blaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 23
blaðið
FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 23 -
Ragnar Ómarsson tekur þátt í matreiðslukeppni í Suður-Afríku
ekki til á íslandi
Hráefnið
Ragnar Ómarsson kokkur er á leið
í matreiðslukeppni í Suður-Afríku og
Blaðið náði tali af honum þegar hann
var í óðaönn að undirbúa ferðina.
„Matreiðslukeppnin heitir World One
og er samstarfsverkefni Alheimssam-
takanna. Island hélt keppnina í fyrra
en það var í fyrsta sinn sem hún var
haldin og núna er hún haldin í Suður-
Afríku. Það eru sjö keppendur í keppn-
inni þvi það er bara einn keppandi
frá hverri heimsálfu. Reyndar erum
við tveir sem komum frá Evrópu því
Evrópu er skipt í tvennt,“ segir Ragn-
ar sem hefur náð að æfa sig aðeins.
„Ég þarf að elda þriggja rétta máltíð
fyrir sex manns og það er skylda að
nota hráefni frá því landi sem keppn-
in er í. I forrétt á að vera pepperdew
sem er eins og marinerað chili og
mjög sérstakt hráefni. Eina skilyrðið
er að pepperdew sé 40 prósent af rétt-
inum sem er frekar flókið að gera án
þess að það verði of sterkt. Ég held ég
hafi fundið lausnina en ég verð með
risahörpuskel með pepperdew- og
tómatsalsa og með þessu verð ég með
pepperdew-skelfiskfroðu."
Strútur í aðalrétt
„1 aðalrétt er strútur sem er voða-
lega svipaður nautakjöti. Þar nota
ég einföldustu lausnina og nota það
sem ég kann. Ég verð með strút vafð-
an inn í parmaskinku með kremuð-
um villisveppum, kartöflumauki
og sósu,“ segir Ragnar og bætir við
að þetta hafi virkað vel á æfingum.
.Eftirrétturinn er líka sérstakur en í
honum þarf að nota kökukrem sem
er ekki til á íslandi. Ég veit ekkert
hvernig kremið er en hef heyrt að
það sé með smá karamellubragði. Ég
ætla að reyna að gera súkkulaðimús
úr því, hafa botninn með sprengjuk-
úlum ásamt blæjuberjum. Eg fæ von-
andi að smakka þetta krem daginn
fyrir keppnina.“
Bandarískur
víniðnaður
Vínþjónasamtökin standa fyrir
amerískum degi í dag í tilefni
þemadaga í Vínbúðunum í mars.
Einblínt verður á bandarísk vín
með sérstakri áherslu á vín frá Kali-
forníu og viðskiptahlið vínbransans.
Dagskráin hefst á Hótel Nordica
klukkan 17.00 með fyrirlestri Nico-
las Jones frá Gallo og mun hann
fjalla um bandaríska víniðnaðinn
og þróun hans, stöðu bandarískra
vína í heiminum og uppbyggingu
vörumerkja. Yfirvíngerðarmaður
Gallo, Cal Dennison, mun síðan
segja frá fyrirtækinu og helstu
vínum þess auk þess sem nokkur
vín verða smökkuð. Cal Dennison
er einn þekktasti víngerðarmaður
Bandaríkjanna en Gallo er stærsta
léttvínsfyrirtæki heims.
Sauða- og geita-
brieostar
Nýverið komu á markaðinn
íslenskir sauða- og geitabrie-
ostar sem eru svo sannarlega
kærkomin viðbót við íslenskan
markað. Framleiðslan á ostunum
er afrakstur samstarfsverkefnis
Búnaðarsamtaka Vesturlands, Bún-
aðarsambands Eyjafjarðar, Mjólk-
ursamlagsins í Búðardal, Landbún-
aðarháskóla (slands og Matís sem
staðið hefur síðan 2004. Nokkrir
sauðfjárbændur og einn geitabóndi
hafa tekið þátt í verkefninu og hefur
mjólkurmagnið verið að aukast ár
frá ári. Árið 2004 söfnuðust rúmir
100 lítrar af sauðamjólk og 75 lítrar
af geitamjólk en árið 2006 söfnuð-
ust 1127 lítrar af sauðamjólk og
1530 lítrar af geitamjólk. í ár verða
framleiddir hreinir sauðaostar,
blandaðir sauðaostar og hreinir
geitaostar. Sauða- og geitamjólk
er afurð sem hefur allt aðra efna-
samsetningu en kúamjólk og er
því í sumum tilfellum hentugri fyrir
neytendur. Því getur þessi nýjung
á markaði opnað nýja möguleika
fyrir þá neytendur sem ekki þola af-
urðir úr kúamjólk. Víða í Evrópu eru
sauðaostar í ríkari mæli framleiddir
sem gæðaframleiðsluvara. Þeir
hafa verið framleiddir í nær öllum
löndum Evrópu og fer framleiðslan
vaxandi.
Kaffið frá Te & Kaffi
Te & Kaffi býður nú þrjár gæðablöndur í hagkvæmum
400 g umbúðum. Þú finnur kaffi við þitt hæfi frá
Te & Kaffi í verslunum um land allt.
stundin - bragðið - steniningin