blaðið - 16.03.2007, Side 14

blaðið - 16.03.2007, Side 14
blaði Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjóri: Ritstjórnarf ulltrúi: Árogdagurehf. SigurðurG.Guðjónsson Trausti Hafliðason Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Elín Albertsdóttir Siglt eftir olíu Varðskip Landhelgisgæslunnar hafa undanfarin ár siglt til Færeyja og keypt þar olíu á skipin. Það merkilega við þetta er að með þessu er Land- helgisgæslan að spara fjármuni að sögn Georgs Kr. Lárussonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar. Sparnaðurinn nemur um 20 milljónum króna á ári. Árið 2004 námu heildareldsneytiskaup Landhelgisgæslunnar um 100 milljónum króna. Þó sú tala hafi líklega hækkað eitthvað síðan þá er 20 milljóna króna sparnaður hlutfallslega mikill sparnaður. Á meðan varðskipin eru á siglingu til Færeyja eftir olíu eru þau aug- ljóslega ekki til taks innan íslensku lögsögunnar. Varðskipin sinna mik- ilvægu öryggishlutverki á hafinu. Þau sinna löggæslu, fiskveiðieftirliti, sem og leitar- og björgunarhlutverki. Þegar samgöngur á landi bregðast vegna náttúruhamfara, líkt og í Vestmannaeyjagosinu 1973 og þegar snjó- flóðið féll á Súðavík 1995, skiptir gríðarlega miklu máli að varðskipin séu til taks. Það er óskiljanlegt að yfirvöld hafi ekki brugðist við þessu með ein- hverjum hætti. Sérstaklega þegar litið er til þess að grunnverð hjá íslensku olíufyrirtækjunum er í sumum tilfellum lægra en verðið sem Landhelgis- gæslan borgar í Færeyjum. Sparnaðurinn skýrist af því að stofnunin þarf að greiða opinber gjöld af olíu sem hún kaupir hér en ekki af olíu sem keypt er í Færeyjum. Þar sem þessi viðskipti flokkast undir útflutnings- viðskipti hefur sem sagt skapast sú hefð að erlendar útgerðir borga ekki opinber gjöld þegar þau kaupa olíu. Þetta á líka við um erlendar útgerðir sem kaupa olíu hérlendis. Þar sem Landhelgisgæslan er opinber stofnun og þar með rekin með op- inberu fé þá virðist sáraeinfalt að bregðast við þessu og tryggja þar með að varðskipin sinni lögbundnu hlutverki sínu enn betur en þau gera miðað við núverandi aðstæður. Það kom líka berlega í ljós í viðtali við Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, í Blaðinu í gær að hægt er að leysa þennan vanda. Baldur lýsti því yfir að ef það ætti að und- anþiggja Landhelgisgæsluna því að greiða skatt þá væri rökrétt að lækka fjárveitingar til stofnunarinnar sem því næmi. Viðbrögð forstjóra Land- helgisgæslunnar voru eftirfarandi: „Það væri þó skömminni skárra að draga af fjárveitingum til okkar, við værum þá meira til taks hér við land og ekki bundin með skip fyrir utan lögsöguna marga daga á ári.” Eftir þetta hlýtur að vakna spurningin: „Eftir hverju eru menn að bíða?” Trausti Hafliðason Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Vrv.96620140-3737 Innimálning KÓPAL Glitra irmi: 4 Itr, gljástig 10. 14 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 blaöi6 t>i£ OAMí-í Si&QÆvisSBGGUfi. PAP ER KoSAi-f> M> OtC«UR AÐ NolíkCl/K 0% i H) skALT EKKi A-PRA m EN MlGr .2. bí/ SKAJLT EKKÍ SlÁ PlA ö.SKIM vY r/VfS' ' . '■rf//s/' • 1' r/ ’/r' sSsr J :<*% % , ’ W '//' Un U' C*mS\) I / y .. . \/)J ( / U/tll f >ú PtyLT EKKi SÍRIV/íST Hátt hlutfall lagareglna á uppruna í Brussel Ný skýrsla Evrópunefndar for- sætisráðherra er um margt áhuga- vert rit. 1 raun er hún afbragðs samantekt á evrópsku samstarfi og aðkomu íslands að Evrópusam- runanum í gegnum EES-samning- inn og Schengen-landamærasam- starfið. Þótt skýrslan sé lögð fram af fulltrúum stjórnmálaflokkanna í nefndinni dylst fáum sem til þekkja að meginefni hennar er höfundar- verk Hreins Hrafnkelssonar, starfs- manns nefndarinnar. Hreinn er stórfróður um Evrópumál og vinna hans gerir að verkum að skýrslan er ekki aðeins ágætis innlegg inn i hið pólitíska þras heldur einnig góður grunnur fyrir fræðilega umræðu um raunverulega stöðu íslands í Evrópusamvinnunni. Áhugaverðar sérlausnir í skýrslunni er til að mynda að finna geipilega áhugaverðar upp- lýsingar um afmarkaðar sérlausnir sem fjölmörg ríki hafa fengið utan um sína meginhagsmuni í aðild- arviðræðum við ESB. Einnig eru dregin fram dæmi um afmarkaðar sérlausnir sem ríki hafa fengið eftir að þau voru komin inn í ESB. Að því leytinu til er hér nánast kom- inn fram leiðarvísir um mögulega sérlausn fyrir íslenskan sjávarútveg í hugsanlegum aðildarviðræðum við ESB. Þannig að yfirráðin yfir auðlindinni yrðu eftir sem áður í höndum íslenskra stjórnvalda. Dæmi frá Möltu, Finnlandi, Sví- þjóð, Danmörku og fleiri ríkjum sýna að vel gerlegt er að finna ásætt- anlega lausn fyrir íslenskan sjávar- útveg. Einnig má rökstyðja slíka lausn með vísan í sérákvæði um fjarlægar eyjar og héruð sem finna má í sáttmálum Evrópusambands- ins og greint er frá í skýrslunni. Hlutfall Evópulaga Fleira áhugavert er að finna í skýrslunni. Lengi hefur verið rifist um hve stóran hluta af reglugerða- verki ESB ísland þarf nú þegar að innleiða. Ljóst er að meginhluti lagabálka ESB er áframsendur til íslands í gegnum EES og Schengen. Menn hafa stundum velt fyrir sér hve mikinn hluta af íslenskum lögum megi rekja til ákvarðana Evrópusambandsins. í skýrslunni er í fyrsta sinn varpað Ijósi á þá spurningu. Fram kemur að um það bil fimmtungur af öllum lögum og reglum sem sett eru á íslandi á upp- runa 1 Brussel. Þetta eru stórmerki- legar upplýsingar því rannsóknir í einstaka ríkjum Evrópusambands- ins hafa sýnt að í flestum þeirra er hlutfall Evrópulaga lægra heldur en hér á landi. { útreikningum sænska prófess- orsins Fredrik Sterzel frá árinu 2001 kom fram að einungis 8 pró- sent af sænskum lögum og reglu- gerðum megi rekja til ákvarðana í Brussel. (Sterzel: 2001, bls. 13). Hlut- fallið er nokkuð misjafnt milli að- ildarríkjanna enda misjafnt hvað ríki eru dugleg við að framleiða lög og reglur. Til að mynda kom- ust hollensku fræðimennirnir Ed- win de Jong og Michiel Herweijer að þeirri niðurstöðu að í Hollandi megi rekja á milli 6 til 16 prósent af hollenskum lagareglum til Evr- ópulöggjafarinnar, allt eftir því hvernig það er reiknað (Jong og Herweijer: 2005). í skýrslu Evrópu- nefndar forsætisráðherra kemur fram að á Islandi megi rekja á milli 17,2 prósent til 21,6 af íslenskri laga- setningu til löggjafarstarfsins í Brussel. Skýringin gæti verið sú að íslendingar setja sjálfum sér færri lög en aðrar Evrópuþjóðir. Eigi að síður má samkvæmt þessum tölum rekja hlutfallslega fleiri lagareglur á Islandi til lagasetningarstarfs Evr- ópusambandsins í Brussel heldur en að jafnaði tíðkast í ríkjum ESB. Höfundur er stjórnmálafræðingur Klippt & skorið Fyrirtækið Camp North hefur fest kaup á 40 lóðum undir sumarhús í Húsafelli sem og einni lóð undir veitingastað og þjónustumiðstöð, segir í frétt í Skessuhorni. „Ingólfur Þór Tómasson, stjórnarformaður fyrirtækisins, segir að reist verði lúxushús á lóðunum, hvert hús verði um 170 fermetrar að stærð með tveimur til fjórum svefn- herbergjum. Fyrirtækið er í eigu eignarhaldsfélagsins Inside Holding Group ehf. sem er að mestu í eigu Norðmanna, en Ingólfur er stærsti íslenski hlut- hafinn. Reiknað er með framkvæmdum upp á tvo og hálfan til þrjá milljarða króna á svæðinu þegar allt er til talið." hað má með sanni segja að framsæknir menn finnist víða og gaman verður að fylgjast með þessu verkefni þróast. Samkvæmt greiningardeild Lands- bankans eru landsmenn farnir að hægja á neyslufylliríinu en á vef bankans segir: „Nokkur samdráttur var í greiðslukortaveltu milli mánaða og munar þar mestu um kreditkortaveltu. Kreditkorta- velta dróst saman um tæp 11% milli mánaða og fór úr tæpum 25 mö.kr í 22 ma.kr. Þrátt fyrir mik- innsamdrátterveltanum 15% yfir meðalveltu síð- ustu 12 mánuði. Á sama tímabili í fyrra var veltan um 19 ma.kr. Heildarvelta debetkorta breytist lítið milli mánaða og nam 31,5 mö.kr." Landsbankinn segir að þetta sé skýr vísbending um samdrátt einka- neyslunnar. Loksins, loksins, segja væntan- lega einhverjir. Flestir landsmenn vita nú að allmargir veit- ingamenn hafa tekið lækkun á virðisauka- skatti matvæla í sinn eigin vasa nú um mánaðamótin. Neytenda- samtökin bregðast hart við þessu og segja á heimasíðu sinni: „Veitingahúsamenn hafa oft kvartað yfir háu matvælaverði, meðal ann- ars vegna virðisaukaskatts. Nú bregður hins vegar svo við, þegar lækkaður er virðisaukaskattur hjá veitingahúsum, að allt of mörg þeirra taka þessa lækkun til sín en skila henni ekki til neytenda eins og þeim ber." Er ekki rétt að landsmenn neiti sér um að fara út að borða um helgina til að mótmæla þessu svindli veitinga- manna og eldi flottan mat heima í staðinn? elin@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.