blaðið - 14.04.2007, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007
blaðið
mennin
menning@bladid.net
Austur og vestur
Fimmtu og síðustu tónleikar vetrarins í TKTK-Tónleika-
röð kennara Tónlistarskóia Kópavogs, verða haldnir í
Salnum í dag, laugardaginn 14.apríl klukkan 13. Á efnis
skrá er kvintett eftir Prokofieff, Kentish og fleira.
„Hver var Freyja?"
Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræðingur og þýðandi, flytur
fyrirlesturinn „Hver var Freyja?" í Snorrastofu í Reykholti á
þriðjudaginn næstkomandi klukkan 20.30. Mun Ingunn þar
fjalla um ímynd og hlutverk Freyju í norrænni heiðni.
Nýhil veitir
ljóöaverðlaun
í dag veröa veitt verðlaun í
Ljóðasamkeppni Nýhils og
Menntaskólablaðsins Verðandi.
Athöfnin fer fram í bókabúð
Nýhils við
Klappar-
stíg 25 og
hefststund-
víslega
klukkan
14.00 og
eru allir vel-
komnir.
Á meðan
s allir finna
stæði og
koma sér
fyrir ætlar hljómsveitin Palindr-
ome að flytja tónlist. Verðlauna-
hafar í sjö flokkum verða síðan
tilkynntir og mun hver og einn
lesa sitt verðlaunaljóð og þiggja
veglega bókagjöf frá Nýhil. A
eftir hyggjast Nýhilskáld lesa
upp Ijóð sín. í tilefni dagsins
verða allir Nýhilstitlar og fleiri
seldir á 100-1000 krónur.
Hughrif frá náttúrunni
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hildur@bladid.net
Árni Rúnar Sverrisson myndlistar-
maður opnar í dag málverkasýn-
ingu í galleríinu Art-Iceland.com
við Skólavörðustíg ía. Árni Rúnar er
undir sterkum áhrifum frá litbrigð-
um og formum frumgróðurs jarðar
og í myndum hans koma fyrst og
fremst fram hughrif frá náttúrunni.
Spurður hvort hann ferðist mikið
um landið segist Árni vissulega gera
töluvert af því. „Hins vegar nægir
mér að hafa einn lítinn mosavax-
inn stein, en í einum slíkum get ég
fengið næga inspírasjón fyrir ótelj-
andi myndir. Þegar ég ferðast um
landið tek ég gjarnan myndir sem
ég get síðan notað sem innblástur á
veturna þegar ég hef ekki alla þessa
liti náttúrunnar í kringum mig. Svo
er ég mikill steinasafnari og á ágæt-
is safn af steinum með alls konar
myndum á og það er alveg haugur
af hugmyndum sem hægt er að fá út
frá þeim,“ segir hann og bætir því
við að steinarnir séu úr alls kyns
steintegundum og séu allir sóttir í
íslenska náttúru.
Árni hefur fengist við myndlist í
hátt í þrjá áratugi og tekið á við alls
kyns viðfangsefni. „Áður fyrr gerði
ég töluvert af þjóðfélagsádeilumynd-
um auk þess sem ég var töluvert að
fást við trúarpælingar af ýmsu tagi
svo eitthvað sé nefnt. En fyrir um ío
árum fór ég að gera landslagsmynd-
ir og hef einbeitt mér að mestu að
því allar götur síðan.“
Sýningin opnar klukkan 14 og
eru allir velkomnir.
Ert þú að flytja innanlands?
Mundu að tílkynna um breytt heimilisfang þitt og allra
fjölskyldumeðlima á postur.is eða næsta pósthúsi. Einnig
þarf að tilkynna um breytt heimilisfang til Hagstofu íslands.
viðskiptabanka og allra sem senda þér bréf. Pósturinn sér
ekki um slíkar tilkynningar.
Áframsending er í boði fyrir þá sem flytja innanlands.
Almennar bréfasendingar sem stílaðar eru á gamla heimilis-
fangið eru þá áframsendará nýja heimilisfangið.
Biðpóstur er í boði fyrir þá sem eru ekki heima hjá sér
tímabundið. Pósturínn þinn er þá áframsendur á umbeðið
pósthús þar sem þú getur nátgast hann þegar þér hentar.
Sækja þarf um ofangreinda þjónustu á postur.is eða næsta
pósthúsi. Áframsendingargjald fyrir þrjá mánuði er 990 kr.
og mánaðargjald fyrir biðpóst er 580 kr.
Að sjálfsögðu er hægt að tilkynna um flutning án þess að
greiða þjónustugjatd en þá mun áframsending ekki taka
gildi og endursenda verður þau bréf sem berast á gamla
heimilisfangið.
Þjónusluver | símí 580 12001 postur@postur.is | www.postur.is
Töfraveröld
Turak-hópsins
Þjóðleikhúsið kynnir sérstæða
franska gestasýningu, Etabl’íle, í
Kúlunni næstkomandi mánudags-
kvöld klukkan 20. Aðeins er um
þessa einu sýningu í Þjóðleikhús-
inu að ræða og því fágætt tækifæri
fyrir leikhúsáhugafólk en Turak-
leikhópurinn undir stjórn Michael
Laubu hefur getið sér gott orð víða
um heim.
Hér er á ferðinni sérstæð leiksýn-
ing, eins konar ævintýraferð um
töfraveröld þar sem ómælisvídd
ímyndunaraflsins ræður ríkjum
í sýningu sem er mitt á milli þess
að vera brúðuleikhús og leikhús
hlutanna. Sumir hafa viljað kalla
leikhús af þessu tagi „víðavangs-
leikhús". Sýningin er skipulögð
af Alliance Francais og er hluti af
menningardagskránni Pourquoi
pas? -Franskt vor á Islandi.
Leiösögn í Lista-
safni íslands
Erlendur Sveinsson kvikmynda-
gerðarmaður verður með leiðsögn
um sýningu á verkum Jóns Engil-
berts í Listasafni íslands á morg-
un, sunnudaginn ís.apríl klukkan
14-
Hann ætlar að spjalla um verk
Jóns út frá kynnum sínum af lista-
manninum og gögnum í fórum
Sveinssafns um samskipti Jóns
og Sveins Björnssonar. Erlendur
kynntist verkum Jóns Engilberts
og Jóni sjálfum á unglingsárum
sínum meðal annars vegna vin-
áttu Jóns og Sveins Björnssonar
listmálara, föður Erlends. í spjalli
sínu mun hann ganga út frá tveim-
ur portrettum sem Sveinn málaði
af Jóni í aprílmánuði árið 1963 og
styðjast í því sambandi við dagbók-
arlýsingar Sveins sem ekki hafa
birst áður, en gefa góða mynd af
Jóni og stöðu hans sem fyrirmynd
ungra listamanna upp úr 1960.