blaðið - 11.11.2006, Qupperneq 54
1 V* I
rYl ilTI I 1 k • á i 1
Ein vinsælasta lækningajurtin í dagí
Gegn streitu og álagi
Original Arctic Root öðru nafni Burnirót er ein vinsælasta
lækningajurtin í heiminum í dag. Klínískar rannsóknir hafa leitt í Ijós að
hún eflir einbeitingu, úthald og vinnur gegn streitu og álagi.
Original Arctic Root er fjótverkandi og þeir sem nota hana finna jákvæða
breytingu á einbeitingu og úthaldi á mjög skömmum tíma.
Segja má að Original Arctic Root hafi svo sannarlega slegið í gegn á
(slandi þar sem hún nýtur nú þegar mikilla vinsælda.
Gott fyrir fólk undir álagi og í próflestri!
Fæst í apótekum
og heilsubúðum.
Original Arctic
Extract
heilsa
-haföu þaö gott
Stór pizza með
100% íslenskum ostif
2 áleggstegundum
og brauðstangir að auki
1.390
Ef þú sækir
Mjódd • Dalbraut 1 • Hjarðarhaga 45
5 68 68 68
L* 'T. hkUÍ JUR 11. NÓVEMBER 2006
blaöiö
Stórslysaelgur
I tuttugu prósentum um-
feröarslysa sem eiga sér
staö í Svíþjóö kemur elgur
við sögu.
Hættulegar flugur
Moskítóflugan er hættulegasta lífvera jaröar-
innar en moskítóflugur bera meö sér malaríu
sem veröur yfir milljón manns að bana á
hverju ári.
Ala á ótta og hatri
Bræðralagið Ku Klux
Klan eða KKK hef-
ur verið starfandi
í Bandaríkjunum í
fjölda áratuga og unn-
ið mörg fólskuverk sem einkennast
af hatri á ýmsum þjóðfélagshópum.
Bræðralagið hefur alið á hatri í garð
blökkumanna, gyðinga, kaþólikka
og samkynhneigðra og eru meðlim-
ir þess talsmenn öfgafullrar þjóð-
ernishyggju. KKK hefur frá upphafi
viljað halda yfirburðum hvíta kyn-
stofnsins á lofti og nota ofbeldi og
áróður til þess að koma málefnum
sínum á framfæri.
Stofnun Klansins
Ku Klux Klan var upphaflega
stofnað árið 1866 af hermönnum
Suðurbandalagsins í þrælastríð-
inu. Á stefnuskrá þeirra var meðal
annars að berja niður þræla sem
höfðu hlotið frelsi í kjölfar stríðsins.
Klanið fór fljótlega að beita ofbeld-
isfullum aðferðum en í kringum
1870 fór að grafa undan starfsemi
samtakanna og einbeitti þáverandi
Bandaríkjaforseti, Ulysses S. Grant,
sér fyrir því að uppræta bandalagið.
Nokkur ár tók að ráða niðurlögum
Klansins og hófust miklar óeirðir á
milli svartra og hvítra í kjölfar laga-
setningar gegn KKK. Áðfaranótt
páskadags 1873 hófst svo ein blóðug-
asta deilan á milli blökkumanna og
hvítra félagsmanna Klansins. Hinir
kúguðu hófu aðgerðir í sjálfsvörn
gegn hettuklæddu mönnunum í
Klaninu en afleiðingin varð sú að á
páskadagsmorgun lágu 280 blökku-
menn í valnum.
Klanið rís upp á ný
Ku Klux Klan var stofnað aftur ár-
ið 1915 í kjölfar sýningar á myndinni
The Birth of a Nation sem fjallaði
um fyrsta Klanið, þar sem það var í
hávegum haft og fjöldi fólks féll fyr-
ir þeim hugmyndum sem var haldið
á lofti þar. Klanið hóf einnig að ala á
gyðingahatri og fékk byr undir báða
vængi þegar mikil fjölmiðlaumfjöll-
un hófst í kringum réttarhöld yfir
gyðingnum Leo Frank. Hann var
sakaður um að hafa nauðgað og
myrt níu ára gamla hvíta stúlku og
var tekinn af lífi án dóms og laga af
æstum lýðnum.
KKK varð að formlegu bandalagi
með miklu innra skipulagi víðs veg-
ar um landið sem hafði menn í vinnu
sem sáu um að koma upp Klan-deild-
um. Milljónir gengu í bræðralagið og
þegar Ku Klux Klan var sem stærst
i kringum 1920 er talið að um fimm-
tán prósent kjörgengra manna hafi
verið í bandalaginu.
Áherslur á kynþáttaaðskilnað,
gyðingahatur og andkommúnisma
voru áberandi og enn var hvita
manninum haldið á lofti. Aftökur
voru tíðar og mikil ofbeldisbylgja
gekk yfir landið. Starfsemin var
áberandi á áratugnum milli 1950 og
1960 þegar mikil umræða um rétt-
indi blökkumanna var í gangi.
Leyniregla
í upphafi var tekin sú stefna að
ala á ótta í garð samtakanna með
óhugnanlegum aðgerðum. Félags-
menn klæddust furðulegum búning-
um, fóru í þöglar göngur um miðjar
nætur og töluðu saman á dulmáli.
Hvítu lökin eða kuflarnir hafa
verið einkennismerki félagsmanna
og húfum sem flestum finnst af-
káralegar klæðast þeir til þess að
halda persónuleynd sinni. Eins er
farið leynt með nöfn KKK-manna
JOIN THE KLAN
HD1117
Ennþá starfandi Enn starfa tugir samtaka með sömu hugmyndafræði sem
kenna sig við Ku Klux Klan.
en Klanið hefur eins og fjöldi ann-
arra leynireglna ákveðin tákn sem
aðeins menn innan hópsins þekkja.
Enn starfandi
Nafnið Ku Klux Klan hefur verið
notað af mörgum óskyldum hópum
sem eiga það sameiginlegt að telja
hinn hvíta kynstofn öðrum æðri. Tug-
ir samtaka starfa enn undir nafni Ku
Klux Klan víðs vegar um Bandaríkin
og hafa samtökin einnig náð til ann-
arra landa. Nú er talið að meðlimirn-
ir séu nokkur þúsund. Þessir hópar
eru yfirlýstir öfgahópar sem hafa ver-
ið fordæmdir víðast hvar.
Stærstu hóparnir eru nú Bayou
Knights sem starfa aðallega í Tex-
as, Oklahoma, Arkansas og Louisi-
ana ásamt Church of the American
Knights og Knights of the White
Camelia. Stærsti hópurinn í dag er
talinn vera Knights of the Ku Klux
Klan sem er með höfuðstöðvar sínar
í Zinc, Arkansas, en starfsemi Klans-
ins hefur einnig teygt anga sína til
annarra öfgahópa eins og nýnasista.
Félagsmenn nota ákveðið orðalag
til þess að bera kennsl á aðra
Klanara. Þeir hafa notað orðleys-
una i samræðum sem þýðir
are you a Klansman til þess að
bera kennsl á meðlimi annarra
bandalaga en AKAL þýðir a Klans-
manIam.
Ku Klux Klan hefur komið upp
sér upp einföldu dulmáli i
gegnum tiðina sem aðeins félags-
menn þekkja. Klanið hefur búið
til mörg orð en þau byrja öll á
stöfunum kl.
Kla! treasurer (gjaldkeri)
Klnagle: recruiter (nýliði)
Klecktoken: initiation fee
(innvígslugjöld)
secretary (ritari)
Klonvocatioi gathering (sam-
koma)
Kloran: ritual book (helgisiða-
bók)
Kli delegate (fela i hendur)
chaplain (hirðprestur)