blaðið - 16.03.2007, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007
laftið
Listaskáldið góða
Hamrahlíðarkórinn syngur lög við kvæði Jónasar Hallgrímssonar
í Listasafni Islands á sunnudag. Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnar
og Páll Valsson rithöfundur kynnir Ijóðin og spjallar um Jónas á
milli laga. Tónleikarnir tíefjast klukkan 20.
Þeldökk
Disney-prinsessa
Sjötíu árum eftir að Walt Disney
kom hinni hugljúfu Mjallhvíti
fram á sjónarsviðið hefur
fyrirtækið í fyrsta sinn hafið
framleiðslu á teiknimynd þar
sem þeldökk prinsessa er í
aðalhlutverki. Teiknimyndin mun
bera titilinn Froskaprinsessan og
kemur í kvikmyndahús árið 2009.
Að sögn framleiðanda er þetta
bandarískt ævintýri af bestu
gerð. Söguhetjan heitir Maddý
og er búsett í New Orleans. í
anda borgarinnar mun Ijúfsár
djasstónlist verða í aðalhlutverki
en forráðamenn Disney liggja
á sjálfum söguþræðinum líkt
og ormur á gulli. Þó hefur verið
gert kunnugt að ætlunin sé að
færa sig nær upphafinu og verða
nútímatölvuteikningar ekki í eins
miklu aðalhlutverki og í síðustu
teiknimyndum. Maddý er þó
ekki fyrsta Disney-stúlkan sem
ekki er af vestrænu bergi brotin.
Jasmin, sem kom fram í Aladdin,
var frá Mið-Austurlöndum, ind-
íánastúlkan Pocahontas fylgdi
svo í kjölfarið og kínverska
prinsessan Mulan kom alla leið
frá Kína.
Sporlaust í Þjóð-
minjasafninu
Sýningín Sporlaust verður
opnuð f Þjóðminjasafni íslands
á morgun. Þar sýnir Katrín El-
varsdóttir Ijósmyndir sínar en í
myndunum setur hún á svið litla
sögu þar sem við fylgjumst með
nokkrum börnum sem virðast
vera ein á ferð úti í skógi. Katrín
er ekki að mynda raunveruleikann
í þeirri merkingu að hún sé að
taka myndir af einhverju ákveðnu
fyrirbæri. Hún er ekki að taka
myndir af börnum úti í skógi, jafn-
vel þótt börnin séu vissulega af
holdi og blóði og sagan sviðsett
úti í náttúrunni innan um raunveru-
leg tré og skógarstíga. Hún er
heldur ekki að myndskreyta sögu
eða setja á svið „lifandi myndir"
heldur er hún að setja sig á skjön
við raunveruleikann og býr til
einkaheim eða handanveröld,
fremur eins og kvikmyndaleik-
stjóri en Ijósmyndari. Katrín lærði
Ijósmyndun í Boston í Bandaríkj-
unum og hefur sýnt verk sín bæði
austanhafs og vestan. Myndirnar
á sýningunni eru teknar sumarið
2006 általíu á frumstæða Holgu-
plastmyndavél og prentaðar með
Giclee-tækni. Sýningin verður
opnuð klukkan 13.
Undurfagurt
að verður mikið um
dýrðir í Salnum 1 Kópa-
vogi á morgun en þá
frumsýnir söngdeild
Tónlistarskóla Kópa-
vogs óperuna Asis og Galatea eftir
Georg Friedrich Hándel. Þar stíga á
stokk ungir og efnilegir söngvarar
og flytja þessa fallegu óperu sem
Hándel samdi árið 1718 stuttu eftir
að hann fluttist búferlum til Eng-
lands. Efniviðinn í óperuna sótti
Hándel í goðsöguna Metamorphos-
is eftir rómverska skáldið Óvíð en
þar segir frá ástum og örlögum
hjarðsveinsins Asis og sjávardís-
innar Galateu. Þar koma einnig
við sögu þríeygði risinn Pólýfemus,
hinn jarðbundni Damón auk fleiri
furðuskepna.
Anna Júlíana Sveinsdóttir sér um
leikstjórn og segir hún óperuna hafa
orðið fyrir valinu fyrst og fremst
vegna þess hversu falleg tónlistin
sé. „Þetta er alveg yndisleg tónlist
og verkið hefur líka töluverða þýð-
ingu í tónlistarsögulegu samhengi.
Þetta er eina óperan sem Hándel
samdi fyrir enska tungu og frægt
tónskáld að nafni Tómas Arne, sem
var eitt aðaltónskáld Englendinga á
18. öld, söng ásamt systur sinni í
þessari óperu þegar hún var fyrst
sett upp á Englandi."
(höll hertoga
Hándel samdi óperuna um Asis
og Galateu meðan hann dvaldist í
höll hertogans af Carnarvon í Edg-
ware skammt frá Lundúnum. Höf-
undar textans eru taldir vera þrjú
skáld sem öll voru vinir Hándels
og Burlingtons lávarðar sem var
ötull verndari lista og menningar
þess tíma. „Óperan var rétt að ná
fótfestu á Englandi þegar Hándel
flutti þangað. Það má segja að hann
hafi slegið i gegn þar árið 1711 með
óperunni Rinaldo en með henni
hóf hin ítalska opera seria innreið
sína í landið,“ segir Anna Júlíana
og bætir við að þar sé um að ræða
hálfgerða hirðóperu sem byggist á
mjög löngum aríum. Hún segir að
verkið hafi reynst mun erfiðara í
uppfærslu en hún hafi gert ráð fyr-
barokk
ir í fyrstu. „Á tímabili óx mér þetta
töluvert í augum en okkur tókst að
yfirstíga alla erfiðleika og útkoman
er ákaflega falleg. Tónlistin er mjög
danskennd og ég er svo lánsöm að
meðal nemendanna eru tveir dans-
arar, þau Elín Arna Asperlund sem
fer með hlutverk Damóns og Bjart-
mar Þórðarson sem túlkar Pólýfem-
us. Þau setja mjög skemmtilegan
svip á sýninguna.“
Ellefu ára söngvarar
Æfingar hafa staðið yfir
í langan tíma en um leið
og skólinn byrjaði í haust
hófst undibúningur af
krafti. „Mér finnst mik-
ilvægt að hafa nægan
tíma svo krakkarnir
geti móttekið hlut-
verkin og látið þau
vaxa með rödd-
inni. Þetta er
mjög mikilvægt
tækifæri fyrir
nemendurna til
að æfa sig í leik-
rænni tjáningu. Það er dýrmætt
veganesti þegar haldið er utan til
framhaldsnáms.“
Aðalsöngvararnir í sýningunni
eru flestir ríflega tvítugir en þeir
yngstu aðeins ellefu ára gamlir.
„Fýrir tveimur árum settum við upp
Töfraflautuna. Sýningin naut mik-
illa vinsælda og við þurfum að hafa
nokkrar aukasýningar. Það voru
meðal annarra nokkur börn sem
mættu á hverja einustu sýningu,
settust andaktug á fremsta
bekk og hlýddu á. Tvö þessara
barna, tvær ellefu ára gaml-
ar stúlkur, eru nú komin til
okkar í söngnám og standa
þær sig með mikilli prýði.“
Aðeins verða tvær sýning-
ar á Asis og Galateu,
á morgun klukkan
20 og á sunnudag
klukkan 16.
Georg Friedrich
Hándel Samdi Asis
og Galateu árið 1718
Listrænt
Miðbærinn bætir blómi í barm
sinn á morgun en þá verður START-
ART, nýr og glæsilegur listasalur og
verslun, opnaður að Laugavegi X2b.
STARTART er í eigu sjö starfandi
listamanna sem vinna verk sín í mis-
munandi efni og miðla en þeir eru
Anna Eyjólfsdóttir, Ása Ólafsdóttir,
GaGa Skorrdal, Magdalena Margrét
Kjartansdóttir, Ragnhildur Stefáns-
dóttir, Þórdís Alda Sigurðardóttir
og Þuríður Sigurðardóttir. Undan-
farnar vikur hefur hópurinn lagt
nótt við dag að gera upp húsnæðið
á Laugaveginum og nú er komið að
því að svipta hulunni af herlegheit-
unum. „Hugmyndin kviknaði hjá
þeim systrum Önnu og Gerði, en
Gerður hafði verið í öðru þessara
rýma með verslun. Rýmið við hlið-
ina losnaði svo og í kjölfarið hafði
Anna samband við okkur og bar
undir okkur þessa hugmynd. I kjöl-
frelsi í miðborginni
farið brettum við upp ermar og hóf-
umst handa. I upphafi var nú bara
ætlunin að brjóta niður einn vegg
og mála allt hvítt en þetta hefur ver-
ið nokkurra vikna puð og við fyllt-
um 12 feta gám af innvolsi úr rým-
inu,“ segir Þuríður Sigurðardóttir.
Nafnið á salnum og starfseminni,
STARTART, taldi hópurinn lýsandi
fyrir þær hugmyndir sem leiddu til
samstarfsins og það listræna frelsi
sem er svo mikilvægt. „Um ieið og
kominn er milliliður sem þarf bæði
að sinna óskum viðskiptavinanna og
listamannsins flækjast málin. Stund-
um samræmist þetta tvennt alls ekki.
Við teljum svo mikilvægt fyrir okkur
að halda í þetta listræna frelsi okkar
oghöfum allar starfað á þeim nótum.
Við erum trúar okkur sjálfum og því
sem við erum að gera.“
Á morgun ætla listamennirnir
að taka á móti gestum milli 13 og 16
“SS,
I nógu að snúast Listamenn- h
irnir unnu mikið starf við að S
endurinnrétta húsnæðið
og kynna verk sín á sameiginlegri
sýningu. öll verkin eru til sölu.
STARTART verður opið alla virka
daga frá klukkan 11-18 og klukkan
13-17 um helgar. Nánari upplýsingar
má finna á www.startart.is.