blaðið - 14.04.2007, Síða 22
22
LAUGARDAGUR 14. APRIL 2007
blaðiö
folk@bladid.net
NÝJASTA kosn-
ingaloforð Magn-
úsar Stefánssonar
um að aðstoða
skuldara gæti
reynst Framsókn-
arflokknum
happa-
drjúgt.
Allir vita
að farsælustu kosningaloforðin
eru þau sem ná til sem flestra og
engin hörgull er á skuldurum á
íslandi. Nærri má geta að fylgi
flokksins aukist um helming
við þessar fréttir. Hins vegar
verður ekki spurt að leikslokum
ef loforðið verður ekki efnt. Ætli
stjórnarandstaðan sendi þá
handrukkara á loforðaskuldarann
Magnús ...?
UNGFRÚ REYKJAVÍKUR hefur
verið valin Fanney Lára Guð-
mundsdóttir, 19 ára Kópavogs-
mær. Hún varð einnig þess
heiðurs aðnjótandi að vera valin
Aquolina-stúlkan,
sem þykir
vafalaust afar
eftirsóknarvert
í fegurðarbrans-
anum. Fanney
stundar
námí
Verzlun-
arskóla
íslands
en víst
þykir
að hún eigi ekki séns í keppnina
Óbeisluð fegurð, sem fram fer í fé-
lagsheimili Hnífsdælinga þann 18.
apríl næstkomandi. Þótt Fanney
þyki afar fönguleg og falleg,
virðist hún þó aðeins innihalda
beislaða fegurð, ef marka má skil-
greiningu Vestfirðinganna...
ESSO stendur nú í hamskiptum.
Breyting á einu elsta vörumerki
landsins stendur nú yfir og
er nýja heitið Ni. Eflaust mun
það valda einhverjum óánægju-
röddum en strax er byrjað að snúa
út úr nafninu. Eitt dæmi er: „Enn
ein bensínstöðin ...“
H VAÐ Á Vísa ekki að létta
FEVJNST korthöfum lífið?
ÞER?
„Jú, svo framarlega sem það er í okkar valdi að gera það."
Sólin skín á ný
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Hið sögufræga stuðband Síðan
skein sól, með Helga Björns í broddi
fylkingar, mun halda upp á 20
ára afmælistónleika á Stóra sviði
Borgarleikhússins þann 18. apríl
næstkomandi.
Sveitin á að baki fjölmarga slag-
ara sem leiknir verða í bland við
önnur minna þekkt lög í nýjum
útsetningum.
„Við áttuðum okkur á í kringum
áramótin að þetta væri afmælisár
og ákváðum að gera eitthvað í því.
Auðvitað hafði ég leitt hugann að
þessu áður svo sem og okkur hafði
lengi langað til að gera eitthvað,
nýja plötu eða halda tónleika. Menn
voru bara uppteknir hver í sínu
horni,“ segir Helgi Björnsson söngv-
ari sveitarinnar.
„En þetta er frábært tilefni og
passar upp á hár með tímasetningu,
þvi hljómsveitin hóf störf í lok mars
1987. Erfiðast er þó að velja hvaða lög
fá inni og hver ekki. Auðvitað tökum
við okkar þekktustu lög og hugsan-
lega læðist eitthvað nýtt efni inn, en
það er þó ekki víst. Reyndar kveður
við nýjan hljóm í sumum lögum er
hlotið hafa nýjar útsetningar. Þetta
verður svona gotterís bland í poka
bara og tilvalið tækifæri til að telja
í á ný. “
Ýmsir stjörnugestir munu koma
Frábært tækifæri!
Lítið umboð og lager er til sölu af sérstökum ástæðum.
Þetta umboð er með ýmiskonar fatnað og heilsuskó. Mjög
vel þekkt innan heilbrigðisgeirarns fyrir þægindi og gæði.
Hentar einstaklega vel fyrir fólk sem vill vinna sjálfstætt.
Miklir tekjumöguleikar fyrir duglegt fólk.
Upplýsingar í síma 691-0808
fram með sveitinni. Þar á meðal er
Silvía Nótt.
„fá, Björn Jörundur er frambæri-
legur tónlistarmaður sem og KK, en
ég reyni kannski að plata hann til
að blása eitthvað í hörpuna. Svo er
Silvía Nótt auðvitað mikill aðdáandi
Sólarinnar eins og allir aðrir, þannig
að hún fær sitt pláss. “
„Þetfá verðursvona gott-
erísbfánd í poka bara og
tilvalið tækifærí tilað teija
í á ný.“
Lítið hefur borið á Helga undan-
farið í sviðsljósinu. Hann gaf síðast
út sólóplötu árið 2005 en hefur að
eigin sögn einbeitt sér að öðrum
störfum.
„Já, það er rétt. Annars hef ég nú
alltaf verið til í eitthvað sprikl inn
á milli. Ég hef þó aðallega verið að
framleiða efni og svo hef ég leikið í
einni og einni bíómynd af og til. Ann-
ars er ég meira í tónlistinni, kannski
núna en það fer bara eftir aðstæðum
hverju sinni.“
Mikið hefur breyst á 20 árum,
bæði i tónlistinni og öðrum kimum
þjóðfélagsins.
„Þetta var mun erfiðara að standa
í þessu í gamla daga. Það þótti ekki
hlaupið að því að fá inn í hljóðverum
nema að vera með plötusamning
við eitthvert útgáfufyrirtækjanna.
Su doku
Það virkaði líka sem eins konar sía
en með nýrri upptökutækni, Net-
inu og tölvunum, þá er framboðið á
efni miklu meira og þar af leiðandi
misjafnara. Að mínu mati er alltaf
minna og minna af „nýju“ efni í
gangi, þetta er mikið til endurtekn-
ing á gömlum lögum og böndum.
Sem dæmi nefni ég bara Peter, Bjorn
og John sem hljóma alveg eins og
Kinks frá 1965! En auðvitað er alltaf
eitthvað nýtt í gömlum hljómi, en
það á bara eftir að koma í ljós hvort
þessi þróun sé jákvæð eða neikvæð.“
En hvað hlustar Helgi á sjálfur?
Hvað leynist í iPodnum hans?
„Ég hef mikið verið að færast í átt að
djassinum, hann herjar sífellt meira á
mig. Einnig er klassísk tónlist mikið
uppi á pallborðinu. Annars er rokkið
alltaf inni líka auðvitað, The Killers,
The Clash, The Who, þetta gengur
bara í bylgjum hjá manni.“
Helgi er maður með reynslu og er
eldri en tvœvetur íbransanum. Hann
hefur löngum verið þekktur fyrir
frumlega og líflega sviðsframkomu.
„Ég er nú kannski ekki að klifra
upp á hátalarastæðurnar enn þá,
enda eitthvað kominn yfir fertugt.
Ætli maður verði ekki fágaðri og hóf-
stilltari með aldrinum, við skulum
að minnsta kosti orða það þannig.
En krafturinn býr enn þá undir
niðri, eins og eldfjall sem er við það
að gjósa, en gýs þó ekki,“ sagði Helgi
spekingslega að lokum.
Þórður Jónsson, sviðsstjóri hjá VISA
Korthafar VISA lentu í vandræðum um gervalla evrópu I gær þar
sem ekki var unnt að nota greiðslukortin. Bilun átti sér stað í
miðstöð VISA í Evrópu sem leiddi til örðugleikanna. Þórður segir
ástandið hafa farið batnandi og að málið leysist vonandi sem tyrst.
BLOGGARINN...
Hrópandi
ósamræmi
„Hjörleifur Guttormsson frambjóðandi
VG í Reykjavík hvetur Ómar Ragnars-
son til að draga framboð sitt til baka.
Sennilega vill VG „eiga“ græn mál og
telja ólíklegt að Sjálfstæðisflokkurinn
dragi sig í hlé. Ekki er ég viss um að
VG uppskeri mikið með þessum mál-
flutningi, enda þvert á fyrri yfirlýsingar
þegar forysta VG fagnaði framboði
Ómars og félaga. Katrín Jakobsdóttir
sagðist „fagna komu
annars framboðs sem
leggur áherslu á
umhverfismár - Nú
' J kveður við annan
tón. “
Eyþór Arnalds
ea.blog.is/blog/ea
Fegurðarklám-
keppni
„...Hvernig hægt er að keppa í fegurð
er mér fyrirmunað að sjá eða skilja.
Stúlkurnar voru allar fallegar. [...] I
þetta sinn var ekki reynt að halda á
lofti að ekki væri nóg að vera fallegur
heldur skipti persónuleikinn miklu
máli líka. Það hlýturað vera þokka-
lega erfitt fyrir áhorfendur að dæma
persónuleika út frá tískusýningu, bað-
fatasýningu, ballkjóla- og dansatriði.
Upphafsatriðið varsorglegt. Stúlkurn-
ar voru með klút fyriraugum (gegnsæ-
an að vísu), í rifnum fötum sem voru
afsvo skornum skammti (fötin) að
þau huldu bara það allra heilagasta.
Ég og húsbandið
vorum sammála
um að þarna væri
klámtískan lifandi
komin. Alla vega
bein skírskotun í
hana.“
Jenný Anna
Baldursdóttir
jenfo.blog.is
Ekki Jón
„Rosalega hef ég séð margar ekki-
fréttir um Jón Baldvin á þessu ári.
Jón Baldvin hleraður - Jón Baldvin
- ekki hleraður; Jón Baldvin á lista
Samfylkingarinnar - Jón Baldvin
ekki á lista Samfylkingarinnar; Jón
Baldvin á lista Islandshreyfingarinn-
ar - Jón Baldvin ekki á lista Islands-
hreyfingarinnar. Jón Baldvin á heiður
skilinn fyrir margt en hann liti betur
út ef hann hefði alveg sleppt því að
komast i fréttirnar síðustu misserin.
Þetta hefur einhvern veginn verið
allt einhver gola í
plastmáli."
Ágúst Borgþór
Sverrisson
blogg.visir.is/
agustborgthor
eftir Jim Unger
6 7 4 1
9 3 2 6 7
3 7 4
9 6 8
4 9 5 1
7 1 8
8 7 1 9
2 4 5
6 8 2 3 4
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Ef þú krefst þess að hlægja, Ingimundur,
þá bið ég þig um að leita í grínrekkanum.