blaðið

Ulloq

blaðið - 16.03.2007, Qupperneq 28

blaðið - 16.03.2007, Qupperneq 28
28 FOSTUDAGUR 16. MARS 2007 blaðið iþróttir Stelpurnar í íslenska landsliðinu í knattspyrnu stóðu sig vel á móti í Portúgal í vikunni og enduðu í níunda sæti eftir merkilegan 4-1 sigur á Kínverjum. Merkilegan fyrir þær sakir að fyrsta markið í leiknum kom þegar rúmar 20 mínútur voru eftir af leiknum. Skeytir. ^nr A! l\ a ð Olivier Sorl- in hafi leyft sér i.að bregða sér frá í miðjum knattspyrnu- leik vegna niðurgangs segir meira en mörg orð um gengi Rennes í Frakklandi. Lið- ið er slefandi um miðja töflu þvert á spár fyrir leiktíðina um að það yrði enn á ný meðal þeirra stóru í landinu en Rennes hefur á tiltölu- lega stuttum tíma skapað sér sess sem stórlið á franskan mælikvarða. En fallvalt er gengið og á ekki eingöngu við um íslensku krónuna. Brasilískar stórstjörnur glíma við það atvinnuvandamál að fjölskyldumeðlimir hverfa æ* með reglulegu milhbili. Nú varpar Ricardo iMNyWpks. Oliveira hjá WSfaT ACMilan öndinni léttar eftir að mannræningjar létu systur hans lausa eftir fimm mánaða þolraun. Lofaði hann að endurgjalda Milan stuðninginn og spila extra vel í framtíðinni. Sú ákvörðun Arsene Wenger að sprauta Ihierry Henry nið- ur og nota þrátt fyrir meiðsl í Meistaradeildinni gegn PSV er ekki ástæða þess að Henry spilar ekki meira þessa leiktíðina. Alls ekki að mati Wenger sjálfs. Ástæðan er Raymond Domenech, þjálfari Frakklands, sem kannekki aðfara með þá leikmenn sem fyrir hann spila. £ Beinar útsendingar 18.25 Sýn Handbolti Gummersbacti - Kiel I 02.50 RÚV Kappakstur Keppni hefst í nótt aö nýju í Formúlu 1 kappakstrinum: Vonir bundnar við Alonso Michael Schumacher horfinn Gorgeir í Alonso Heitt í Ástralíu. * 1 -/ NordicPhotos/Cetty Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@bladid.net Formúlu 1 tímabilið hefst á ný í nótt þegar tímatökur hefjast í Al- bert Park í Melbourne í Ástralíu en sjálf keppnin fer svo fram aðfara- nótt sunnudags en sýnt er beint frá keppninni í Ríkissjónvarpinu. Spekingar flestir eru á því að keppni ársins geti orðið ein sú merkilegasta um langa hríð. Kemur þrennt til. Brotthvarf margfalds heimsmeistara Michael Schumac- her, sami dekkjaframleiðandi fyrir öll liðin og reglur sem gera það að verkum að liðin þurfa að langmestu leyti að notast við sömu vélar og notaðar voru í síðustu tveimur keppnum ársins 2006. Heimsmeistarinn, Fernando Al- onso frá Spáni, verður eðlilega í sviðsljósinu enda kappinn hjá nýju liði og margir sem bíða spenntir eftir hvort honum tekst að endur- heimta titilinn. Blikur eru þegar á lofti hvað það varðar. Bíll McLaren þykir ekki standa bíl Ferrari á sporði en litlu skiptir hversu góður ökumaður er undir stýri sé bíllinn ekki fyrsta flokks. Það hefur þó ekki haft áhrif á Alonso sjálfan sem telur sig eiga fína möguleika og hefur aðeins það markmið að vinna sinn þriðja titil. Fyrirfram er búist við að McLaren og Ferrari berjist um toppsætin eins og undanfarin ár en bíll McLaren var óáreiðanlegur í fyrra og fyrir það þarf að komast áður en þeir gera alvarlega atlögu að Ferrari. Þar á bæ eru nýliðar undir stýri. Þeir Kimi Raikkonen, sem er að fylla skarð Mi- chael Schumacher, og Felipe Massa, sem hefur aðeins eins árs reynslu undir stýri á Ferrari-bíl. Ekki er heldur hægt að útiloka Renault og þá Fisichella og Kovala- inen þar á bæ. Fernando Alonso varð tvisvar í röð heimsmeistari með Renault og bílaframleiðand- inn ætlar sér stóra hluti nú einnig. Bíll þeirra er lítið endurbættur frá fyrra ári og því veltur áfram- haldandi gott gengi að öllu leyti á ökumönnunum. Á góðum degi geta aðrir bílafram- leiðendur og ökumenn breytt gangi mála en tímatökur á æfingum fram að þessari keppni gefa fáar vísbend- ingar um óvænta hluti. Einna helst hafa þeir Heidfeld og Kubicka sýnt góða spretti á BMW-bílum sínum en liðið hefur áður sýnt slíkt á æf- ingum en lítið orðið úr þegar í alvör- una er komið. Ríkisútvarpið sýnir beint frá tímatökum og keppninni sjálfri en hafa ber í huga að þær fara fram um miðja nótt. Útsending frá tímatök- unum hefst klukkan hálfþrjú eftir miðnætti í nótt. Fjöldi heimsmeistartitla KEPPNISLIÐIN I VETUR Super Aguri Sato Davidson Toyota Schumacher Trulli F0RLEIK? Renault Fisichella Kovalainen EKTA BBAGÐ OsEMSINNSYKUR v Unnrlo T3 nuiiud Button Barrichello

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.