blaðið - 13.02.2007, Side 17
blaöið
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 25
Fagur og undarlegur
tónlistarbræðingur
Latíndiskur Tómasar R. Einars-
sonar, Romm Tomm Tomm, sem
kom út síðastliðið haust, hlaut afar
lofsamlega dóma hjá þekktasta vef-
tímariti latíntónlistarinnar, Desc-
arga.com, í síðustu viku. Ritstjórn-
in mælir sérstaklega með disknum
og Peter Watrous, sem skrifar reglu-
lega um djass og latíntónlist í New
York Times, segir í dómi sínum:
„Hér er á ferðinni fagur og undarleg-
ur tónlistarbræðingur, sprottinn af
kúbverskum áhrifum. (Tómas R.)
Einarsson, íslenskur bassaleikari
(sem kann svo sannarlega á hljóð-
færið; hlustið á Söknuð) setti sam-
an hljómsveit með kúbverskum og
íslenskum hljóðfæraleikurum og í
tónlist hans er mörgu ólíku stefnt
saman; gítarhljómur sjötta ára-
tugarins blandast mambóriffum
kraftmikilla blásara og fjörugra
slagverksmanna. Þarna er líka að
finna skífuskank (í bland við gít-
ar og tres-gítar) og tónlistin er á
einhvern undarlegan hátt gömul
og ný í senn. Þetta er tónlist full af
gleði en víðsfjarri heimskulegum
formúlum, glaðbeitt án þess að
vera klisjutónlist ætluð ferðamönn-
um - eitt lagið heitir „Jörfagleði“,
annað „Eineygði kötturinn". Ó, lát-
ið ímyndunaraflið vinna allar orr-
ustur, látið frumlega hugsun kasta
þeim húmorslausu á haugana. Þessi
geisladiskur er á skrattans geisla-
spilaranum öllum stundum og fær
mín allra bestu meðmæli.“
Samið hefur verið um dreifingu
á disknum í Japan og í Danmörku.
Fyrri latíndiskar hans, Kúbanska
og Havana, hafa notið mikillar hylli
hérlendis og hafa þessir þrír diskar
nú selst samanlagt í sjö þúsund ein-
tökum.
Tómas R. Einarsson „Þessi
geisladiskur er á skrattans
geislaspilaranum öllum stund■
um og fær min allra bestu
meðmælisegir i gagnrýni
um latínudisk hans, Romm,
Tomm Tomm.
Köld slóð með
enskum texta
Hafnar hafa verið sýningar á
kvikmyndinni Köld slóð með
enskum texta í Regnboganum.
Nú gefst nýbúum og erlendum
gestum færi á að sjá þessa (s-
lensku spennumynd sem fengið
hefur frábærar viðtökur. Tölu-
vert hefur verið eftir því spurt
hvort myndin verði sýnd með
enskum texta og virðist sem sá
mikli fjöldi fólks af erlendu bergi
sem hér býr vilji fá tækifæri til
að fylgjast með því sem hér ger-
ist þótt íslenskan sé ekki alveg
komin.
Köld slóð hefur verið sýnd í
rúman mánuð og áhorfendur
eru þegar orðnir tæplega 17.000
sem gerir hana að best sóttu ís-
lensku kvikmyndinni frá 2004 að
Mýrinni undanskilinni. Köld slóð
er jafnframt sýnd í Smárabíói og
úti á landi.
Menning
og fötlun
Föstudaginn 16. febrúar kl.
12.00-13.00 flytja Auður Ólafs-
dóttir rithöfundur og Ingólfur
Margeirsson, rithöfundur og
sagnfræðingur, erindi á vegum
Rannsóknaseturs í fötlunar-
fræðum.
Fyrirlestrarnir verða í Norræna
húsinu og eru öllum opnir.
Hinn frábrugðni verðurtil heitir
fyrirlestur Auðar en þar fjallar
hún um sköpun og þýðingu fóta-
lausra og mállausra ofurhetja í
skáldsögum sínum Upphækkuð
jörð og Rigning i nóvember.
Byggt verður á broti úr texta
bókanna.
Ég er ekki líkami minn heitir
fyrirlestur Ingólfs Margeirssonar
en hann fjallar um hinn huglæga
þátt fötlunar; hugann, daglega
menningu, sjálfstæði og þrá
öryrkja eftir því að taka þátt í
daglegri menningu auk þess
sem hann fjallar um mikilvægi
menningar og menntunar í lífi
öryrkja.
Fyrirlestrarnir eru hluti fyrir-
lestraraðar sem haldin verður
í febrúar, mars og maí 2007
á vegum Rannsóknaseturs í
fötlunarfræðum og er hluti af
menningarhátíð fatlaðra; List án
landamæra.
Tilbúinn fyrir
útivistarfólkið!
Suzuki Swift 4x4
Verð 1.799 þús.
Afborgun á mánuði*
kr. 19.676
$ SUZUKI
...er lífsstíll!
Hugtok. Jan 07)