blaðið - 16.03.2007, Síða 11
blaðið
FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 11
Karlmaður dæmdur:
Misþyrmdi
sambýliskonu
Þrítugur karlmaður var
í Héraðsdómi Reykjavíkur
dæmdur í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi í gær
fyrir tvær líkamsárásir gagnvart
fyrrverandi sambúðarkonu
sinni. Hann á að greiða henni
tæplega 330 þúsund krónur í
skaðabætur og sakarkostnað.
Maðurinn hrinti henni þannig
að hún féll aftur á bak á stiga-
tröppur. Um mánuði seinni á
heimili hennar sló hann henni
utan í vegg, hrinti henni og
misþyrmdi á annan hátt.
Bandaríkin:
Drap tvo
lögreglumenn
Lögregla drap karlmann á
Manhattan í New York-borg á
miðvikudagskvöld eftir að hann
hafði skotið tvo óvopnaða og
óeinkennisklædda lögreglumenn
í sjálfboðavinnu og starfsmann
pitsaveitingastaðar til bana.
Michael Bloomberg, borgar-
stjóri New York-borgar, segir
að maðurinn hafi komið inn
á veitingastaðinn í Greenwich
Village, beðið um matmeðil og
svo skotið starfsmann staðar-
ins fimmtán sinnum í bakið.
Keflavíkurflugvöllur:
Alþjóðlegur
háskóli
„Við höfum unnið að þessu verk-
efni í samstarfi við Reykjanesbæ
síðan f desember og síðar með
Háskóla íslands. Við ætlumst til
þess að hefja starfsemi tiltölulega
hratt og byggja upp alþjóðlegan
háskóla á næstu þremur til fimm
árum,“ segir Runólfur Ágústsson.
Skrifað var undir viljayfir-
lýsingu um stofnun félags um
háskólarekstur á Keflavíkurflug-
velli í gær og hefur Runólfur leitt
þá þróunarvinnu. Hann segir að
háskólinn hefji störf strax í haust
með rekstri frumgreinadeildar.
Markmið félagsins er að efla
alþjóðlegt háskólanám hérlendis,
byggja upp háskólasamfélag
á Keflavíkurflugvelli og laða
þangað erlenda nemendur og
kennara.
Athugasemd
Mynd af Leppin-drykkjum
birtist við grein um of mikið
magn koffíns í þremur teg-
undum orkudrykkja í Blaðinu
í gær. Leppin-drykkir eru hins
vegar ekki f þeim hópi.
Framkvæmdaleyfi í Heiðmörk:
Tvær kærur lagðar fram
Landvernd og Náttúruverndarsam-
tök íslands hafa kært leyfisveitingu
vegna framkvæmda Kópavogsbæjar
í Heiðmörk og krefjast þess að fram-
kvæmdir verði stöðvaðar þar til
niðurstaða fæst. Hjalti Steinþórsson,
formaður úrskurðarnefndar skipu-
lags- og byggingamála, telur hugs-
anlegt að kærum samtakanna verði
vísað frá. Hann segir að kannað verði
hvort samtökin eigi kærurétt þar sem
samtökin eigi ekki lögvarinna hags-
muna að gæta.
Bergur Sigurðsson, formaður Land-
verndar, segir það mikil vonbrigði ef
kærunar verða ekki teknar til efnis-
legrar meðferðar. „Það væri sorglegt
ef svo færi. Það blasir við öllum sem
málið skoða að framkvæmdin brýtur
í bága við náttúruverndarlög, skóg-
ræktarlög og skipulags- og bygginga-
lög. Eigi samtök á borð við Landvernd
ekki aðild að málum sem þessu þá
þarf löggjafinn að bæta úr því,“ segir
Bergur. „Sem betur fer virðast stjórn-
völd vilja bæta stöðu félagasamtaka í
þessum efnum ef marka má tillögur
umhverfisráðherra um breytingar
á lögum um náttúruvernd. Slíkt hið
sama þyrfti að gera þegar kemur að
skipulags- og byggingalögum til þess
að taka af allan vafa.“
Kærum vísað frá? Nátt-
úruverndarsamtök íslands
og Landvernd hafa kært
framkvæmdaleyfin sem veitt
voru vegna framkvæmda í
Heiðmörk.
FINAL2007
taktu
Notaðu MasterCard® kortið þitt og þú gætir verið á leið á
úrslitaleik UEFA Champions League í Aþenu 23. maí!
Skráðu þig í Fótboltaklúbb MasterCard og notaðu MasterCard kortið þitt frá
15. mars - 30. apríl og þú gætir unnið það sem alla fótboltaáhugamenn dreymir um:
Ferð fyrir tvo á úrslitaleik UEFA Champions League í Aþenu 23. maí 2007.
í hvert skipti sem félagi í Fótboltaklúbbi MasterCard notar MasterCard kortið sitt á
tímabilinu fer nafn hans í pottinn sem vinningarnir verða dregnir út. Því oftar sem þú
notar MasterCard kortið þitt, því meiri líkur á að þú farir á úrslitaleikinn!
Meira á www.kreditkort.is.
Master*
CH AMPIONS
LLAGUt
Official Card
Ferð, gistirtt) óg miðar í boðt MástefCard.