahreppur | Kópavogur | Mosfellsbær | S e 11 j a r n a r n e s
Kraftmikinn
manníbina!
Jón Gunnarsson
framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Það er mikilvægt að fólk með fjölbreytta reynslu taki sæti á Alþingi. Bakgrunnur Jóns Cunnarssonar er úr atvinnullfinu og hann hefur einnig verið I forystu
Slysavarnafélagsins Landsbjörg um árabil. I störfum slnum hefur Jón gegnt ábyrgðarstöðum þar sem oft hefur þurft að taka skjótar og fumlausar ákvarðanir.
Við teljum mikilvægt að fá kraftmikinn mann á þing. Tryggjum Jóni 4. sætið. Verið alltaf velkomin á kosningarskrifstofuna Bæjarlind 14, Kópavogi.
Creiðari samgöngur
Samgöngur eru stórmál I kjördæminu og brýnt að greiða þær leiðir.
Virkjum kraftinn í eldri borgurum
Það er mikil sóun að sá kraftur sem býr I þeim sem eldri eru skuli ekki
nýtast betur á vinnumarkaði vegna óhóflegra skatta.
Nýjan framhaldsskóla í kjördæmið
Til þess að mæta auknum kröfum nútlmans þarf að bjóða upp á fjölbreytni i menntamálum.
Átak gegn fíkniefnum, auknar forvarnir
Nauðsynlegt er að herða baráttuna gegn fikniefnum enn frekar og gripa til sérstakra
ráðstafana til að hindra innflutning, um leið og heildstæð foivarnarstefna verði mótuð.