blaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 27
blaðiö
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 27
Atómið hækkar
Nú fer hver aö vera síðastur að panta
sér Ariel Atom, sem er stundum kallaður
minnsti ofursportbíll í heimi, á gamla
verðinu. Tilkynnt hefur verið um rúmlega
370.000 króna hækkun á bílnum, en
bíllinn kostar nú um 4,3 milljónir króna í
heimalandi sínu, Bretlandi.
• Atom er 3,5 sekúndur í hundrað • Ofurfor-
þjöppuútgáfan er 2,7 í hundrað • Vélarnar eru 2
lítra og skila 220 hestöflum án ofurforþjöppu og
300 með hennar aðstoð
Wankel fertug
[ vikunni fagnaði Mazda 40 ára afmæli
hjámiðjuvélar sinnar, oftast kölluð
Wankei eftir höfundi hennar. Okkur í
bílskúrnum er aðeins kunnugt um einn
bíl sem er í boði í dag með þessa vél,
Mazda RX-8, en í honum er 1,3 lítra hjá-
miðjuvél sem skilar 231 hestafli. __
• Wankel var 17 ára pegar hann dreymdi að hann
segði vini sínum frá pvi að bíllinn hans væri bú-
inn slikri vél sem hann hefði fundið upp sjálfur
• Það var árið 1919 • 38 árum siðar smíðaði
hann loks fyrstu vélina, byggða á lýsingunni sem
hann gaf í draumnum • Mazda hefur framleitt
yfir 2 milljónir Wankel véla
Bensínlaust olíuland?
Þrátt fyrir að norski
efnahagurinn eigi
mikiðundir olíuauð-
lindum landsins hefur
norska ríkisstjórnin
lýst því yfir að til
greina komi að banna
sölu nýrra bila sem eingöngu geta notað
bensín sem orkugjafa. Ástæðan er sú að
bensínbilar eru ábyrgir fyrir um fjórðungi
þess koldíoxíðs sem Norðmenn losa út í
andrúmsloftið á ári.
• Bannið gæti tekið gildi eftir sjö ár • Ekki hefur
komið fram hvort til greina komi að minnka
útflutning bensins
ivyi uy ajjiocnim it
Það er alltaf gaman þegar ný útgáfa af
„boy racer" bíl kemur til landsins og bens-
ínpedalaglaðir lesendur ættu hiklaust að
leggja leið sína í Bernhard, þar sem nú
er til sýnis og sölu nýr Honda Civic Type-
R, með enn öflugri vél en áður.
• Billinn er með 2 lítra V-tec vél og skilar 201
hestafli • Type-R er 6,6 sekúndur í hundrað
• Verðið er 3.119.000 krónur
Engin vonbrigöi
með Métisse
Útsendarar þilablaðsins Auto Express
duttu heldur betur í lukkupottinn þegar
þeirfengu Citroén Métisse til reynslu
á dögunum. Þeir lýsa honum sem
himnasendingu og eiga varla nógu sterk
orð til að koma aðdáun sinni á þessu
framúrstefnulega dísil-elektróníska
farartæki til skila.
• Billinn er búinn hljóðlátri 2,7 lítra V6 Hdi „orku-
stöð“ • Hún skilar 208 hestöflum, 400 Nm og
bllnum í hundrað á 6,2 sekúndum • Þrátt fyrir
að billinn sé óvenjulegur að utan, er hann enn
framúrstefnulegri að innan
Ótakmarkaður F350
Þar sem gildistöku reglugerðar um hraða-
takmarkanir i nýjum vörubílum hefur
verið frestað um sinn hefur Brimborg
ákveðið að bjóða að nýju Ford F350
pallbíla. Fyrirtækið hætti aö panta bílana
eftir að Ijóst var að reglugerðin myndi
taka gildi._____________________________
• Billinn er nýbúinn að fá andlitslyftingu sem
pykir hafa tekist vel • Vélin er 350 hestafla 6,4
lítra disilvél sem skilar litlum 881 Nm • Fyrstu
bílarnir verða til afgreiðslu í lok júlí
Sæti Nafn Lið Stig (síðast)
1-2 FernandoAlonso McLaren 38 (10)
1-2 Lewis Hamilton McLaren 38 (8)
3 Felipe Massa Ferrari 33 (6)
4 Kimi Raikkönen Ferrari 23 (1)
5 Nick Heidfeld , BMW j ,18. J3) j'
Ofurbíll vikunnar:
Enginn venjulegur Golf
Það er ekki svo langt síðan 30 ára
afmælisútgáfa VW Golf GTi var
kynnt; 230 hestafla minnisvarði um
þærtæplega 1,7 milljónir GTi sem
hafa selst frá upphafi. Afmælisbíllinn
er bráðskemmtilegur í akstri, lipur,
flottur og feiknalega kraftmikill. En
í samanburði við frænda sinn, GTi
W12 hugmyndabílinn, lítur hann út
eins og kassabill.
(staðinn fyrir 2ja lítra, 4 strokka
vélina er nú komin W12 tólf vél (já,
tvöfalt vaff í Golf!) með tveimur
túrbínum og sláandi tölum; 6 lítra
rúmtak, 750 Nm og 640 hestöfl.
Bíllinn er 3,7 sekúndur í hundrað og
hefur hámarkshraða upp á 325 km á
klukkustund.
Ef þig langar í annan bíl með
sama hámarkshraða gætir þú
prófað Ferrari 575M Maranello. Já,
þessi Golf er samkeppnishæfur við
Ferrari.
Þegar taka á „venjulegan" fólksbíl
og gera úr honum ofurbílaætu dugar
auðvitað ekki að skella bara stærri
vél í hann og vona það besta. Bíllinn
er smíðaður frá grunni hjá VW og er í
raun vitnisburður um getu framleið-
andans frekar en eitthvað annað, og
um margt frábrugðinn þeim GTi sem
ég og þú getum keypt úti í búð.
Fyrir það fyrsta er yfirbyggingin
16 cm breiðari og 7 cm lægri, drifið
er á afturhjólunum og til að tryggja
að billinn haldist á götunni og allir
hreyfanlegir hlutir séu yel kældir
þurfti að breyta einu og öðru við útlit
hans.
Framstuðarinn er til dæmis miklu
öflugri en á venjulega bílnum og
eins og sést á meðfylgjandi mynd
er „C-bitinn“, aftasti burðarbiti yfir-
byggingarinnar, nánast aðskilinn frá
farþegahúsinu. Það er gert annars
vegar til að nýta hann sem vind-
skeið sem þrýstir afturendanum
niður og hins vegar til að beina
kælilofti að vélinni, sem er í miðjum
bílnum.
febrúar,
S.imgonðiúartlun Átnnna
105 milljarðar í vegi
Renault
BauAisnwjK?
fyrír dómý
1 .mars er tímamót en frá þeim tíma er
Blaðinu dreift inn á fleiri heimili en
nokkru öðru dagblaði á íslandi.
Á auglýsingin þin ekki það besta skilið?
M.
■m