blaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 1
Botnleðja lifir
„Viö höfum reynt aö koma
: saman einu sinni í viku,“
k segir Haraldur Gíslason,
trommuleikari hinnar
fornfrægu Botnleðju.
* Sveitin vinnur aö nýju efni.
Slakar á
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir verður
í Fljótshlíð um helgina. „Ég fer
snemma í fyrramálið og ætla að
slappa vel af. Fæ kannski ein-
hverja vini í heimsókn og reyni
að gera gott úr þessu."
Sest á skólabekk
Samúel Örn Erlingsson hefur
verið á öldum Ijósvakans í 25
i ár en stendur nú á tíma-
I mótum í lífi sínu. Hann er að
A hætta hjá RÚV og hyggst
r setjast á skólabekk.
ORÐLAUS»
100. tölublað 3. árgangur
föstudagur
1. júní 2007
FRJALST, OHAÐ &
Líffæragjafakort hafa ekki lagalegt gildi:
Geta hunsað vilja látinna
■ Ættingjar geta sagt nei ■ Biðtími eftir nýrum ■ Lögin úrelt
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Fjölskylda látins einstaklings getur neitað líffæra-
gjöf þrátt fyrir að sá hafi fyrir andlátið orðið sér
úti um líffæragjafakort hjá landlæknisembætt-
inu. Kortin hafa ekki lagalegt gildi. Þetta segir
Runólfur Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga á
Landspítalanum.
Ekki er til nein skrá yfir þá sem vilja gefa líf-
færi þegar dauða ber að höndum, samkvæmt upp-
lýsingum frá landlæknisembættinu. „Það skortir
lagalega umgjörð sem segir að hafi viðkomandi
sagt að hann vilji verða gjafi verði hann gjafi al-
veg sama hvað aðstandendur segja,“ greinir Run-
ólfur frá. Slík lagaákvæði séu enn sem komið
er bara í lögum um ígræðslu í Belgíu og Austur-
ríki. „1 lögum um ígræðslu sem sett voru hér 1991
segir að ef viðkomandi hefur ekki sagt að hann
vilji gefa líffæri er gert ráð fyrir að hann vilji það
ekki.“
Niðurstöður rannsóknar um líffæragjafir á ís-
landi 1992 til 2002 sýndu að í 39 prósentum tilvika
hafna aðstandendur beiðni um líffæragjöf úr ný-
látnum ættingja. Það er mat Runólfs að færri hafni
nú slíkri beiðni.
Hann segir líffæragjafir úr látnum hafa verið 6
árið 2006 en þar áður 2 til 3 á ári. ^
Þriggja ára ökumaður:
Endaði á vegg eftir
fjörutíu metra akstur
Breytt leiðakerfi
Strætó nær ókynnt
Á sunnudagsmorgun munu strætis-
vagnar höfuðborgarsvæðisins byrja að
ganga eftir nýju leiðakerfi og nýjum
tímatöflum. Kerfið hefur ekki verið
kynnt utan þess að ný leiðaþók fór á
biðstöðvarnar í gær. „Allar upplýsingar
munu koma inn á vefinn um helgina,"
segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri
Strætó bs.
FRÉTTIR » 12
Þrjú ár fyrir
að valda dauða
Hæstiréttur dæmdi í gær Loft Jens
Magnússon til þriggja ára fangelsis-
vistar fyrir líkamsárás í desember árið
2004 sem leiddi til dauða Ragnars
Björnssonar. Árásin átti sér stað á veit-
ingahúsinu Ásláki í Mosfellsbæ, þar sem
Loftur sló Ragnar í hálsinn með þeim
afleiðingum að blæddi inn á heila hans.
Bæturnar nema 12 milljónum króna.
FRÉTTIR »2
Mikil mildi þykir að enginn skyldi
slasast þegar þriggja ára drengur,
Freyr Þrastarson, setti bíl foreldra
sinna í gír með þeim afleiðingum
að bíllinn rann niður brekku og
yfir Hvaleyrarveg, sem er aðalbraut
með umferð í báðar áttir. Hann
rann svo niður aðra brekku og end-
aði á húsvegg eftir um 40 metra bíl-
túr. Bíllinn er líklega ónýtur. „Freyr
var með pabba sínum í garðinum
þegar hann læddist upp í bílinn og
setti hann í gír,“ segir Hrund Finn-
bogadóttir, móðir Freys.
Bílnum var lagt við Ásbúðartröð.
,,Ég vil sjá að sett verði upp vegrið
sem skilur Ásbúðartröð frá brekk-
unni. Börn rúlla oft niður brekkuna
eða stökkva á hjólum á kantinum
og enda á Hvaleyrarvegi þar sem
mikil og hröð umferð er.“
Hrund segir að hún hafi haldið
að hún þyrfti ekki að hafa áhyggjur
af því fyrr en eftir 15 ár að Freyr
eyðilegði bíl foreldra sinna. Freyr
sjálfur segist hins vegar aldrei ætla
að keyra aftur.
Grikklands, takk
Kathleen Searles, 89 ára ekkja frá
Suffolk í Bretlandi, valdi sér heldur
óhefðbundinn fararskjóta er hún fór
í draumaferð sína til Grikklands með
vinkonu sinni. Hún er ekki mikið fyrir
að fljúga og þess í stað hringdi hún
í leigubíl.
Ferðin til Grikklands tók 3 daga og
komu þær meðal annars við í Calais
í Frakklandi, Miinchen og Belgrad.
Heimleiðin var öllu lengri eða 5 dagar
þar sem þær komu meðal annars við
í Búdapest, Linz og Frankfurt.
Alls kostaði ferðin 2 þúsund pund,
um 245 þúsund íslenskar krónur,
og segir Searles að hún hafi verið
hverrar krónu virði. „Mér er illa við
flugvelli og þoli ekki að láta ýta mér
í hjólastólnum,“ sagði Searles. Hefð-
bundið flugfar með lággjaldaflugfé-
lagi kostar rúmar 7 þúsund krónur.
Banki Krónur
Kaupþing 12
Glitnir 13
Sparisjóðirnir 13
Landsbankinn 13
Verð á debetkortafærslum
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
SS USD 61,70 -0,62 ▼
i§!§i GBP 121,95 -0,60 ▼
S5 DKK 11,15 -0,44 ▼
• JPY 0,51 -0,73 ▼
BH EUR 83,07 -0,44 ▼
GENGISVÍSITALA 112,57 -0,49 ▼
ÚRVALSVÍSITALA 8.168,37 0,10 A
VEÐRIÐ í DAG
VEÐUR » 2